Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Page 12
12 Fréttir Helgarblað 1.–4. apríl 2016
Kaupmenn með gjaldeyrisglampa í augum
n Gríðarleg álagning á neysluvöru í minjagripaverslunum n Erlendir ferðamenn féflettir n Möndlupokinn á 990 krónur og verðmunurinn 120 prósent
Þ
að getur verið allt að 120 pró-
sentum dýrara fyrir erlenda
ferðamenn að kaupa sæl-
gæti og aðra neysluvöru sem
beint er sérstaklega að þeim
í minjagripa- og matvöruverslunum
í hjarta miðbæjarins en sambæri-
legar vörur í hefðbundnum matvöru-
verslunum. Þetta var meðal þess sem
athugun DV á mögulegu okri á ferða-
mönnum leiddi í ljós.
Blaðamaður gerði sér ferð í mið-
bæinn á sólríkum miðvikudegi og
það sem fyrir augu bar gaf fyrirheit
um það sem koma skal í sumar miðað
við spár. Laugavegurinn iðaði af lífi og
minnti helst á helgartraffík á sólríkum
sumardegi. Yfirgnæfandi meirihluti
var erlendir ferðamenn sem sjá mátti
stökkva inn og út úr verslunum.
Raunar var merkilegt um að litast í
miðbænum í ljósi þess að aðeins var
30. mars og enn nokkuð í háanna-
tíma ferðaþjónustunnar. Mikið hefur
verið fjallað um hótelbyggingar, svo-
kallaðar lundabúðir sem spretta upp
eins og gorkúlur og því gert skóna
að kaupmenn í miðbænum séu með
gjaldeyrisglampa í augum. Hefur
jafnvel verið talað um okur þegar
verslanir reyna að hafa sem mest út
úr viðskiptum sínum í ferðamanna-
sprengingu undanfarinna ára.
Lundabúðir sópa til sín
Þeir ferðamenn sem ekki voru með
símann á lofti í leit að hinni full-
komnu mynd voru með veskin við
hönd í mannhafi Laugavegar þennan
miðvikudag. Nýlega greindi Rann-
sóknarsetur verslunarinnar frá því
að erlend greiðslukortavelta í febrúar
síðastliðnum hafi numið 13,2 millj-
örðum króna, sem er 67% aukning
frá því á sama tíma í fyrra. Að meðal-
tali eyddi hver erlendur ferðamaður
á Íslandi 122 þúsund krónum með
greiðslukorti sínu í fyrra. Og miðað
við framboðið víðs vegar í miðborg
Reykjavíkur er ekki ósennilegt að
einhverjum hluta þeirrar upphæðar
eyði þeir í minjagripaverslunum. Og
miðað við athugun DV þá eru þeir
jafnvel að eyða meiru en þeir þyrftu
að gera.
Vatnsflöskufár
Spár Isavia gera ráð fyrir að 1,7 millj-
ónir ferðamanna komi til landsins
í ár, ríflega hálfri milljón fleiri en í
fyrra. Blaðamanni lék því forvitni á
að vita hversu hraustlega væri lagt á
sælgæti, drykkjarvatn og ýmiss kon-
ar vöru í sérverslunum þar sem er-
lendir ferðamenn eru markhópurinn
sem og í matvöruverslunum sem
finna má í hjarta ferðamannaflaums-
ins í miðbænum. Í vikunni fór sem
eldur í sinu um Facebook færsla um
álagningu á Iceland Spring vatns-
flösku hér á landi samanborið við í
Taílandi. Þar kostaði 500 ml. flaska
349 krónur í Select við Vestur-
landsveg en aðeins 160 krónur á
McDonald‘s í Taílandi. Þegar betur
er að gáð virðist hins vegar aðeins
um álagningu verslunarinnar hér að
ræða því sama vatn kostar 139 krón-
ur í Hagkaupum.
DV vildi því skoða hvort hægt
væri að finna tilteknar vörur í ferða-
mannaverslunum miðbæjarins og
bera verð á þeim saman við verð
á sömu eða sambærilegri vöru í
t.d. Hagkaupum. Hagkaup er ekki
svokölluð lágvöruverðsverslun en
engu að síður kom í ljós að sláandi
munur er á álagningu á vörum sem
beint er sérstaklega að erlendum
ferðamönnum. Gjafavöruverslan-
irnar á Laugaveginum eru flestar af
sama toga, vöruúrvalið einsleitt og
einkennist af lundatuskudýrum í öll-
um stærðum, kaffibollum, lyklakipp-
um, sums staðar er að finna þar ís-
lenska hönnun en skran af ýmsum
toga er þó í miklum meirihluta. Að
ógleymdu íslenska sælgætinu sem
hér var sérstaklega skoðað vegna
þess að þar er auðveldara að finna
samanburðinn í matvöruverslunum
en á t.d. lundatuskudýrum.
Svívirðileg álagning
DV hefur áður fjallað ítarlega um
minjagripasælgætið sem fyrirtækið
Ísland Treasures kaupir af íslensk-
um framleiðendum á borð við Freyju
og Kólus, setur í nýjar umbúðir fyrir
erlenda ferðamenn og eru vörurnar
síðan seldar á uppsprengdu verði í
lundabúðunum. Eitt slíkt dæmi var
í versluninni Ísbirninum við Lauga-
veg. Þar mátti finna 150 gramma
poka af Icelandic Lava Sparks,
sem flestir Íslendingar þekkja
betur sem möndlur frá
Freyju. Pokinn kostaði 990
krónur í Ísbirninum á með-
an möndlupoki sömu stærð-
ar kostar 249 krónur í Hag-
kaupum. Þar munar
tæplega 120 prósentum
á verði á sömu vöru
í öðrum búningi.
Framkvæmdastjóri
Ísland Treasures hef-
ur áður lýst því í við-
tali við DV að álagn-
ing verslananna ráði
mestu um verðið.
Þegar poki af Lava
Sparks möndlum
kostaði 879 krón-
ur, árið 2014, upp-
lýsti hún að fyrirtæki
hennar seldi versl-
unum vöruna á 420
krónur. Mismunur-
inn væri því álagn-
ing verslana. Fer
því ekki á milli
mála að verið er
að okra á ferða-
mönnum í sæl-
gætiskaupum.
Fleiri sælgætis-
tegundir sem Íslendingar þekkja
undir öðrum nöfnum er að finna í
flestum þessara minjagripaversl-
ana, á uppsprengdu verði.
Vatnið 88% dýrara í hjarta
túrismans
Úr því að mikið hefur verið fjallað
um vatnsflöskuokur að undan-
förnu, allt frá því að Hótel Adam
varð uppvíst að því að ráða gestum
sínum frá því að drekka kranavatnið
þar, og kaupa þess í stað vatn merkt
hótelinu á 400 krónur – þegar ekk-
ert var að kranavatninu og vatns-
flöskurnar innihéldu sama krana-
vatn – ákvað blaðamaður að
taka vatnsdæmi. Við Ing-
ólfstorg, umkringt hótelum
og gistiheimilum er mat-
vöruverslunin Kvosin. Opið
er á milli matvöruverslunar-
innar og gjafavöruverslunar
fyrir ferðamenn, þar sem
finna má fokdýrt sæl-
gæti og ýmsan varning.
En í matvöruversl-
uninni kostar hálfur
lítri af Pure Icelandic
vatni 279 krónur. Í
Hagkaupum kostar
sama vatn 109 krónur.
Munurinn er tæplega
88 prósent. Á veitinga-
stað Hörpu, sem ótal
ferðamenn heim-
sækja, kostaði flaska af
vatni 250 krónur.
Salt selt í bóka-
búðum
Sem fyrr segir má víða
finna íslenska fram-
leiðslu og gæðavörur
í gjafavöruverslun-
um miðbæjarins. Og
þó að bókabúðir hafi
um árabil boðið upp
á margvíslega gjafa-
vöru, þá kom það hins vegar blaða-
manni verulega á óvart að þær væru
farnar að selja salt. Nánar tiltek-
ið íslenskt flögusalt. Algengt var að
sjá ýmsar tegundir frá Norður Salt,
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Vatnið verðmætt Ljóst er
að mikil verðmæti eru í íslenska
vatninu en líka í ljósi þess hvernig
verslanir verðleggja það. Mynd VífiLfeLL
VIÐ
HREINSUM
ÚLPUR!
Verð frá kr. 2.790 til kr. 3.990.
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is