Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Blaðsíða 9
Fréttir 9Helgarblað 1.–4. apríl 2016
Mexíkósk stemning
eins og hún gerist best
Opið frá 11–21, mán.–lau.
RÉTTUR DAGSINS
1690.-
taqueria
MEXICAN � VEGAN
Ármúli 21 • 552 4343 • Facebook.com/taqueria
Ekki eðlilegt og heilbrigt verklag
F
jármálaeftirlitið telur að verk-
lagi við sölu Landsbankans á
31,2 prósenta eignarhlut hans
í Borgun árið 2014 hafi verið
áfátt og ekki til þess fallið að
skila bestri niðurstöðu fyrir bank-
ann. Fjármálaeftirlitið metur það svo
að verklag bankans við söluna hafi
ekki að öllu leyti samræmst eðlileg-
um og heilbrigðum viðskiptaháttum
á fjármálamarkaði samkvæmt lögum
þar um. Þetta er niðurstaða athugun-
ar Fjármálaeftirlitsins (FME) á við-
skiptaháttum Landsbankans vegna
sölu á hlut bankans í Borgun hf. í
lokuðu ferli fyrir 2,2 milljarða króna.
Greiðslur sem ekki var samið um
Það var 25. nóvember 2014 sem
Landsbankinn seldi 31,2 pró-
senta eignarhlut sinn í Borgun hf.
til annars vegar eignarhaldsfélags-
ins Borgunar slf., sem er í eigu hóps
fjárfesta, og hins vegar BPS ehf., sem
er í eigu tiltekinna starfsmanna og
stjórnenda Borgunar. Hluturinn var
seldur sem fyrr segir á 2,2 milljarða
en ekki í opnu söluferli sem síðar var
harðlega gagnrýnt.
Það var síðan í byrjun nóvember
2015 sem tilkynnt var á vefsíðu Visa
Europe að samningar hefðu tek-
ist um kaup Visa Inc. á Visa Europe,
fyrir allt að 21,2 milljarða evra, eða
sem nemur um 3.000 milljörðum
króna. Yfirtakan byggði á valrétti til
99 ára milli Visa Inc. og Visa Europe
frá árinu 2007. Í tilkynningu FME
segir að áhrif samrunans séu meðal
annars þau að Borgun, rétt eins og
Valitor, mun fá hlutdeild í söluvirði
Visa Europe. Hins vegar kom í ljós að
í kaupsamningi um sölu á eignarhlut
Landsbankans í Borgun hefði ekki
verið samið sérstaklega um viðbótar-
greiðslu kaupverðs, kæmi til þess að
þessi valréttur yrði nýttur og Borgun
öðlaðist umræddan rétt til greiðslna
vegna hans. Það hafi hins vegar verið
gert í kaupsamningi Landsbankans
vegna sölu á eignarhlut hans í Va-
litor, en viðræður um þau viðskipti
höfðu farið fram á svipuðu tímabili
og viðskiptin með Borgun, á ár-
inu 2014. Viðskiptunum með hlut
Landsbankans í Borgun lauk þó fyrr.
Rík krafa um fagmennsku
Þegar þetta var afhjúpað hóf FME
athugun á starfsháttum Landsbank-
ans í tengslum við söluna á hlutn-
um í Borgun. „Var markmið hennar
að kanna hvort verklag bankans við
framkvæmd sölunnar á Borgun sam-
ræmdist eðlilegum og heilbrigðum
viðskiptaháttum og venjum á fjár-
málamarkaði, sbr. 1. mgr. 19. gr. laga
nr. 161/2002 um fjármálafyrirtækið,“
segir í tilkynningu FME, með áður-
greindum niðurstöðum að svo hafi
ekki verið. FME segir að ítarleg upp-
lýsinga- og gagnaöflun hafi farið fram
til að varpa ljósi á framkvæmd bank-
ans. Er vísað til 1. greinar laga um
fjármálafyrirtæki; að þeim beri að
starfa á heilbrigðan og eðlilegan hátt
með hagsmuni viðskiptavina, hlut-
hafa og alls þjóðarbúsins að leiðar-
ljósi.
„Í því samhengi er það mat Fjár-
málaeftirlitsins að gera verði sér-
staklega ríka kröfu til fagmennsku
og vandvirkni í vinnubrögðum þegar
verið er að selja eignir í eigu við-
skiptabanka að stærstum hluta í eigu
ríkisins, ekki í opnu söluferli og með
einn tilboðsgjafa.“
Í lok tilkynningar greinir FME frá
því að þar sem Landsbankinn hafi að
eigin frumkvæði tilkynnt eftirlitinu að
hann hafi í hyggju að grípa til nánar
tilgreindra aðgerða, í því skyni að taka
þá þætti í starfsemi sinni er málið
varða til endurskoðunar, telji stofn-
unin ekki tilefni til frekari aðgerða að
svo stöddu. „En óskar þó eftir að vera
upplýst um framgang endurskoðunar
á verklagi, eftir því sem við á.“
Bankinn læri af reynslunni
Landsbankinn sendi sömuleiðis frá
sér tilkynningu á fimmtudag þar sem
ný stefna og verkferlar um sölu eigna
bankans eru útlistaðar nánar.
„Bankinn harmar að sölumeð-
ferðin á hlutnum í Borgun hafi varp-
að skugga á þann árangur sem bank-
inn hefur náð á undanförnum árum.
Bankinn tekur málið mjög alvarlega
og hefur einsett sér að læra af reynsl-
unni.“ Í tilkynningu bankans segir að
engar annarlegar hvatir eða sjónar-
mið hafi legið að baki sölunni á þann
hátt sem hún var framkvæmd, bank-
inn hafi einfaldlega engar upplýs-
ingar haft um að Borgun ætti rétt á
hlutdeild í áðurnefndum valréttar-
greiðslum. Bankaráð Landsbankans
hafi því samþykkt aðgerðaáætlun til
að efla stjórnarhætti bankans varð-
andi sölu eigna sem miði að því að
koma í veg fyrir að sambærileg álita-
mál komi aftur upp, auka gagnsæi og
traust til bankans. n
Landsbankinn fær á baukinn frá FME vegna Borgunarmálsins og lofar að læra af reynslunni
Harðlega gagnrýnd sala Bankasýsla ríkisins fór fram á að bankaráð Landsbankans og Steinþór Pálsson bankastjóri vikju vegna
Borgunarmálsins. Bankaráðið gekk út en Steinþór situr áfram.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is