Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Blaðsíða 14
14 Fréttir Erlent Vikublað 26.–28. apríl 2016 Í takt við tímann • Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa. • Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum. SJÓNMÆLINGAR LINSUR • GLERAUGU Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is Ár frá skjálftanum stóra í Nepal n Níu þúsund létu lífið n Mikill árangur náðst en mikið verk eftir enn Í dag er um eitt ár liðið frá því að mannskæður jarðskjálfti, sem varð nærri níu þúsund manns að bana, reið yfir Nepal. Þriðj- ungur hinna látnu var börn. Jarðskjálftinn mældist 7,8 stig og varð hans vart um allt landið. Fjórtán héruð urðu afar illa úti og ljóst var frá fyrstu stundu að neyðaraðgerðir yrðu umfangs- miklar og uppbyggingarstarfið gríðarleg. Mikill árangur hefur náðst í hjálpar starfi á umliðnu ári en þúsundir Íslendinga studdu neyðarsöfnun UNICEF fyrir Nepal. Heimsforeldrar hafa reynst mikil- vægir í uppbyggingunni. „Það var gríðarlega mikilvægt að geta brugðist strax við. Miklu skiptir hversu vel fólk um allan heim tók við sér. Hér á landi styrktu þúsundir manna neyðarsöfn- un UNICEF á Íslandi fyrir Nepal, auk þess sem heimsforeldrar studdu neyðaraðgerðirnar. Þetta er ómetan legt og við erum afar þakk- lát fyrir þennan mikla stuðning,“ segir Bergsteinn Jónsson, fram- kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Meðal þess sem UNICEF hefur áorkað er að aðstoða við að reisa hátt í 1.800 tímabundna skóla, út- vega 900 þúsund börnum náms- gögn, en víða höfðu 90 prósent skólabygginga eyðilagst á jarð- skjálftasvæðunum. Því gátu þús- undir barna mætt aftur í skóla að- eins einum mánuði eftir skjálftann. UNICEF studdi bólusetningarátak til að koma í veg fyrir mislingafar- aldur sem náði til hálfrar milljón- ar barna undir fimm ára aldri auk þess sem 3,6 milljónir barna voru bólusettar við mænusótt. Tryggt var drykkjarhæft vatn fyrir 1,3 milljónir manna og örugg hrein- lætisaðstaða. Tveimur vikum eftir fyrri skjálftann reið annar jarð- skjálfti af stærðargráðunni 7,3 yfir auk hundruð minni skjálfta. Þrátt fyrir öflugt hjálparstarf frá fyrsta degi er ljóst að umfangs mikil uppbygging er enn framundan, enda var eyðileggingin gríðarleg. „Ástandið í Nepal er ennþá slæmt og mikil uppbygging framundan. Segja má að tímabilið fyrst eftir skjálftann hafi einkennst af fyrstu viðbrögðum við hamför- unum, en nú taki við tímabil þar sem innviðir verða styrktir til fram- tíðar. Mikilvægt er að halda áfram og það gera heimsforeldrar okkur kleift,“ segir Bergsteinn. n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Missti heimilið Fjölskylda í Nepal sem missti heimili sitt í jarðskjálftan- um. Mynd UnICEF Ófrísk í hamförum Sumitra Thapa var ófrísk þegar jarðskjálftinn reið yfir og er hér í mæðravernd á heilsugæslu í Gorkha- héraði sem komið var á fót á hamfara- svæðinu og er studd af UNICEF. Mynd UnICEF Morgunverkin Purni Maya Gurung eldar hér í morgunskímunni í skýli sínu í Gorkha- héraði sem varð illa úti. Hún og fjölskylda hennar fengu aðstoð frá UNICEF. Mynd UnICEF Gátu haldið áfram námi Rashmi Taman og vinir hennar hlýja sér í kuldanum. Þau náðu öll að halda áfram námi í tímabundnum skóla sem UNICEF og samstarfsaðilar komu upp í kjölfar hamfaranna. Mynd UnICEF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.