Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Blaðsíða 26
Helgarblað 6.–9. maí 201618 Fólk Viðtal
avis.is
591 4000
Frá
1.650 kr.
á dag
Vissir þú að meðal heimilisbíll er
notaður í eina klukkustund á dag
Langtímaleiga er
þægilegur, sveigjanlegur
og skynsamlegur kostur
Á
R
N
A
S
Y
N
IR NOTAÐU ÞITT FÉ
SKYNSAMLEGA
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is
Bakarameistari & Konditormeistari
Allt frá konfektmola upp í fullbúna veislu
í orði – vakið athygli á málefnum og
sett þau á dagskrá. Sem þjóðkjörinn
manneskja getur hann farið þvert
á alls konar landamæri og mörk og
fengið fólk til að tala saman. “
Trú á lýðræðinu
Áttu þér óskaríkisstjórn?
„Ég held að góð stjórn eigi að
hafa breiða tilhöfðun. Það er óæski
leg staða þegar ríkisstjórn hefur ein
dregna andstöðu við krítískan massa
í þjóðfélaginu. Ég vil ekki nefna flokka
sem ég helst vildi sjá í ríkisstjórn, en
er spenntur fyrir því að við skoðum
fleiri aðferðir til stjórnarmyndunar.
Það er svo mikill feginleiki þegar
einhver í flokki talar örlítið til hliðar
við stefnu flokks. Í okkar vinahópum
og samfélagi erum við mjög ólík. Við
verðum að hafa trú á lýðræðinu og
traust verður að ríkja þvert á flokka og
heiftin eða harkan má ekki verða til
þess að gott fólk fæst ekki til starfa. Al
þingi þarf á góðu fólki að halda og við
megum ekki búa í samfélagi sem letur
menn til þátttöku eða skilaboð um að
pólitík sé mannskemmandi.“
Var ákvörðun þín um framboð
erfið?
„Í framboði þarf maður að brjóta
af sér feimni og óöryggi. Þessi hug
mynd um að leggja sjálfan sig og fjöl
skyldu sína í dóm fólks er ógnvekj
andi og stór ákvörðun. Ég finn að
þetta er allt öðruvísi en að skrifa bók.
Í framboði ertu beinlínis að ætlast til
þess að allir hafi skoðun á þér og mál
efnunum sem þú stendur fyrir.“
Umræðuhefð með slæmt orð á sér
Hvernig finnst þér umræðuhefðin á Ís-
landi?
„Átök eru ekki endilega af hinu
illa, þau eru hluti af leiknum. Það er
jákvætt að takast á um hugmyndir
og það að þegja yfir einhverju getur
verið yfirlýsing um að samþykkja ein
hvers konar óréttlæti. Hér í Danmörku
hristir fólk haus yfir pólitíkinni heima.
Hrunið nánast nýafstaðið og núna
eru leiðtogar okkar aftur á forsíðum
heimspressunnar. Ég held að pólitíkin
og umræðuhefðin hafi slæmt orð á sér
og þúsundir Íslendinga kysu eflaust
að búa heima ef hún væri jákvæðari
og í betri farvegi. Hluti af pólitíkinni
er leikur þar sem menn kjósa að vera
ósammála. En svo koma stór mál og
mikilvæg og þá þurfum við að tryggja
að þjóðin geti krafist þjóðaratkvæða
greiðslu. Kosningar um Icesave sýndu
okkur að fólk vildi meiri völd og að
gang að ákvarðanatöku.“
Ákallaði Guð í skíðaháska
Hvar stendur þú í trúmálum?
„Ég er skráður í Þjóðkirkjuna og
er kannski dæmigerður meðlimur
hennar. Ég þykist trúa á sjálfan mig
en í fyrra var ég fastur í skíðabrekku
fyrir ofan foss og þá fór ég beint í
Guð. Ég er ekki bókstafstrúarmaður
í neinum skilningi, en mikill áhuga
maður um trúmál. Lokaritgerð mín
í íslensku fjallaði um trú í ljóðum Ís
aks Harðarsonar. Hann er róttækt og
skemmtilegt skáld og mjög leitandi
í trúmálum. Ritgerðin var um að tjá
trúna þegar trúarleg heimsmynd er
hrunin. Hvernig áttu að yrkja ljóð inn
í heim sem hefur sundrað grundvelli
trúarinnar? Ég hef tekið tvö viðtöl við
Dalai Lama, sem hafði líka mikil áhrif
á mig. Kirkjan hefur þjónað mér og
mínum ágætlega. Ég hef líka verið
fyrirlesari hjá Siðmennt í borgaralegri
fermingu svo ég hef komið víða við.“
Stoltur af fyrirmyndunum
Hver er fyrirmyndin þín í lífinu, svona
almennt séð?
„Ég er mjög heppinn með fyrir
myndir og finnst mikilvægt að hrósa
þeim. Ég kynntist vel ömmum mínum
og öfum og átti tvær ömmur og þrjá
afa þar til ég var orðinn 33 ára gamall.
Ég talaði mikið við þau og fékk innsýn
í alla þeirra æsku, uppvöxt og gildi.
Amma, sem var fædd í Neskaupstað,
var send að heiman átta ára gömul
vegna fátæktar. Hin amma mín var al
gjör jaxl. Hún var fyrsta kona til að fá
flugpróf og fara í jöklaferðir á Íslandi.
Langafi minn stofnaði Val. Ég er
stoltur af þessu frumkvöðla elementi
í minni fjölskyldu.
Aðrar fyrirmyndir mínar eru til
dæmis Þórður Helgason, sem opn
aði fyrir mér leiðina inn í bókmennta
heiminn. Hann sýndi mér farveginn,
hvernig ég gat orðið rithöfundur,
annars hefði ég líklega ekki gert það.
Guðmundur Páll Ólafsson var mikill
vinur minn, en hann dó sjötugur
fyrir um tveimur árum. Lífssýn hans
og áhugi á náttúruvernd höfðu mikil
áhrif á mig. Ég elst upp á Vigdísar
tímanum og þá komu gildi hennar
sterk inn í líf mitt. Heiðarleiki, nátt
úruvernd, tungumál og lýðræði. Hörð
gildi sem þarf að endurheimta. Eldri
systur mína vil ég líka nefna sem
fyrir mynd, en hún var fyrst íslenskra
kvenna til að verða heilaskurðlæknir.“
Friðarsinninn Andri
Hvar stendur þú gagnvart NATO og
hernaðaríhlutunum?
„Ég er friðarsinni alveg í kjarnan
um og leiðist valdbeiting og hernaður
almennt. Ég tel að stríð síðustu ára og
áratuga hafi ekki skilað okkur neinu
nema verri heimi. Sem forseti mun
ég ekki hafa áhrif á hvort við séum í
Nato eða ekki. Við erum sem betur fer
ekki háð fjárveitingum til hernaðar
og ekki vafin inn í stórfenglega hags
muni sem fylgja hernaði. Þess vegna
eigum við möguleika á að vera frjáls
rödd innan Nato og á hernarðarvett
vangi án þess að vera að vonast eftir
fjárveitingum til að viðhalda stofnun
um sem honum tengjast, eða her
foringjatign. Við eigum að tala öðru
vísi – tala til dæmis um mannaflann
í þessum málum. Setja staðreynd
ir í samhengi við flóttamannavand
ann í heiminum. Ef þú getur flogið
200.000 manns yfir hálfan hnöttinn
með innviðum og tækjabúnaði, get
urðu líka gert ýmislegt fyrir fólk sem
er á flótta undan hernaði.“
Hvað með samband okkar við ríki
sem stunda mannréttindabrot, til að
mynda Ísrael?
„Forseti þarf að fara varlega í að
móta sína utanríkisstefnu. Ísland, sem
lýðræðisríki, þarf að móta sína stefnu
í gegnum ferla sem lýðræðisríki nýtir
sér. Það ferli getur ekki verið einstak
lingsbundið. Mannréttindabrot for
dæmi ég hikstalaust og fullkomlega.
En á sama tíma hef ég ekki sérstakan
áhuga á að vera „loose cannon“ hvað
varðar utanríkismál. Við eigum stofn
anir og sérfræðinga sem vinna í þess
um málum og virðing fyrir þeim er
mikilvæg. Alþingi sér um og á að sjá
um þessi mál. Flokkar og lýðræðis
kerfi eiga að stýra utanríkisþjónustu.
Forseti hefur hins vegar möguleika
á að tengjast hópum og aðilum sem
berjast fyrir réttlæti, og hafa skýra
rödd þegar mannréttindi og mann
réttindabrot eru annars vegar.“
Stórhuga og gestrisin
Hver er sýn þín á flóttamannavand-
ann? Hefur þú hugmynd um hvernig
hann verður leystur og hvert hlutverk
Íslands gæti verið í þeim efnum?
„Fyrst og fremst þarf frið og jöfn
uð í heiminum. Allir þurfa að lifa
mannsæmandi lífi, annars verður
alltaf ójafnvægi og flutningar fólks
sem flýr bágar aðstæður. Hnattrænar
breytingar á næstu árum munu
auka þennan vanda. Dóttir mín
fékk stúlku í bekkinn sem er frá Al
eppo. Ég settist niður með henni og
ætlaði að gúgla myndir frá Aleppo
til að sýna henni heimaslóðir nýju
bekkjarsysturinnar. Myndirnar voru
of skelfilegar til að ég gæti sýnt þær.
Mér finnst stundum eins og við séum
í bíl á fullri ferð og keyrum fram á
nauðstadda manneskju í vegkanti,
og veltum því fyrir okkur hvernig við
ætlum að hjálpa henni án þess að
hægja á okkur. Við höfum hjartarými
og landrými til að gera miklu betur.
Það er allt í lagi að hægja á sér, og það
er skylda okkar að hægja á okkur og
hjálpa. Það er óraunsætt fyrir mig að
leggja tölu fram en hver einstakling
ur skiptir máli. Rétt eins og stúlkan í
bekk dóttur minnar. Fólk er almennt
gott og við eigum ekki að vera svona
hrædd, heldur stórhuga og gestris
in.“
Ætlar þú á EM?
„Ég er nú ekki búinn að útvega mér
miða. Ég er reyndar sjálfur að fara að
keppa í Frakklandi á Grand Prix de
l'Imaginery um helgina. Frakklands
fjárveitingin er eiginlega búin fyrir
þetta vorið. En við verðum með beina
útsendingu í kosningamiðstöðinni
frá leikjum.“ n
Stoltur af
fyrirmyndumum
Ömmur og afar
Andra kenndu
honum mikið.
Mynd GríMUr ATlASon