Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Side 28
Helgarblað 6.–9. maí 201620 Sport
M
ér hefur liðið eins og pabbi
hafi setið við hlið mér og
horft á leikina með mér,“
segir HK-ingurinn Óli Þór
Júlíusson í samtali við DV.
Óli Þór er einarður stuðningsmaður
Leicester í ensku úrvalsdeildinni en
liðið varð enskur meistari á mánu-
dag – öllum að óvörum. Faðir Óla,
Ísfirðingurinn Júlíus heitinn Arnars-
son var dyggur stuðningsmaður fé-
lagsins og smitaði Óla ungan af þeim
stuðningi.
„Þegar maður er ungur og byrjar
að fylgjast með enska boltanum þá er
einhvern veginn eðlilegast að maður
fari að fylgjast með liðinu sem pabbi
styður. Pabbi minn hélt með Leicester
City og Nottingham Forrest,“ segir Óli
Þór um ástæðu þess að hann fór að
halda með Leicester. Pabbi hans varð
bráðkvaddur í maí 2011, fyrir fimm
árum. Óli Þór segir að faðir hans
hafi lengi fylgst vel með gangi mála
í enska boltanum og verið virkur í
getraunum, því samhliða. Hann flutti
ungur frá Ísafirði suður til Reykjavík-
ur og studdi KR hér heima. „En taugin
vestur var mjög sterk í honum,“ segir
Óli Þór.
United lið númer tvö
Sjálfur fór Óli Þór að fylgjast með fót-
bolta á fyrstu árum grunnskóla, en
hann fæddist árið 1980. Hann seg-
ir að þó samfylgdinni hafi ekki fylgt
mörg tækifæri til að fagna hafi hann
aldrei upplifað þetta sem einhverja
áþján. „Ég hef alltaf verið stoltur
stuðningsmaður.“ Auk þess að halda
með Leicester hefur hann stutt
Manchester United en forgangsröð-
in er þó alveg á tæru – litla liðið hef-
ur alltaf haft vinninginn. Stuðningur-
inn við United á rætur að rekja til þess
að hann fór sjálfur í Bobby Charlton-
skólann í Manchester 1995, þá 15 ára
gamall. Í kjölfarið hneigðist hann til
stuðnings við United.
Leist ekki á Ranieri
Óli Þór segist aðspurður ekki beinlín-
is hafa séð fyrir velgengnina á tímabil-
inu. Sjö sigrar í síðustu níu leikjunum
hafi hins vegar gefið ákveðna von um
að tímabilið í vetur yrði betra en það
síðasta. Hann segir að honum hafi
þó ekki litist sérstaklega vel á blikuna
þegar Ítalinn Claudio Ranieri var ráð-
inn knattspyrnustjóri um mitt sumar,
en það hafi þó breyst.
Hann segist raunar ekki hafa trúað
því fyllilega að liðið yrði enskur meist-
ari, fyrr en sú varð sannarlega raunin
þegar flautað var til leiksloka í viður-
eign Chelsea og Tottenham á mánu-
dag. „Ég hafði góða tilfinningu fyrir
því um áramótin að þetta gæti orðið
gott tímabil. Þá var maður að vonast
til þess að liðið hafnaði í einu af fjór-
um efstu sætunum.“ Hann bendir á
að framan af leiktíðinni hafi liðið yf-
irleitt fengið á sig allnokkur mörk en
unnið leikina með því að skora enn
fleiri. Það hefði ekki gefið sérstaklega
góð fyrirheit. „Ef vörnin er gatasigti þá
gerist ekkert gott. Það skilar engum
titlum að hafa galopna vörn,“ segir
hann en vörnin átti heldur betur eft-
ir að þéttast.
Leist ekki á blikuna
Óli Þór fylgist ágætlega með enska
boltanum en tekur þó fram að hann
sé „enginn Hjörvar Hafliðason“. „Ég
reyni að fylgjast eins mikið með og
ég hef tíma til. Ég hef horft á marga
Leicester-leiki í ár og gerði það í fyrra
líka. Vegna anna í vinnu gat hann
þó hvorki horft á leik Leicester og
Manchester United um liðna helgi,
né leik Chelsea og Tottenham. Hann
fylgdist þó náið með gangi mála í sím-
anum. „Mér leist ekki á blikuna þegar
United komst yfir en mínir menn
jöfnuðu fljótlega og þá fór maður að
hafa trú á þessu.“
Hann segir að mánudagurinn hafi
verið sérstakur – þar sem liðið tryggði
sér titilinn án þess að spila. „Ég var
búinn að hafa orð Eden Hazard á bak
við eyrað, en hann sagði um daginn
að hann myndi gera allt sem hann
gæti til að hjálpa Leicester að vinna
– en Tottenham og Chelsea eru bæði
Lundúnalið sem lengi hafa eldað grátt
silfur. „Það var þess vegna skemmti-
legt að sjá hann skora jöfnunarmark-
ið,“ segir Óli Þór en það mark reyndist
ráða úrslitum í leiknum.
Skemmtilegar minningar
Og mánudagurinn var sérstakur. Kveðj-
um hefur rignt yfir hann á Facebook og
víðar, enda eru stuðningsmenn Leicest-
er ekki á hverju strái. Og á þessari
merkilegu stundu, þegar Leicester varð
meistari, varð honum hugsað til föður
síns, eins og svo oft áður. „Það rifjuð-
ust upp margar hlýjar og skemmtilegar
minningar um stundir sem við pabbi
áttum saman,“ segir hann við DV.
En átti hann von á því, sem stuðn-
ingsmaður Leicester, að eiga eftir að
upplifa það að vinna enska meistara-
titilinn? „Jahh … það er svolítið
skondið að segja frá því að fyrir fjór-
um árum sat ég og spjallaði við Gulla
landsliðsmarkmann [Gunnleifur
Gunnleifsson, innsk. blm.] þegar Taí-
lendingarnir voru nýbúnir að kaupa
Leicester. Þeir sögðust ætla að koma
Leicester í toppbaráttuna eftir fimm
ár.“ Hann segir að Gulli hafi ekki haft
sérstaka trú á því þá. „Ég sagði „bíddu
bara“ við hann. Það er svolítið gaman
að rifja þetta upp núna,“ segir Óli Þór
glaður í bragði að lokum. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Mér hefur liðið
eins og pabbi hafi
setið við hlið mér og horft
á leikina með mér.
„Alltaf verið stoltur
stuðningsmaður“
Óli Þór Júlíusson hefur alla tíð haldið með Leicester, eins og faðir hans sálugi gerði
Með mynd af föður sínum
Faðir Óla Þórs, Ísfirðingurinn
Júlíus Arnarsson, féll frá árið 2011.
Óli fékk áhugann á Leicester frá
honum. Mynd SiGtRyGGUR aRi
Klif ehf • Grandagarði 13, Reykjavík
Sími 552-3300 • www.klif.is
Gróðurhús í úrvali