Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Blaðsíða 20
Vikublað 26.–28. apríl 20164 Heitir pottar og gufuböð - Kynningarblað Hágæði og hagstætt verð: Heitir pottar og saunavörur Goddi, Auðbrekku 19, Kópavogi F yrirtækið Goddi, Auðbrekku 19 Kópavogi, er með afar fjöl­ breytt vöruúrval og er meðal annars framarlega í sölu á heitum pottum, lokum yfir heita potta, infrarauðum sauna­ klefum og hitaklefum, auk hefð­ bundinna gufubaða og ýmiss konar búnaðar þeim tengdum. Goddi selur heita potta af tegundunum Hydro og Ocean. Þetta eru afar vandaðir pottar með loki úr sterku leðurlíki og hlífin er gerð fyrir íslenskt veðurfar. Verð á potti með loki og tröppu er aðeins 780.000 krónur. Einnig eru í boði lok á heita pott í þremur litum og stærðunum 200x200 cm, 208x208 cm og 213x213 cm á aðeins 69.500 krónur – lok sem henta einstaklega vel fyrir íslenskra veðráttu. Lokin eru samanbrjótanleg í miðju, með góðum festingum og svuntu, eru létt og meðfærileg. Infrarauðir saunaklefar eru áhugaverð uppfinning en Goddi býður þessa klefa á mjög hagstæðu verði, eða frá rúmlega 200 þúsund krónum. Hægt er að fá klefa sem eru frá tveggja manna upp í fjögurra manna. Infrarauðir geislar, eða IR­ greislar, hafa ýmsa kosti fyrir heilsu manna, til dæmis örva þeir líkamann sem getur brennt allt að 600 hitaein­ ingum á 30 mínútum og fólk svitnar þrefalt meira en í hefðbundnu saunabaði. IR­geislar örva æðakerfið og auka blóðflæði, víkka æðar, lækka blóðþrýsting og fá hjartað til að slá hraðar, sem styrkir og eflir hjartavöðvann. IR­geislar eru mikið notaðir til lækninga, við tognun, stirðleika í liðum og öðrum vöðva­ verkjum, og þeir fjarlægja mjólkur­ sýru og koldíoxíð úr vöðvum. Ítarlegri fróðleik um IR­geisla og IR­saunabaðklefa má finna á heima­ síðu Godda, goddi.is Goddi býður líka upp á mikið úrval af hefðbundn­ um saunaböðum frá finnska gæða­ framleiðandanum Harvia. Er þar bæði um að ræða heilu gufuböðin og einstaka hluta þeirra og fylgihluti. Gott er að fá ráðgjöf á staðnum um hvað til þarf og hvaða kostir eru hag­ stæðastir fyrir hvern og einn við­ skiptavin. n Goddi Auðbrekku 19 200 Kópavogur Símar: 544-5550 / 822-4150 goddi@goddi.is goddi.is Goddi er á Facebook Sauna.is: Leiðandi í saunavörum á Íslandi F yrirtækið Sauna.is hefur frá upphafi sérhæft sig í upp­ setningu, sölu og þjónustu á TYLÖ sauna­ og gufuklefum. Starfsemi fyrirtækisins hefur snúist um að þjónusta sundlaugar, líkamsræktarstöðvar, hótel/gistihús og heimili. Páll S. Kristjánsson fram­ kvæmdastjóri segir að Sauna.is hafi tekið við TYLÖ umboðinu af Vatns­ virkjanum sem hafði þjónustað TYLÖ saunavörur í yfir 40 ár með góðum ár­ angri: „Uppsöfnuð reynsla og sérþekking meðal starfsmanna fyrirtækisins er mikil enda hefur Sauna.is unnið að uppsetningu og þjónustu sauna­ og gufuklefa í mörgum byggingum og fyrirtækjum landsins,“ segir Páll. „Sauna.is er því alhliða þjónustu­ fyrirtæki sem selur, setur upp og veitir lausnir á þessu sviði. Við bjóðum við­ skiptavinum okkar einnig þjónustu við ráðgjöf og eftirlit með sauna­ og gufuböðum.“ Endurnærandi fyrir líkama og sál „Það er vitað að hófleg notkun saunu og gufubaða er talin mjög heilsusam­ leg,“ segir Páll. „Þau hafa bæði al­ mennt góð áhrif á blóðrásina og auka vellíðunarkennd vegna streitulosandi áhrifa. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á samhengi á milli mikillar streitu og aukinnar tíðni kransæða­ sjúkdóma. Góð stund í sauna­ eða gufuklefa getur reynst endurnærandi fyrir líkama og sál nútímamannsins, þar sem hann nýtur kyrrðar og slök­ unar til hins ítrasta,“ segir Páll. Nútímalausnir í gufu- og saunaklefum Sauna.is selur allar gerðir af sauna­ klefum þ.e. blautgufu, mildgufu og þurrgufu. Að auki eru á boðstólum ýmiss konar ilmolíur, fylgi­ og auka­ hlutir og vefnaðarvörur. Páll hvetur fólk til þess að kynna sér vöruúrvalið á heimasíðu Sauna.is eða líta við í heim­ sókn í verslunina á Smiðjuvegi 11. n Sauna.is/Tækjatækni ehf. Smiðjuvegi 11 200 Kópavogur Símar: 571-3770 og 860-4460 Netfang: www.sauna@sauna.is Heimasíða: www.sauna.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.