Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Side 34
Helgarblað 1.–4. apríl 2016
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Ég fór í laseraðgerð hjá Sjónlagi í lok maí 2015. Keypti mér
Thealoz dropana eftir aðgerðina og var mjög ánægð, ákvað
samt að prufa að kaupa mér ódýrari dropa og fann rosalega
mikinn mun á gæðum. Þessir ódýrari voru bara ekki að
gera neitt fyrir mig og þurfti ég að nota mikið meira magn.
Mælti með dropunum við tengdamömmu og er hún alsæl
með Thealoz dropana.
Elín Björk Ragnarsdóttir
Þurrkur í augum?
Thealoz augndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
26 Skrýtið Sakamál
Þ
að skipti engu máli hvert
Belginn Renaud Hardy fór,
alltaf var Canon-myndavél-
in innan seilingar. Hardy bjó
í Mechelen, þorpi norður af
Brussel, sagðist vera eftirlitsmaður í
íþróttahöll en hafði, árið 2015, ekki
unnið ærlegt handtak í ellefu ár – var í
veikindaleyfi að eigin sögn vegna Park-
inson-veiki – en varið tíma sínum í ljós-
myndun.
Á meðal þess sem Hardy gerði var
að bjóða konum upp á stúdíómynda-
töku á heimili hans og var það reglan
en ekki undatekningin þegar leið á
myndatökuna að hann byði þeim upp
á nektarmyndatöku. Þegar konurnar
afþökkuðu slíkt brást hann gjarna hinn
versti við.
Njósnir Hardys
Innan tíðar hafði Hardy komið sér upp
frekar vafasömu orðspori sem kyn-
ferðisleg pest og var kallaður Bilaði
Renaud. Ekki bætti úr skák þegar hann
keypti sér flygildi (e. drone) sem hann
notaði í tíma og ótíma til að njósna um
fólk.
Steininn tók úr þegar hann kom
einn daginn inn á hverfisbarinn með
stóra útprentaða mynd sem hann hafði
tekið af eiginkonu eiganda kráarinn-
ar, án hennar vitundar. Hardy
var umsviflaust varpað á dyr.
Hardy handtekinn
En Hardy virtist þó vera
meinleysisgrey og íbú-
ar í Mechelen töldu sig
geta umborið hann. Á
því varð dramatísk
kúvending í septem-
ber 2015.
Þá skaut Hardy
úr loftriffli á unga
konu sem hjólaði
í mestu mak-
indum eftir
sýkisbakk-
anum í
þorp-
inu. Konan beið ekki boðanna, steig
fetlana sem hraðast hún mátti og
komst að heimili sínu sem var skammt
undan. Hardy óttaðist að konan hefði
borið á hann kennsl og skipti um núm-
ersplötur á bíl sínum til öryggis.
Áhyggjur Hardys áttu rétt á sér því
daginn eftir var hann handtekinn.
Kókaín og klám
Við rannsókn á íbúð
Hardys kom ýmislegt
miður huggulegt upp
úr kafinu. Lögreglan
fann leifar af kóka-
íni og klámmynd-
ir í bunkum í tölv-
unni.
Hardy hafði
skýringar
á reiðum
höndum;
kókaín-
ið var til-
komið
vegna
veik-
inda
hans
og klámið hafði hann – að sjálfsögðu –
halað niður fyrir einskær mistök.
Fyrir dómi útskýrði Hardy, hálf-
umlandi, að hann hefði viljað skaða
ungu konuna á reiðhjólinu sem þó
hafði ekki fengið eina einustu skrámu.
Einhverra hluta vegna var málið
sett á bið og Hardy var frjáls ferða sinna
og síðar átti eftir að koma í ljós að þar
hefðu hrapalleg mistök verið gerð.
Kærastan myrt
Merkilegt nokk þá átti Hardy kærustu
og hafði um langt skeið. Um var að
ræða Lindu Boms, 52 ára umönnunar-
aðila fyrir fatlað fólk. Þann 16. sept-
ember, átta dögum eftir að Hardy var
sleppt, tók hann til ljósmyndabún-
að sinn og fór heim til Lindu. Þegar
Hardy yfirgaf heimili Lindu var hún
liðið lík og atburðarásina hafði Hardy
fangað á myndavél sína. Myndskeiðið
sýndi hvernig Linda hafði hörfað und-
an árásum Hardys, andlit hennar af-
skræmt af ótta meðan hún reyndi að
verjast höggunum sem hann lét rigna
yfir hana. Hardy fleygði henni í gólfið,
reif af henni fötin og nauðgaði henni.
Að því loknu barði hann hana til dauðs
með járnröri.
Gömul mál upplýst
Nágrannakona fann síðar líkið af
Lindu Boms, og Hardy, sem hafði
sagt tveimur vinum sínum hvað hann
hafði gert, var handtekinn. Lögreglan
tók lífsýni úr Hardy og bar saman við
sönnunargögn úr nokkrum óleystum
málum – niðurstaðan var óvænt. Í ljós
kom að Hardy hafði myrt Mariu Wals-
haerts, 82 ára konu sem hafði fundist
látin á heimili sonar hennar í maí 2014.
Einnig var Hardy viðriðinn morðtil-
raun í september, 2014, þar sem tæp-
lega sjötug kona slapp með skrekkinn.
Ekki er talið loku fyrir það skotið að
Hardy hafi að auki skotið 38 ára konu til
bana í Antwerpen árið 2006. Hardy ját-
aði að hafa myrt Lindu Boms en neit-
aði sök í öðrum málum. Hann bíður nú
réttarhalda. n
LeyndarmáL
Ljósmyndarans
n Myndavél Hardys geymdi margt miður geðslegt
Með bros á vör Nágrannar Hardys töldu
hann skrítinn, en meinlausan.„Þegar Hardy yfir-
gaf heimili Lindu
var hún liðið lík og at-
burðarásina hafði Hardy
fangað á myndavél sína.
Linda Boms
Dauði hennar var
ítarlega skrásettur
af Hardy.