Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Side 37
Menning 29Helgarblað 1.–4. apríl 2016 Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp, í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku. Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík / Hús Blindrafélagsins / Sími 552-2002 SAMA VERÐ Í 8 ÁR! Linsur fyrir öll tækifæri 2500 kr. Beethoven betri en Mozart Valinn bestur í árlegri vinsældakosningu Classic FM Í fyrsta skipti frá því að breska útvarpsstöðin Classic FM gaf hlustendum sínum færi á að kjósa um uppáhaldsverk sín og tónsmiði fyrir tuttugu og einu ári er það ekki Wolfgang Amadeus Mozart sem er atkvæðamestur heldur Ludwig van Beethoven. 19 verk eftir Beethoven eru á lista yfir 300 bestu tónverk allra tíma, en 16 verk eftir Mozart komast á list- ann. 170 þúsund atkvæði bárust í könnuninni í ár. Í samtali við breska dagblaðið The Guardian segist John Suchet, dagskrárgerðarmaður á Classic FM, telja að tónlist Beethovens hafi í auknum mæli verið notuð í kvikmyndir á undanförnum árum – til dæmis í Óskarsverðlauna- myndinni The King's Speech – og útskýri það líklega auknar vin- sældir tónskáldsins. Uppáhaldsverk breskra unn- enda klassískrar tónlistar var hins vegar The Lark Ascending eftir enska 20. aldar tónskáldið Ralph Waughn Williams, en verkið hefur sjö sinnum verið valið það besta frá upphafi kosninganna árið 1996. n Dauðastríð – í þykjustunni stund að deyja ekki að koma öllum tíðnum hljóð- færaleiksins fullkomlega til skila). Hún nær frekar að skapa ástand, virkar eins og tákn um fallega dramatíska tónlist frekar en að vera sérstaklega eftirminnilega falleg tónlist. Málverk af leikara Málverkið af leikaranum í dramatísku en fallegu dauðasenunni er sett inn í ramma leikhússins, þar sem aðrar leikreglur gilda en á myndlistar- sýningu, samningur listamanns og áhorfenda er annar, hefðirnar og væntingar. Við erum vön að setjast niður og horfa á leikrit í klukkustund – leyfa framvindunni að leiða hugsanir okk- ar þangað sem hún vill í þann fyrir- fram ákveðna tíma. En málverk er kyrrstætt, ef það grípur okkur stönd- um við fyrir framan það og veltum því fyrir okkur, jafn lengi og við nenn- um. Ef það grípur okkur ekki, göng- um við framhjá. Fæstir hafa eirð í sér til að sitja fyrir framan málverk í klukkustund og velta fyrir sér öllum mögulegum hliðum þess, túlkunar- möguleikum og innbyggðum hug- myndum. En í leikhúsinu hefur gesturinn gert samning um að helga sig verkinu í ákveðinn tíma. Ragnar fær leikhúsáhorfendur þannig til að setjast niður í klukku- stund og skoða myndlistarverk af leikara að leika. Þeir setjast niður og leyfa hugrenningatengslunum að leiða sig inn í það og út um allt. Það er áhugavert hvernig verkið vinnur á mörkum þessara listforma, en það þýðir auðvitað að það fer úr því að vera spennandi yfir í að vera hlægilegt, yfir í að vera leiðinlegt, vekja upp nýjar hugmyndir, yfir í að vera aftur leiðinlegt, hlægilegt, og svo framvegis. Fólki fannst það aug- ljóslega misáhugavert, enda gengu nokkrir út af sýningunni. En við sem sátum í gegnum stríð- ið fengum við smá rúsínu í pylsu- endann. Að lokum tókst aumingja leikaranum að drepast – og var þá svo endanlega dauður að hann lá áfram hreyfingarlaus þegar klappað var fyrir honum. Tjaldið reis og féll nokkrum sinnum undir uppklapp- inu, en aldrei stóð hann upp. Ragnar leikur sér á áhugaverðan (og alltaf skemmtilegan) hátt með ólík svæði listheimsins, væntingar og hefðir. Hann er alltaf á milli leik- hússins og myndlistar, nálgast leikhús eins og myndlist og myndlist eins og leikhús. Tilraunir til að kveikja tilfinningar og hugmyndir með því að teygja á einstökum atburði eða endurtaka ítrekað hafa líka reynst honum frjóar. Þó að verkið hafi verið um margt áhugavert kveikti þessi tiltekna mynd, málverkið af leikaranum, samspil tónlistar sviðsmyndar, tón- listar og leikstíls, ekkert sérstaklega sterkar tilfinningar eða frjóar hug- myndir hjá mér. Í þetta skiptið fannst mér ekki takast að skapa sérstak- lega eftirminnilega fegurð eða sterka upplifun – en þó að einhverjum gæti þótt verkið drepleiðinlegt neyddi það mann til að horfa, hlusta og hugsa. Það er meira en flest listaverk. Viðtal við Ragnar Kjartansson um Krieg á næstu síðu. n Hárómantík Ferðalangur yfir skýjahafi eftir Caspar David Friedrich frá 1818. Sviðsmynd Krieg minnir um margt á landslagsmyndir þýskra málara rómantíska tímans. Málverk af óperuflutningi Leikarar leika atriði úr Betlaraóperunni eftir John Gay. Myndin er máluð árið 1728 af breska listamanninum William Hoghart. „Að lokum tókst aumingja leikar- anum að drepast – og var þá svo endan lega dauður að hann lá áfram hreyfingarlaus þegar klappað var fyrir honum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.