Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Qupperneq 46
38 Fólk Helgarblað 1.–4. apríl 2016
LÍFRÆN EGG
nesbu.is
Í FYRSTA SINN Á ALMENNUM
NEYTENDAMARKAÐI
NESBÚ
EGG
„Heimurinn er hlaupabrautin“
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
n Daníel Gauti fékk ástríðu fyrir útihlaupum n Byrjaði í skokkhóp n Á leið í sitt fyrsta maraþon
Í
þróttir spila oft stóra rullu í félags
lífi ungra drengja og þá helst fót
bolti eða aðrar boltagreinar. Þeir
sem ekki finna sig í þessum klass
ísku íþróttagreinum geta átt und
ir högg að sækja þegar hreyfing er
annars vegar. Daníel Gauti Georgsson
kannast við framangreint enda höfð
uðu íþróttir ekki til hans á hans yngri
árum. Aftur á móti venti hann kvæði
sínu í kross fyrir nokkrum misserum
og fann ástríðu sína í útihlaupum. Nú
æfir Daníel Gauti fyrir sitt fyrsta mara
þon sem fram fer í Lyon í haust.
Þoldi illa keppni
Daníel Gauti er 18 ára mennta
skólanemi og helgarstarfsmaður í
Epal. Hann hafði snemma áhuga
á listum og sögu en minna fór fyrir
íþróttaáhuganum. Daníel Gauti seg
ir samt að áhugaleysið hafi ekki staf
að af leiðindum sökum hreyfingar
heldur vegna stöðugrar áherslu á
keppni. „Þegar ég var yngri hafði ég
mikinn áhuga á tónlist og lærði bæði
á blokkflautu og píanó. Ég hafði gam
an af sundi og ýmiss konar útiveru
og hafði líka snemma áhuga á söfn
um, listum og sögu. Mér fannst mjög
gaman að synda og í frjálsum íþrótt
um en þegar kom að því að keppa þá
missti ég áhugann. Pressan sem fylgdi
keppnum átti ekki vel við mig og í kjöl
farið dró ég mig úr íþróttinni. Ég próf
aði ýmislegt, t.d. fótbolta, handbolta,
sund og frjálsar íþróttir, en þrýstingur
á að keppa var ekki fyrir mig.“
Tengslin við náttúruna hafa
aukist
Það var því ekki fyrr en Daníel Gauti
uppgötvaði útihlaupin sem hann fann
sinn innri íþróttamann og segir hann
að þau henti sér einstaklega vel þar
sem hann geti reimað á sig skóna hvar
og hvenær sem er og sé ekki háður lík
amsræktarstöðvum eða æfingatímum.
„Ég byrjaði að hlaupa með Val
skokk í október 2014. Það tók mig smá
tíma að byggja upp þol en þegar það
var komið fann ég að þetta er íþróttin
fyrir mig. Að geta reimað á sig hlaupa
skóna, farið út, hitt skemmtilegan
hóp af fólki og hlaupið úti í góðu og
vondu veðri er frábært. Á innan við
mánuði var ég búinn að hlaupa mitt
fyrsta 10 km keppnishlaup sem var
nokkuð stór áfangi fyrir mig á þeim
tíma. Núna, rúmu einu og hálfu ári
seinna, er ég búinn að hlaupa fjögur
hálfmaraþon, þar á meðal eitt í Kaup
mannahöfn, ansi mörg 10 km hlaup
og auðvitað að mæta á æfingar hjá Val
skokk þrisvar sinnum í viku.“
Tengsl Daníels Gauta við náttúr
una hafa einnig aukist við útihlaupin
og hann dásamar einfaldleikann sem
fylgir íþróttinni. „Það er svo auðvelt
að klæða sig í fötin og drífa sig út að
hlaupa. Heimurinn er hlaupabrautin
þín og það er ekkert afmarkað svæði
sem maður stundar íþróttina sína á.
Maður getur farið út að hlaupa hvar
og hvenær sem er. Það finnst mér
mikill kostur og auk þess er þetta frá
bær útivera.“
„Engin íþróttagen í mér“
Daníel Gauti segir að hlaupin hafi
breytt viðhorfi hans til hreyfingar
þannig að hún geti raunverulega verið
skemmtileg og af hinu góða. „Það sem
hlaupin hafa gert fyrir mig er að þau
hafa kynnt mig fyrir fullt af nýju fólki
og breytt hugmyndum mínum varð
andi hreyfingu. Ég var viss um að það
væru engin íþróttagen í mér en hlaup
in hafa afsannað þá kenningu og í dag
finnst mér hreyfing bæði nauðsyn
leg og skemmtileg. Með hlaupunum
kynnist maður líka skemmtilegu fólki
en ég mæli sérstaklega með því að fólk
gangi í skokkhóp ef það er að byrja að
hlaupa eða hefur gert það í einhvern
tíma. Það er mikil hvatning að mæta á
æfingar, æfingarnar verða markvissari
og fólk getur deilt reynslu sinni.“
Það leynir sér ekki hve hugfanginn
Daníel Gauti er orðin af íþróttinni.
Hann hvetur alla til þess að finna sína
ástríðu í hreyfingu og segir það lykil
forsendu fyrir því að geta stundað
reglulega hreyfingu. „Ég hvet alla til
þess að prófa sig áfram í íþróttum og
finna eitthvað sem þeir hafa gaman af
en ég tel það meginforsendu þess að
endast í íþróttum. Það skiptir miklu
máli að hreyfa sig, sérstaklega í samfé
laginu sem við lifum í þar sem margir
sitja við tölvu megnið af deginum.“
Spáir ekki í hvort einhver sé á
undan
Daníel Gauti stefnir á sitt fyrsta heila
maraþon í Lyon í haust og segir það
markmið sumarsins að æfa fyrir það.
„Ég stefni fyrst og fremst að því að
halda áfram að hlaupa og hafa gaman
af hlaupunum. En í haust ætlar Valur
skokk í hlaupaferð til Lyon, þar sem
ég ætla að hlaupa maraþon, svo það
er markmið sumarsins að æfa fyrir
það. Aftur á móti lít ég á keppnishlaup
sem persónuleg að því leyti að mað
ur er bara að hugsa um tímann sinn
og hvort maður hafi bætt hann eða
ekki. Ég er ekki að spá í það hvort ein
hver hafi verið á undan mér.“ Að lok
um hvetur Daníel Gauti alla til þess
að prófa það að fara út að hlaupa og
hnykkir út með einu góðu „Áfram Val
ur (skokk)!“ n
Hlaupahópurinn Daníel Gauti ásamt hlaupahópnum sínum, Val skokk.
Á leið í maraþon Daníel Gauti var
sannfærður um að það væru engin
íþróttagen í sér en fann svo ástríðuna í
útihlaupum. Mynd SigTryggur Ari
„Pressan sem fylgdi
keppnum átti ekki
vel við mig og í kjölfarið
dró ég mig úr íþróttinni.