Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Page 4
4 Fréttir Helgarblað 1.–4. apríl 2016 Hópefli í fákaseli Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.Is | símI: 483 5050 Matur, drykkur og skemmtun S tjórn Ríkisútvarpsins hefur fengið í hendur drög að nýj­ um þjónustusamningi við ís­ lenska ríkið. Samningurinn hljóðar upp á ríkisframlag upp á 3.725 milljónir króna. Því til viðbótar eru tekjur RÚV á árinu og er áætlað að heildarrekstrarfé stofnunarinn­ ar verði um 5.600 milljónir króna á þessu ári. Helsta breytingin í nýja þjónustu­ samningnum er að hlutur sjálfstætt starfandi framleiðenda er tvöfaldað­ ur. Í fyrri samningi, sem gerður var árið 2011, var hlutur sjálfstætt starf­ andi framleiðenda um fjögur pró­ sent en er samkvæmt heimildum DV í þessum samningi um átta prósent af tekjum RÚV. Sá þjónustusamningur sem nú er til yfirlestrar hjá stjórn RÚV mun gilda til ársins 2020. Með honum er lögð aukin áhersla á menningarlegt gildi RÚV og birtist það best í aukn­ um fjármunum til sjálfstætt starfandi framleiðenda. Þær tekjur sem RÚV hefur úr að spila jafngilda um 15,3 milljónum króna á degi hverjum. Samkvæmt heimildum DV er gert ráð fyrir því að nýr þjónustusamn­ ingur verði undirritaður strax eftir helgi. n RÚV eflir menningu Framlag til sjálfstætt starfandi framleiðenda tvöfaldað Gætir hagsmuna ríkisins í söluferli Arion banka n Steinar Þór eftirlitsmaður stjórnvalda inn í Kaupþingi n Lífeyrissjóðir gætu senn gert tilboð F yrrverandi formaður skilanefndar Kaupþings mun hafa það hlutverk að gæta hagsmuna íslenska ríkisins samhliða söluferli á 87% hlut Kaupþings í Arion banka. Sam­ kvæmt heimildum DV hafa stjórn­ völd þannig fengið hæstaréttarlög­ manninn Steinar Þór Guðgeirsson, sem var formaður skilanefndar Kaupþings á árunum 2008 til 2012, til að vera sérstakur eftirlitsmaður inni í Kaupþingi og fylgjast með söluferl­ inu og tryggja að ekki verði gengið á hagsmuni ríkisins. Steinar hefur unnið sem ráðgjafi fyrir Seðlabanka Íslands undanfarin misseri og situr meðal annars í stjórnum margra fé­ laga sem voru framseld til ríkisins í byrjun þessa árs sem hluti af stöð­ ugleikaframlagi kröfuhafa gömlu bankanna. Íslensk stjórnvöld eiga gríðar­ legra hagsmuna að gæta við sölu á Arion banka vegna afkomuskipta­ samnings sem gerður var við kröfu­ hafa slitabúsins í fyrra. Ef hlutur Kaupþings verður seldur í samræmi við bókfært eigið fé Arion banka í lok síðasta árs þá mun ríkið fá um 113 milljarða króna í sinn hlut. Söluand­ virðið sem rennur til ríkisins verð­ ur hins vegar aðeins ríflega 90 millj­ arðar ef hluturinn selst á gengi sem nemur 0,7 miðað við bókfært eigið fé en það er núna tæplega 193 milljarð­ ar. Fyrir utan 87% eignarhlut Kaup­ þings þá á ríkið sem kunnugt er 13% hlut í bankanum. Tilboð í vændum Að fá inn sérstakan eftirlitsmann inn í Kaupþing til að fylgjast með söluferlinu, þar sem hann mun geta krafist ítarlegra upplýsinga í tengsl­ um við fyrirhugaða sölu á Arion banka, var á meðal þeirra skilyrða sem voru sett kröfuhöfum Kaup­ þings þegar þeir samþykktu stöð­ ugleikaskilyrði stjórnvalda. Eins og upplýst var um í DV í nóvember í fyrra þá fóru stjórnvöld einnig fram á skilmála sem veitir þeim heimild til forkaupsréttar á 87% hlut Kaupþings ef til stendur að selja hann á verði sem er umtalsvert lægra en bókfært eigið fé bankans. Þannig er talið nær útilokað, samkvæmt heimildum DV, að stjórnvöld myndu sitja aðgerðar­ laus hjá ef Kaupþing hyggst til dæm­ is selja hlutinn til fjárfesta á genginu 0,6 til 0,7 miðað við eigið fé Arion banka. Afar ólíklegt verður þó að telja að það muni koma til þess að stjórn­ völd telji nauðsynlegt að nýta sér slíkt forkaupsréttarákvæði. Ítrekað hefur komið fram í fjölmiðlum að hópur lífeyrissjóða, sem er leiddur af stærstu lífeyrissjóðum landsins, hafi á undanförnum mánuðum átt í óformlegum viðræðum við fulltrúa slitastjórnar Kaupþings um kaup á hlut í Arion banka. Væntingar eru um að skriður komist á söluferlið nú þegar ný stjórn hefur tekið við Kaupþingi og fjármálaráðgjafar líf­ eyrissjóðanna, ráðgjafafyrirtækið Icora Partners, hafa fengið aðgang að rafrænu gagnaherbergi þar sem finna má ítarlegar upplýsingar um fjárhag og rekstraráætlanir bankans næstu árin. Þannig vonast lífeyris­ sjóðirnir til þess, samkvæmt heim­ ildum DV, að hægt verði að koma fram með tilboð í bankann í kring­ um næstu mánaðamót. Selji 45% hlut Rétt eins og greint var frá í Við­ skiptaMogganum um miðjan síðasta mánuð er áformað að lífeyrissjóðirn­ ir kaupi 45% hlut í Arion banka. Þá hafa sjóðirnir – undir forystu Lífeyr­ issjóðs verslunarmanna, Lífeyris sjóðs starfsmanna ríkisins og Gildi lífeyris­ sjóðs – þrýst á um að verði þau kaup að veruleika þá muni Kaupþing jafn­ framt í kjölfarið selja 5% hlut í útboði til almennings. Kaupþing hefði síðan nærri þrjú ár til að selja þann 37% hlut sem eftir stæði til annarra fjárfesta, að öllum líkindum fag­ og einkafjárfesta. Ekki þarf að koma á óvart að stjórn Kaupþings kjósi að selja 45% hlut í bankanum í fyrstu atrennu en sé tekið mið af bókfærðu eigin fé Arion banka gæti hluturinn selst á um 87 milljarða króna. Þeirri fjárhæð yrði þá ráðstafað til að greiða upp að fullu 84 milljarða veðskuldabréf sem Kaupþing gaf út til stjórnvalda og þannig komast hjá því að þurfa að greiða fyrstu afborgun af skulda­ bréfinu. Er bréfið til þriggja ára, í samræmi við þann tíma ramma sem hluthafar Kaupþings hafa til að finna kaupanda að 87% hlutnum í Arion banka, og ber 5,5% vexti, eða sem nemur 4,6 milljörðum á ári. Þrátt fyrir að ekki liggi endanlega fyrir á hvaða verði hluturinn yrði seldur til lífeyrissjóðanna þá er talið líklegt að þeir þurfi að greiða fyrir hann mið­ að við gengi sem er mjög nálægt bók­ færðu virði bankans. Ný stjórn tekin við Söluferlið á hlut Kaupþings í Arion banka er núna á forræði nýrrar stjórnar félagsins sem tók til starfa 16. mars síðastliðinn. Stjórnin er skipuð þeim Óttari Pálssyni, hæsta­ réttarlögmanni og einum eiganda LOGOS, Alan J. Carr, bandarískum lögmanni og ráðgjafa, Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni, formanni slitastjórnar, og Paul Copley, endur­ skoðanda og einum eigenda PwC í London. Þá mun Bandaríkjamaður­ inn John P. Madden, sem hefur stýrt framtakssjóðum hjá Arcapita Bank í London, starfa náið með Kaupþingi við söluferlið. Var hann fenginn til liðs við Kaupþing nýlega fyrir til­ stuðlan Keiths Magliana, sjóðsstjóra hjá vogunarsjóðnum Taconic Capi­ tal, áhrifamesta kröfuhafa Kaup­ þings. n Ráðgjafi Seðlabankans Steinar Þór Guðgeirsson. Hörður Ægisson hordur@dv.is Mögulegt gengi við sölu** Það sem færi til stjórnvalda Það sem færi til kröfuhafa 0,6 85 16 0,7 91 27 0,8 96 38 0,9 104 47 1 113 55 Samkvæmt afkomuskiptasamningi fær ríkið þriðjung af söluandvirði yfir 100 milljörðum. Ef hluturinn selst á meira en 140 milljarða fær ríkið helming umfram þá upphæð en þrjá fjórðu þess sem er yfir 160 milljarða. Sala á 87% hlut í Arion banka* *Miðað við eigið fé Arion banka er sá hlutur bókfærður á 168 milljarða **Sölugengi miðað við bókfært eigið fé bankans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.