Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2016, Side 14
14 Fréttir Erlent Vikublað 26.–28. apríl 2016
Í takt við tímann
• Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa.
• Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum.
SJÓNMÆLINGAR
LINSUR • GLERAUGU
Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík
Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is
Ár frá skjálftanum stóra í Nepal
n Níu þúsund létu lífið n Mikill árangur náðst en mikið verk eftir enn
Í
dag er um eitt ár liðið frá því að
mannskæður jarðskjálfti, sem
varð nærri níu þúsund manns
að bana, reið yfir Nepal. Þriðj-
ungur hinna látnu var börn.
Jarðskjálftinn mældist 7,8 stig
og varð hans vart um allt landið.
Fjórtán héruð urðu afar illa úti
og ljóst var frá fyrstu stundu að
neyðaraðgerðir yrðu umfangs-
miklar og uppbyggingarstarfið
gríðarleg. Mikill árangur hefur
náðst í hjálpar starfi á umliðnu ári
en þúsundir Íslendinga studdu
neyðarsöfnun UNICEF fyrir Nepal.
Heimsforeldrar hafa reynst mikil-
vægir í uppbyggingunni.
„Það var gríðarlega mikilvægt
að geta brugðist strax við. Miklu
skiptir hversu vel fólk um allan
heim tók við sér. Hér á landi styrktu
þúsundir manna neyðarsöfn-
un UNICEF á Íslandi fyrir Nepal,
auk þess sem heimsforeldrar
studdu neyðaraðgerðirnar. Þetta er
ómetan legt og við erum afar þakk-
lát fyrir þennan mikla stuðning,“
segir Bergsteinn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
Meðal þess sem UNICEF hefur
áorkað er að aðstoða við að reisa
hátt í 1.800 tímabundna skóla, út-
vega 900 þúsund börnum náms-
gögn, en víða höfðu 90 prósent
skólabygginga eyðilagst á jarð-
skjálftasvæðunum. Því gátu þús-
undir barna mætt aftur í skóla að-
eins einum mánuði eftir skjálftann.
UNICEF studdi bólusetningarátak
til að koma í veg fyrir mislingafar-
aldur sem náði til hálfrar milljón-
ar barna undir fimm ára aldri auk
þess sem 3,6 milljónir barna voru
bólusettar við mænusótt. Tryggt
var drykkjarhæft vatn fyrir 1,3
milljónir manna og örugg hrein-
lætisaðstaða. Tveimur vikum eftir
fyrri skjálftann reið annar jarð-
skjálfti af stærðargráðunni 7,3 yfir
auk hundruð minni skjálfta.
Þrátt fyrir öflugt hjálparstarf frá
fyrsta degi er ljóst að umfangs mikil
uppbygging er enn framundan,
enda var eyðileggingin gríðarleg.
„Ástandið í Nepal er ennþá
slæmt og mikil uppbygging
framundan. Segja má að tímabilið
fyrst eftir skjálftann hafi einkennst
af fyrstu viðbrögðum við hamför-
unum, en nú taki við tímabil þar
sem innviðir verða styrktir til fram-
tíðar. Mikilvægt er að halda áfram
og það gera heimsforeldrar okkur
kleift,“ segir Bergsteinn. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Missti heimilið
Fjölskylda í Nepal
sem missti heimili
sitt í jarðskjálftan-
um. Mynd UnICEF
Ófrísk í hamförum Sumitra Thapa var
ófrísk þegar jarðskjálftinn reið yfir og er
hér í mæðravernd á heilsugæslu í Gorkha-
héraði sem komið var á fót á hamfara-
svæðinu og er studd af UNICEF. Mynd UnICEF
Morgunverkin Purni Maya Gurung eldar
hér í morgunskímunni í skýli sínu í Gorkha-
héraði sem varð illa úti. Hún og fjölskylda
hennar fengu aðstoð frá UNICEF. Mynd UnICEF
Gátu haldið áfram námi Rashmi Taman og vinir hennar hlýja sér í kuldanum. Þau náðu
öll að halda áfram námi í tímabundnum skóla sem UNICEF og samstarfsaðilar komu upp í
kjölfar hamfaranna. Mynd UnICEF