Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Síða 4
4 Fréttir Helgarblað 1.–4. apríl 2016
Hópefli í fákaseli
Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.Is | símI: 483 5050
Matur, drykkur
og skemmtun
S
tjórn Ríkisútvarpsins hefur
fengið í hendur drög að nýj
um þjónustusamningi við ís
lenska ríkið. Samningurinn
hljóðar upp á ríkisframlag upp á
3.725 milljónir króna. Því til viðbótar
eru tekjur RÚV á árinu og er áætlað
að heildarrekstrarfé stofnunarinn
ar verði um 5.600 milljónir króna á
þessu ári.
Helsta breytingin í nýja þjónustu
samningnum er að hlutur sjálfstætt
starfandi framleiðenda er tvöfaldað
ur. Í fyrri samningi, sem gerður var
árið 2011, var hlutur sjálfstætt starf
andi framleiðenda um fjögur pró
sent en er samkvæmt heimildum DV
í þessum samningi um átta prósent
af tekjum RÚV.
Sá þjónustusamningur sem nú
er til yfirlestrar hjá stjórn RÚV mun
gilda til ársins 2020. Með honum er
lögð aukin áhersla á menningarlegt
gildi RÚV og birtist það best í aukn
um fjármunum til sjálfstætt starfandi
framleiðenda. Þær tekjur sem RÚV
hefur úr að spila jafngilda um 15,3
milljónum króna á degi hverjum.
Samkvæmt heimildum DV er gert
ráð fyrir því að nýr þjónustusamn
ingur verði undirritaður strax eftir
helgi. n
RÚV eflir menningu
Framlag til sjálfstætt starfandi framleiðenda tvöfaldað
Gætir hagsmuna ríkisins
í söluferli Arion banka
n Steinar Þór eftirlitsmaður stjórnvalda inn í Kaupþingi n Lífeyrissjóðir gætu senn gert tilboð
F
yrrverandi formaður
skilanefndar Kaupþings mun
hafa það hlutverk að gæta
hagsmuna íslenska ríkisins
samhliða söluferli á 87%
hlut Kaupþings í Arion banka. Sam
kvæmt heimildum DV hafa stjórn
völd þannig fengið hæstaréttarlög
manninn Steinar Þór Guðgeirsson,
sem var formaður skilanefndar
Kaupþings á árunum 2008 til 2012, til
að vera sérstakur eftirlitsmaður inni í
Kaupþingi og fylgjast með söluferl
inu og tryggja að ekki verði gengið
á hagsmuni ríkisins. Steinar hefur
unnið sem ráðgjafi fyrir Seðlabanka
Íslands undanfarin misseri og situr
meðal annars í stjórnum margra fé
laga sem voru framseld til ríkisins í
byrjun þessa árs sem hluti af stöð
ugleikaframlagi kröfuhafa gömlu
bankanna.
Íslensk stjórnvöld eiga gríðar
legra hagsmuna að gæta við sölu á
Arion banka vegna afkomuskipta
samnings sem gerður var við kröfu
hafa slitabúsins í fyrra. Ef hlutur
Kaupþings verður seldur í samræmi
við bókfært eigið fé Arion banka í lok
síðasta árs þá mun ríkið fá um 113
milljarða króna í sinn hlut. Söluand
virðið sem rennur til ríkisins verð
ur hins vegar aðeins ríflega 90 millj
arðar ef hluturinn selst á gengi sem
nemur 0,7 miðað við bókfært eigið fé
en það er núna tæplega 193 milljarð
ar. Fyrir utan 87% eignarhlut Kaup
þings þá á ríkið sem kunnugt er 13%
hlut í bankanum.
Tilboð í vændum
Að fá inn sérstakan eftirlitsmann
inn í Kaupþing til að fylgjast með
söluferlinu, þar sem hann mun geta
krafist ítarlegra upplýsinga í tengsl
um við fyrirhugaða sölu á Arion
banka, var á meðal þeirra skilyrða
sem voru sett kröfuhöfum Kaup
þings þegar þeir samþykktu stöð
ugleikaskilyrði stjórnvalda. Eins og
upplýst var um í DV í nóvember í
fyrra þá fóru stjórnvöld einnig fram
á skilmála sem veitir þeim heimild til
forkaupsréttar á 87% hlut Kaupþings
ef til stendur að selja hann á verði
sem er umtalsvert lægra en bókfært
eigið fé bankans. Þannig er talið nær
útilokað, samkvæmt heimildum DV,
að stjórnvöld myndu sitja aðgerðar
laus hjá ef Kaupþing hyggst til dæm
is selja hlutinn til fjárfesta á genginu
0,6 til 0,7 miðað við eigið fé Arion
banka.
Afar ólíklegt verður þó að telja að
það muni koma til þess að stjórn
völd telji nauðsynlegt að nýta sér
slíkt forkaupsréttarákvæði. Ítrekað
hefur komið fram í fjölmiðlum að
hópur lífeyrissjóða, sem er leiddur
af stærstu lífeyrissjóðum landsins,
hafi á undanförnum mánuðum átt
í óformlegum viðræðum við fulltrúa
slitastjórnar Kaupþings um kaup á
hlut í Arion banka. Væntingar eru
um að skriður komist á söluferlið
nú þegar ný stjórn hefur tekið við
Kaupþingi og fjármálaráðgjafar líf
eyrissjóðanna, ráðgjafafyrirtækið
Icora Partners, hafa fengið aðgang
að rafrænu gagnaherbergi þar sem
finna má ítarlegar upplýsingar um
fjárhag og rekstraráætlanir bankans
næstu árin. Þannig vonast lífeyris
sjóðirnir til þess, samkvæmt heim
ildum DV, að hægt verði að koma
fram með tilboð í bankann í kring
um næstu mánaðamót.
Selji 45% hlut
Rétt eins og greint var frá í Við
skiptaMogganum um miðjan síðasta
mánuð er áformað að lífeyrissjóðirn
ir kaupi 45% hlut í Arion banka. Þá
hafa sjóðirnir – undir forystu Lífeyr
issjóðs verslunarmanna, Lífeyris sjóðs
starfsmanna ríkisins og Gildi lífeyris
sjóðs – þrýst á um að verði þau kaup
að veruleika þá muni Kaupþing jafn
framt í kjölfarið selja 5% hlut í útboði
til almennings. Kaupþing hefði síðan
nærri þrjú ár til að selja þann 37% hlut
sem eftir stæði til annarra fjárfesta, að
öllum líkindum fag og einkafjárfesta.
Ekki þarf að koma á óvart að
stjórn Kaupþings kjósi að selja 45%
hlut í bankanum í fyrstu atrennu
en sé tekið mið af bókfærðu eigin fé
Arion banka gæti hluturinn selst á
um 87 milljarða króna. Þeirri fjárhæð
yrði þá ráðstafað til að greiða upp
að fullu 84 milljarða veðskuldabréf
sem Kaupþing gaf út til stjórnvalda
og þannig komast hjá því að þurfa
að greiða fyrstu afborgun af skulda
bréfinu. Er bréfið til þriggja ára, í
samræmi við þann tíma ramma sem
hluthafar Kaupþings hafa til að finna
kaupanda að 87% hlutnum í Arion
banka, og ber 5,5% vexti, eða sem
nemur 4,6 milljörðum á ári. Þrátt
fyrir að ekki liggi endanlega fyrir á
hvaða verði hluturinn yrði seldur til
lífeyrissjóðanna þá er talið líklegt að
þeir þurfi að greiða fyrir hann mið
að við gengi sem er mjög nálægt bók
færðu virði bankans.
Ný stjórn tekin við
Söluferlið á hlut Kaupþings í Arion
banka er núna á forræði nýrrar
stjórnar félagsins sem tók til starfa
16. mars síðastliðinn. Stjórnin er
skipuð þeim Óttari Pálssyni, hæsta
réttarlögmanni og einum eiganda
LOGOS, Alan J. Carr, bandarískum
lögmanni og ráðgjafa, Jóhannesi
Rúnari Jóhannssyni, formanni
slitastjórnar, og Paul Copley, endur
skoðanda og einum eigenda PwC í
London. Þá mun Bandaríkjamaður
inn John P. Madden, sem hefur stýrt
framtakssjóðum hjá Arcapita Bank í
London, starfa náið með Kaupþingi
við söluferlið. Var hann fenginn til
liðs við Kaupþing nýlega fyrir til
stuðlan Keiths Magliana, sjóðsstjóra
hjá vogunarsjóðnum Taconic Capi
tal, áhrifamesta kröfuhafa Kaup
þings. n
Ráðgjafi Seðlabankans Steinar Þór
Guðgeirsson.
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Mögulegt gengi
við sölu**
Það sem færi til
stjórnvalda
Það sem færi til
kröfuhafa
0,6 85 16
0,7 91 27
0,8 96 38
0,9 104 47
1 113 55
Samkvæmt afkomuskiptasamningi fær ríkið þriðjung af söluandvirði yfir 100 milljörðum. Ef hluturinn selst á
meira en 140 milljarða fær ríkið helming umfram þá upphæð en þrjá fjórðu þess sem er yfir 160 milljarða.
Sala á 87% hlut í Arion banka*
*Miðað
við eigið fé
Arion banka
er sá hlutur
bókfærður á
168 milljarða
**Sölugengi
miðað við
bókfært eigið
fé bankans.