Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Qupperneq 2
Helgarblað 1.–4. apríl 20162 Fréttir
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Föst
söluÞÓKNuN
Sími 568-
5556 www
.skeifan.is
1% + vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá
Vonin kviknar á Lesbos
Þ
etta er mjög sérstök reynsla
sem við erum í raun enn að
vinna úr,“ segir Eva Davíðs-
dóttir, sem ásamt kærsta
sínum, Stephen Anderson,
ferðaðist til grísku eyjunnar Lesbos til
þess að taka þátt í hjálparstarfi. Eins
og DV greindi frá í byrjun febrúar þá
stóð parið fyrir söfnun sem ætlunin
var að nota til þess að gera aðstæður
flóttafólksins bærilegri. „Viðbrögðin
voru frábær. Á stuttum tíma fengum
við ótrúlegt magn af fötum og söfn-
uðum tæplega þrjú hundruð þúsund
krónum inn á reikning. Við keyptum
því aukatöskur í flugið og gátum farið
með um 70 kílógrömm af fatnaði auk
þess að kaupa nauðþurftir á staðn-
um fyrir peningana,“ segir Eva.
Tilnefndir til friðarverðlauna
Lesbos er falleg eyja sem er skammt
frá ströndum Tyrklands. Hún er um
1.600 ferkílómetrar að stærð en til
samanburðar er höfuðborgarsvæðið
rúmlega 1.000 ferkílómetrar. „Við
dvöldum á norðurhluta hennar og
í raun og veru þá er enn hægt að
heimsækja Lesbos án þess að verða
nokkuð var við neyðina sem á sér
stað. Út af fréttaflutningi hafa ferða-
menn sniðgengið eyjuna og því
kom okkur skemmtilega á óvart að
hitta marga innfædda sem voru að
aðstoða. Þeir sem hafa horn í síðu
flóttamanna láta þó líklega ekki sjá
sig á vettvangi og við heyrðum alveg
miður skemmtilegar sögur af kyn-
þáttafordómum og áreiti sem grískir
sjálfboðaliðar verða fyrir,“ segir Eva.
Almenn velvild eyjarskeggja hefur
ekki farið fram hjá alþjóðasamfé-
laginu því að íbúar Lesbos voru til-
nefndir til friðarverðlauna Nóbels í
ár út af samkennd sinni og fórnum í
þágu flóttamanna.
Von kviknar í brjósti flóttamanna
Eva segist ekki hafa vitað við hverju
ætti að búast á vettvangi en að upp-
lifun hafi verið sérstök. „Þegar flótta-
mennirnir ná að landi á Lesbos þá er
það ákveðinn léttir og maður finnur
hvernig von kviknar í brjósti þeirra.
Það er skrítið að upplifa þessar já-
kvæðu tilfinningar miðað við hvað
aðstæðurnar eru að mörgu leyti
nötur legar,“ segir Eva. Hún segir að
sjálfboðaliðarnir séu hvattir til þess
að búa flóttamennina eins vel og
efni standa til fyrir áframhaldandi
ferðalag. „Fæstir staldra við á Lesbos
nema í 2–4 daga. Við reyndum því að
veita fólki hlýlegar móttökur því að
þarna var ákveðin stund milli stríða
hjá flóttafólkinu. Fötin sem við
fórum með nýttust vel og við gát-
um keypt ýmislegt á vettvangi til
þess að gefa fólki, aðallega keypt-
um við skó,“ segir Eva.
Fann sig best í barnatjaldinu
Að hennar sögn var ótrúlegt
hversu fallegt andrúmsloft tókst
að skapa á vettvangi og skipulag
hjálparstofnana var gott miðað
við manneklu og fjárskort. „Ég
fann mig best í barnatjaldinu
þar sem reynt var að hlúa að
krökkunum og gefa þeim tæki-
færi til þess að leika sér áhyggju-
laust. Þrátt fyrir erfiðleikana var
magnað að sjá hversu fljót þau voru
að gleyma sér við þá iðju,“ segir Eva.
Að sama skapi fannst henni átakan-
legt að leika sér við sum börn, vitandi
það að þjóðerni þeirra gerði það að
verkum að þau og fjölskyldur þeirra
myndu að öllum líkindum ekki kom-
ast áfram inn í álfuna. „Sýrlendingar
og Írakar eru í forgangi en til dæmis
komast afganskir flóttamenn að öll-
um líkindum ekki lengra. Við hittum
allnokkrar fjölskyldur frá Afganistan
á meðan við störfuðum á Lesbos,“
segir Eva.
Hræðilegar aðstæður við Idomeni
Frá Lesbos halda flóttamennirnir
til Aþenu og þaðan freista þeir
þess að komast til Makedóníu.
„Þar er nánast alfarið búið að loka
landamærunum sem hefur gert
það að verkum að um 13 þús-
und flóttamenn lifa við hræðilegar
aðstæður við landamærin,“ segir
Eva. Staðurinn sem um ræðir heitir
Idomeni og í nýlegum pistli lýsti Þór-
unn Ólafsdóttir, sem meðal annars
hefur komið að hjálparstörfum á
Lesbos, staðnum sem „úthverfi
helvítis“. „Margt af því fólki sem við
kynntumst á Lesbos ætlaði að halda
til Idomeni næst eða til Líbanon
þar sem ástandið er einnig slæmt.
Evrópubúar hafa misst áhugann á
ástandinu en neyðin er enn mikil,“
segir Eva. n
Eva Davíðsdóttir og Stephen Anderson komin heim eftir hjálparstarf á Lesbos
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Með von í brjósti Móðir með ung börn sín nýkomin til Lesbos. Þrátt fyrir slæmt ástand þá
er Lesbos yfirleitt stund milli stríða hjá flóttamönnunum. Þegar stigið er á land er tilefni til
þess að gleðjast og von kviknar í brjóstum þeirra. Hjá flestum eru hins vegar miklir erfiðar-
leikar fram undan.
Á víð og dreif Hér má sjá aragrúa af
björgunarvestum sem skilin hafa verið eftir á
ströndinni þar sem Eva og Stephen störfuðu.
Húmar að Flóttamennirnir koma í bátum að næturlagi. Mjög hefur dregið úr komu þeirra til
Lesbos út af auknum viðbúnaði landhelgisgæslunnar tyrknesku. „Það komu um tveir bátar á
hverri nóttu á því svæði sem við vorum. Ég fékk þær upplýsingar að tvö þúsund manns hefðu
komið til Lesbos yfir þriggja daga tímabil um það leyti sem við vorum úti,“ segir Eva.
Á vettvangi Stephen ásamt ungum drengjum sem voru nýkomnir til Lesbos. Að sögn Evu
er ótrúlegt hversu fljótt börnin gleyma sér við leik miðað við erfiðar aðstæður þeirra.
Stephen og Eva Í bakgrunni er fatnaðurinn í pokum og kössum, sem þau söfnuðu fyrir ferðina.
„Þegar flótta-
mennirnir ná að
landi á Lesbos þá er
það ákveðinn léttir