Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Síða 16
Helgarblað 6.–9. maí 201616 Fólk Viðtal
YOUR BEST CHOICE IN COLOR.
HANNAH IS WEARING
SHADE N° 3-65
PALETTE DELUXE
NOW WITH LUXURIOUS
OLEO-GOLD ELIXIR.
TURN COLOR
INTO A LUXURY.
FOR UP TO 30% MORE SHINE.*
EUROPE'S NO. 1
NEW
P
ólitíkin á mikinn þátt í land-
flóttanum. Margir tala um
þetta hér, að á Íslandi ríki
stefnuleysi og langvarandi
óreiða í það minnsta frá hruni.
Tjónið á mannauði Íslendinga má
telja í tugum milljarða. Ég finn þetta á
ferðalögum, hvort sem það er í Noregi,
Sviss eða Kaupmannahöfn. Forsætis-
ráðherra og forseti hafa laskast í al-
þjóðlegum fjölmiðlum, sjálfsmynd
okkar er beygluð og mér þætti mjög
forvitnilegt að vita hvernig atkvæði
brottfluttra Íslendinga myndu falla.“
Ætlar þú að leggja áherslu á að ná
til þessa fólks, Íslendinga sem eru bú
settir erlendis?
„Mér finnst mikilvægt að hitta
fólkið sem horfir á okkur utan frá og
hugsa hvernig Ísland getur haldið í
sinn mannauð og hvernig við löðum
fólk aftur heim. Stór hluti hefur samt
ekki kosningarétt. Þeir sem hafa dval-
ið lengur en 8 ár erlendis þurftu að
kæra sig inn á kjörskrá fyrir 1. desem-
ber í fyrra.
Það verður fundur með Íslending-
um í París á föstudag í næstu viku því
ég er tilnefndur til helstu vísinda-
skáldsagnaverðlauna Frakklands,
Grand Prix de l'Imaginarie, fyrir
LoveStar. Á sunnudeginum kemur í
ljós hvort ég hlýt þau verðlaun.“
Sendiherrann í París var nú orð
aður við forsetaframboð, en nú er hún
hætt við!
„Já þá mætir hún vonandi í mitt
partí,“ segir frambjóðandinn og hlær.
Í liði með Ólafi Ragnari?
Við höldum áfram að spjalla um
aðra frambjóðendur. Nú er Guðni
Th. búinn að tilkynna að hann bjóði
sig fram. Sumir hafa viljað meina að
með því sé Andri Snær orðinn helsti
bandamaður Ólafs Ragnars, sitjandi
forseta, þar sem Andri og Guðni eru
líklegir til að sækja fylgi sitt í svipað-
an hóp.
Hvernig tilfinning er það Andri, að
vera kannski í liði með Ólafi Ragnari?
„Ég er nú ekki sammála þessari
greiningu. Við vitum ekki einu sinni
hvort Ólafur klári baráttuna. Það eru
tæpir tveir mánuðir í kosningar. Síð-
ustu vikur hafa heldur betur sýnt
okkur að staðan í þjóðmálum getur
snúist á hvolf í einu vetfangi. Þessari
seríu er ekki lokið og ég er viss um að
handritshöfundur er með eitthvað
uppi í erminni. Ég var með 30% fylgi
samkvæmt könnun í síðustu viku og
hef alltaf vitað að ég þurfi að sýna fólki
hvað ég stend fyrir, og sanna að ég eigi
erindi í forsetaembættið.“
Fólk er ekki vitlaust
Umræðan um þig og listamanna
launin í aðdraganda framboðstil
kynningar þinnar var nú ekki beinlínis
jákvæð í alla staði.
„Það er hárétt. Þjóðsagan í sinni
verstu mynd segir að ég hafi verið á of-
urlaunum í 10 ár og ekki skrifað neitt.
Þar er þetta orðið eins og sagan um
„Það væri áhugavert ef einhver rannsakaði hvaða leiðtoga Íslendingar erlendis
myndu kjósa fyrir Íslendinga. Þeir sjá Ísland öðrum augum. Fólk losnar undan
flokksálögum og byrjar að hugsa öðruvísi þegar það dvelur ytra.“ Hér um bil
svona byrjar símtal blaðakonu DV við Andra Snæ Magnason, rithöfund
og forsetaframbjóðanda. Hann er staddur í Kaupmannahöfn og átti fund með
Íslendingum á Laundromat café á miðvikudagskvöldið. Með í för eru Grímur Atla-
son, Elín Ey tónlistarkona og Margrét Sjöfn Torp, eiginkona frambjóðandans.
Sjálfsmynd
mín á heima á
Melrakkasléttu
„Við höfum
hjartarými
og landrými til að
gera miklu betur
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
m
y
n
d
s
ig
tR
y
g
g
u
R
a
R
i