Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Blaðsíða 27
Kynningarblað - Austurlenskur gæðamatur 7Helgarblað 1.–4. apríl 2016
Frábært sýrlenskt kebab
og dásamleg þjónusta
Mandi, Veltusundi 3b, er einstakur staður í hjarta borgarinnar
M
andi er einstakur staður í
hjarta borgarinnar, stað-
settur að Veltusundi 3b.
Staðurinn er afar vinsæll
meðal ungs fólks sem
margt sækir sér gott í gogginn þar
um nætur. Fyrir utan frábærlega
bragðgóða kebab-rétti og ham-
borgara lætur unga fólkið afskaplega
vel af persónulegri, þjónustu, glað-
værð og hlýlegri framkomu sem það
mætir alltaf hjá starfsfólki staðarins.
Að sögn eigendanna er starfsfólk
þeirra mjög glaðlynt og lagt er upp
úr persónulegri þjónustu og góðum
húmor.
Mandi er í eigu hjónanna Hilal,
sem er frá Sýrlandi, og Ivonu, sem er
pólsk. Kebab-réttir staðarins flokkast
undir sýrlenska matargerð en þeir
eru með kjúklingi, skelfiski og bol-
fiski; en síðan eru einnig í boði ham-
borgarar sem þykja mjög góðir.
Mandi er í senn grillstaður og lítil
verslun en ekki er selt áfengi á staðn-
um. Selt er sælgæti, snakk, gos og
helstu matvörur, en mesta aðdrátt-
araflið, fyrir utan yndislega þjón-
ustuna, hefur maturinn.
Afgreiðslutíminn á Mandi er lang-
ur. Virka daga er opið frá kl. níu á
morgnana til tvö á nóttunni en um
helgar er opið fram til klukkan sex
um morguninn. Mest er að gera á
staðnum í hádeginu, um kvöldmat-
arleytið og á nóttunni (um helgar).
Vinnandi fólk í nágrenninu fyllir
staðinn í hádeginu, en þó ekki síst
háskólastúdentar og framhalds-
skólanemar. Í kvöldmat koma síðan
aðrir fastagestir og unga fólkið sem
skemmtir sér í miðbænum um helg-
ar fyllir síðan staðinn um nætur, eins
og áður sagði.
Það er einstakt andrúmsloft á
Mandi og sjálfsagt að hvetja þá sem
ekki hafa komið þangað að kynna sér
þetta skemmtilega blóm í flóru mið-
bæjarlífsins. Nánar má kynna sér
staðinn á heimasíðu hans og á Face-
book. n