Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Side 19
Helgarblað 6.–9. maí 2016 Kynningarblað - Besti ísinn í bænum 3
Ein á Selfossi, ein í Álfheimum
og ein að opna í Spönginni
Í
sbúð Huppu var opnuð á fal-
legum sumardegi 24. júlí 2013.
Viðtökurnar hafa farið fram-
ar björtustu vonum okkar. Á
flottum vordegi árið 2015 opn-
uðum við svo Huppu í Reykjavík,
nánar til tekið að Álfheimum 4. Nú
bætist þriðja Huppa við og verður
hún staðsett í Spönginni Grafar-
vogi. Hún verður opnuð þann 28.
maí. Við leggjum áherslu á góðan
ís á góðu verði, mikið magn flottra
bragðarefa, framúrskarandi þjón-
ustu og góða stemningu.“
Svo segir í stuttri tilkynningu frá
ísgerðarfyrirtækinu Huppu, sem
hefur upplifað skemmtilegt ævin-
týri á íslenska ísmarkaðnum, sem
alla jafna einkennist af harðri og
erfiðri samkeppni. Óhætt er að
segja að landsmenn hafi tekið ís-
búðum Huppu og Huppu-ísrétt-
unum fagnandi síðan þessi vegferð
hófst fyrir tæpum þremur árum.
Huppa er í eigu tvennra hjóna,
en þau eru: Telma Finnsdóttir og
Gunnar Már Þráinsson, Eygló Rún
Karlsdóttir og Sverrir Rúnarsson.
Ísbúð Huppu á Selfossi var fyrst
í litlu húsnæði að Eyrarvegi 3. Frá
fyrsta degi naut ísbúðin gífurlegra
vinsælda og fyrir tveimur mánuð-
um fluttist hún í stærra húsnæði
rétt hjá, að Eyrarvegi 2, enda fyr-
ir löngu búin að sprengja hitt hús-
næðið utan af sér.
Um aðdragandann að opnun ís-
búðar Huppu í Álfheimum, segja
eigendurnir:
„Við fundum að við áttum séns í
Reykjavík því stór hluti af okkar við-
skiptum í Huppu á Selfossi var fólk
á ísrúntinum úr borginni. Svo kem-
ur það til að okkur er boðið þetta
húsnæði í Álfheimum, þar sem
áður var þessi gróna ísbúð sem átti
sér mikla sögu. Við slógum til, rif-
um allt þarna út eins og það lagði
sig og innréttuðum upp á nýtt í okk-
ar anda. Þetta er búið að vera frá-
bært ævintýri og viðtökurnar fram-
ar vonum.“
Svo vel hefur gengið í Álfheim-
um að Huppa ætlar að opna nýja
ísbúð í Spönginni þann 28. maí. En
hverjar eru skýringarnar á þessari
miklu velgengni?
„Við leggjum mikið upp úr
ímyndinni, hver við erum og fyr-
ir hvað við stöndum. Við berum
virðingu fyrir umgjörðinni sem við
höfum mótað. Við vöndum inn-
réttingar og gerum þær skemmti-
legar. Við leggjum líka mikið upp
úr fallegum litum og hlýlegu um-
hverfi.“
Ísinn frá Huppu er í grunninn
tvær gerðir, Sveitaís, sem er ekta
rjómaís, og Huppu-ísinn, en það
er kaldur mjólkurís. Auk þess er á
boðstólum frábært úrval af kúlu-
ís. Annað sem sérkennir ísbúðir
Huppu eru ísmatseðlar:
„Við leggjum mikið upp úr
bragðarefsmatseðlinum og sjeik-
seðlinum. Einnig erum við með
Huppu-ljúfmeti sem eru skemmti-
legar útgáfur af ís í boxi með sæl-
gæti og sósum. Hluti af okkar styrk-
leika liggur í því að gera svona hluti.“
Þau segja einnig að verðlagn-
ingin eigi sinn þátt í vinsældum
Huppu:
„Við erum ekki að keppast við að
vera ódýrust heldur bjóðum ein-
faldlega gott verð. Sanngjarnt verð
á vörunni miðað við gæði.“*
Enginn fer ósáttur frá Huppu
Ónefnt er það sem þau telja vera
mikilvægasta áhersluþáttinn í
starfsemi Huppu en það er þjón-
ustan:
„Þjónustan á að vera fram-
úrskarandi. Auðvitað geta okk-
ur orðið á mistök en við leiðrétt-
um þau og við leggjum jafnmikið
upp úr þjónustunni og því að gera
ís. Við leggjum áherslu á þetta við
þjálfun starfsfólks sem við reynum
að hafa jafn prófessjónal og ef það
væri að vinna á veitingahúsi. Við-
mótið í ísbúð þarf að vera jafngott
og á veitingastað. Það fyrsta sem
þú tekur eftir þegar þú kemur inn í
verslun eða á veitingastað er starfs-
maðurinn sem tekur á móti þér.
Hann getur ráðið öllu um upplifun-
ina. Ef þú lendir í því að klúðra ísn-
um, eins og getur komið fyrir, þá er
það ekkert vandamál ef þjónustan
er í lagi, kúnninn fær nýjan ís og all-
ir eru sáttir. Enginn á að fara ósáttur
út úr Huppu. Aldrei.“ n
Ísbúð Huppu:
Mynd Sigtryggur Ari