Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Blaðsíða 26
Vikublað 26.–28. apríl 201618 Sport
avis.is
591 4000
Frá
1.650 kr.
á dag
Vissir þú að meðal heimilisbíll er
notaður í eina klukkustund á dag
Langtímaleiga er
þægilegur, sveigjanlegur
og skynsamlegur kostur
Á
R
N
A
S
Y
N
IR NOTAÐU ÞITT FÉ
SKYNSAMLEGA
Flestir í fantaformi
n Eiður Smári fer í myndatöku í dag, þriðjudag n Þrjá landsliðsmenn skortir leikform
É
g er meiddur í nára og fer í
myndatöku á morgun,“ segir
landsliðsmaðurinn Eiður
Smári Guðjohnsen í sam-
tali við DV. Eiður Smári fór
meiddur af leikvelli, eftir að hafa
komið inn á sem varamaður í fyrri
hálfleik í leik Molde og Sarpsborg
08 í norsku úrvalsdeildinni um
helgina.
Eftir þrjá sigurleiki í röð, þar sem
Eiður Smári fór á köflum á kostum,
fékk liðið harðan skell gegn Sarps-
borg. Eftir 25 mínútur, þegar
staðan var 2-0, meiddist Mushaga
Bakenga, framherji Molde, og
Eiður Smári kom inn á í hans
stað. Í stöðunni 3-0, á 67. mínútu,
meiddist Eiður Smári í nára. „Ég er
að vona að þetta sé bara smávægi-
leg tognun og að ég verði klár um
helgina eða þar næstu helgi. En
maður veit aldrei fyrr en búið er að
mynda þetta.“
Eiður Smári er sem eini leikmað-
urinn sem lék mikið í undankeppni
EM, sem glímir við meiðsli. Þrír
lykilmenn eru þó í þeirri stöðu að
vera ekki byrjunarliðsmenn í sín-
um liðum; Kolbeinn Sigþórsson,
Emil Hallfreðsson og Aron Einar
Gunnarsson. Aðrir landsliðsmenn
í lykilhlutverkum eru í toppformi.
Staða nokkurra lykilmanna:
n Hannes Halldórsson:
Svo virðist sem Hannes sé að nálg-
ast sitt besta leikform. Hann hefur
aldrei litið betur út – samkvæmt
nýlegri mynd á samfélagsmiðlum
– og spilar nú í hverri viku í norsku
deildinni. Afar ánægjuleg tíðindi
fyrir íslenska stuðningsmenn.
n Birkir Már Sævarsson:
Byrjunarliðsmaður í Hammarby í
Svíþjóð. Bakvörðurinn skilar alltaf
sínu og er að byrja sitt áttunda
tímabil sem atvinnumaður í Nor-
egi/Svíþjóð. Virðist koma vel undan
vetri.
n Ari Freyr Guðmundsson:
Ari Freyr er á góðu róli með AB í
Danmörku. Hann hefur spilað fjóra
leiki frá síðasta landsleikjahléi og
virðist vera í toppformi.
n Ragnar Sigurðsson:
Miðvörðurinn er lykilmaður í einu
besta liði Rússlands, Krasnodar, og
spilar þar í hverri einustu viku – oft
við mjög sterka andstæðinga. Hann
verður eins og klettur á EM, ef fer
sem horfir.
n Kári Árnason:
Hann er fastamaður í einu besta
liðinu á Norðurlöndum, Malmö,
en deildin í Svíþjóð er nýlega byrj-
uð. EM kemur á frábærum tíma
fyrir Kára.
n Aron Einar Gunnarsson:
Hefur ekki verið fastamaður í liði
Cardiff í ensku b-deildinni. Hann
hefur einu sinni verið í byrjunarliði
í þeim fjórum leikjum sem spilaðir
hafa verið frá síðasta landsleikja-
hléi, en í öllum hinum hefur hann
komið inn á seint í síðari hálfleik.
Hann gæti skort leikform á EM.
n Emil Hallfreðsson:
Eftir langa dvöl hjá Hellas Verona
færði hann sig yfir til Udinese í
vetur. Hann hefur ekki verið í byrj-
unarliðinu í undanförnum leikjum
og gæti skort leikform á EM. Liðinu
hans hefur gengið illa.
n Gylfi Sigurðsson:
Hefur verið algjörlega frábær eftir
áramót hjá Swansea. Hann fann sig
ekki fyrir áramót en svo fremi sem
hann meiðist ekki í síðustu leikjun-
um á Englandi, fáum við Gylfa eins
og hann gerist bestur á EM.
n Birkir Bjarnason:
Birkir er fastamaður í öflugu liði
Basel í Sviss og reglulega á skot-
skónum. Birkir verður, ef að líkum
lætur, upp á sitt besta á EM.
n Jóhann Berg Guðmundsson:
Fastamaður í liði Charlton sem er
fallið úr Championship-deildinni.
Jóhann hefur skorað tvö mörk í
síðustu fjórum leikjum en líklegt
er að hann skipti um félag í sumar.
EM verður frábær gluggi til þess.
n Eiður Smári Guðjohnsen:
Eiður hefur verið í fantaformi
í Noregi en meiddist í nára um
helgina. Myndataka í dag, þriðju-
dag, leiðir væntanlega alvarleika
meiðslanna í ljós.
n Jón Daði Böðvarsson:
Framherjinn tók áhættu þegar
hann skipti um félag í síðasta
félagaskiptaglugga. Hann hefur
spilað sig inn í byrjunarlið
Kaiserslautern. Við þurfum ekki
að hafa áhyggjur af Jóni Daða fyrir
EM.
n Alfreð Finnbogason:
Skorar eins og enginn sé morgun-
dagurinn í einni sterkustu deildar-
keppni í heimi. Alfreð er í topp-
formi – kannski aldrei betri – og
það verður erfitt að horfa fram hjá
honum þegar byrjunarliðið í fyrsta
leik verður valið.
n Kolbeinn Sigþórsson:
Hann hefur misst sæti sitt í liði
Nantes og virðist vera í kuldanum
hjá þjálfaranum. Hann hefur ekki
komið við sögu í síðustu tveimur
leikjum félagsins auk þess sem afar
illa hefur gengið að skora í vetur. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Meiddur Eiður
Smári vonast til
þess að meiðslin
séu smávægileg.
Mynd EGGErt SkúlaSon