Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Page 16
U pplýsingar um eignir áhrifa- manna og maka þeirra í aflandsfé- lögum hafa sett ís- lensk stjórnmál á hliðina, enn einu sinni. Málið hófst þegar Anna Sigurlaug Páls- dóttir, eiginkona Sigmund- ar Davíðs Gunnlaugssonar, upplýsti á Facebook-síðu sinni, eftir fyrirspurnir blaðamanna, að hún ætti eignarhalds- félag erlendis sem síðar kom í ljós að var staðsett á Bresku Jómfrúareyj- um, þekktu skattaskjóli. Um nokkurra daga skeið sætti forsætisráðherra stöðugri gagnrýni og gerðu skýringar hans, þegar þær loksins komu, lítið til að draga úr óánægjunni. Hæpnar skýringar Bjarna Málið tók á sig allt aðra mynd þegar Eyjan skýrði frá því í byrjun vikunnar að formaður og varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal, væru einnig tengd félögum sem skráð voru í þekktum skattaskjól- um. Útskýringar þeirra hafa fallið í mis- jafnan farveg. Þannig hafa flestir tekið skýringu Ólafar, um að hún hafi ásamt eiginmanni sínum fengið umboð fyrir aflandsfélagi sem þau síðan aldrei tóku yfir, góðar og gildar. Skýringar Bjarna, um að hann hafi talið sig eiga félag í Lúxemborg en ekki Seychelles-eyjum, þykja öllu hæpnari. Annars vegar er stigsmunur en ekki eðlismunur á Lúx- emborg og Seychelles-eyjum og hins vegar er það ekki traustvekjandi að fjármálaráðherra þjóðarinnar hafi ekki betri yfirsýn yfir fjármál sín en að hann viti ekki hvar í heiminum hann geymdi 40 milljónir króna. Höfuð eru þegar byrjuð að fjúka vegna skattaskjólslistanna, en vafa- laust ekki það höfuð sem fyrirfram mátti búast við áður en málið komst í hámæli. Var það gjaldkeri Samfylk- ingarinnar, Vilhjálmur Þorsteinsson, sem gekkst við ábyrgð í fyrrakvöld, miðvikudag, í kjölfar frétta af félögum hans í Lúxemborg og Kýpur. Vilhjálm- ur sagði í pistli á Eyjunni að flókin viðskipti hans samræmist ekki stöðu gjaldkera stjórnmálaflokks. Mat Vil- hjálms er vafalaust rétt því umræðan í kring- um viðskipti hans voru farin að draga athyglina frá andstæðingunum í ríkisstjórninni, en með því að segja embættinu lausu sama dag og mál hans komu til um- fjöllunar bein- ir hann athyglinni að ráðherrunum og eykur um leið þrýstinginn á þá. Aðkoma Bjarna og Ólafar breytti gangi málsins Stjórnarandstaðan hefur vitanlega gert sér mat úr málinu og íhugaði lengi vel að leggja fram vantrauststillögu á hendur forsætisráðherra. Niðurstaða funda vikunnar varð hins vegar sú að leggja fram tillögu um þingrof og nýjar kosningar. Vafalaust hefur að- koma Bjarna og Ólafar þar spilað inn í. Áður en nöfn þeirra voru dregin inn í umræðuna var jafnvel rætt um að ákveðnir þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins, sem voru orðnir þreyttir á tilburð- um Sigmundar Davíðs, myndu styðja tillöguna, eða í það minnsta ekki greiða atkvæði gegn henni. Það er úti- lokað nú þegar þeirra eigin formenn eru einnig undir smásjánni. Líkleg þróun, að því gefnu að nýj- ar og eldfimar upplýsingar komi ekki upp á yfirborðið, er að þingmeirihlut- inn þétti raðirnar og verjist þingrofs- tillögu minnihlutans. Ríkisstjórnin situr út kjörtímabilið, löskuð en eigi að síður með traustan meirihluta til að koma sínum málum í framkvæmd. Málið mun þó fylgja stjórninni fram á kosningavetur þar sem hvert tæki- færi verður notað til að draga það upp á yfirborðið, rétt eins og núverandi stjórnarflokkar hafa notað Icesave- málið til að koma höggi á sína and- stæðinga. Það má líka spyrja sig hversu mikið er á bak við kröfu stjórnarandstöðu- flokkanna um tafarlausar kosningar. Píratar eru væntanlega eini stjórnar- andstöðuflokkurinn sem hefur and- lega burði til að ganga í gegnum kosn- ingar eins og staðan er í dag. Fylgi í könnunum er í hámarki og telji þeir sig geta mannað alla lista svo sómi sé að geta þeir vart beðið eftir að inn- leysa fylgið. Kosningar eru það síð- asta sem hinir stjórnarandstöðu- flokkarnir ættu að hugsa um þessa stundina. Samfylkingin er sem stend- ur án forystu. Fyrir liggur að kosið verður um nýja forystu í byrjun júní og enn er óvíst hvort núverandi formað- ur fari fram. Björt framtíð hefur um nokkra hríð ekki mælst með mann inn á þingi og VG hef- ur ekki náð vopnum sínum. Enn fremur, þótt Katrín Jakobsdóttir hafi gefið afsvar um forseta- framboð kann sú staða að koma upp í kosningabar- áttunni í vor að þrýst verði á hana aftur og að sú staða verði með þeim hætti að erfitt verði fyrir hana að skorast undan. Lög eða siðferði Skattaskjólsmálið er óhefðbundið borið saman við önnur mál, t.d. leka- málið, því ekki deilt um hvort ráð- herrarnir hafi farið á svig við lög, því eins og útskýrt er hér til hliðar er ekk- ert sem bannar að þeir eigi aflands- félag. Málið snýst öllu heldur um siðferði og til marks um það hafa fjölmiðlar frekar leitað álits heim- spekinga á því en lögfræðinga. Sú málsvörn ráðherranna að þeir hafi ekki brotið lög hefur ekkert gert til Helgarblað 1.–4. apríl 2016 s: 426 5000 - booking@bbkefairport.is - bbkeflavik.com Vetrartilboð út apríl 9.900 kr. fyrir 2 með morgunmat Við geymum bílinn frítt, keyrum þig á flugvöllinn og sækjum þig við heimkomu Láttu fara vel um þig nóttina fyrir eða eftir flug og gistu hjá okkur 16 Umræða Stjórnmál Ríkisstjórn í skugga skattaskjólsgagna n Upplýsingar um eignir Íslendinga í skattaskjólum koma ráðherrum í vandræði n Ekki bara á exótískum eyjum n Íslendingar eiga yfir 30 milljarða á Tortóla Magnús Geir Eyjólfsson mge@eyjan.is Freyr Rögnvaldsson freyr@eyjan.is Ólöf Nordal innanríkisráðherra n Dooley Securities S.A. n Stofnað af Landsbankanum í Lúxemborg. n Skráð á Bresku Jómfrúareyjum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra n Wintris Inc. n Stofnað af Landsbankanum í London. n Skráð á Bresku Jómfrúareyjum. n Í eigu Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar. Bresku Jómfrúar- eyjar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.