Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2016, Síða 40
Helgarblað 6.–9. maí 2016
34. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 684 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Meistari
Jakob?!
Styður Guðna
n Stefán Einar Stefánsson,
blaðamaður á Morgunblaðinu,
ætlar að greiða Guðna Th. Jó-
hannessyni atkvæði sitt í kom-
andi forsetakosning-
um. Stefán greindi
frá þessu á Face-
book-síðu sinni í
gær, fimmtudag.
Vísaði hann þar í
orð Guðna um að
fólk með sjálfstraust
sé fólk sem hafi
hógværð í hjarta
sínu.
Lítillátt stórveldi
n Nokkuð hefur verið rætt um
að KR megi muna sinn fífil feg-
urri þegar kemur að knattspyrnu
og umgjörðina í Frostaskjóli.
Liðið hóf Pepsi-deildina með
því að gera markalaust jafn-
tefli við Víking Reykjavík. „KR er
sennilega lítillátasta stórveldið
í samanlagðri sögu stórvelda,“
segir blaðamaður-
inn Jakob Bjarn-
ar og hæðist að
Vesturbæing-
um á Twitter.
„Ónýtur völl-
ur, stúka að
hruni komin
og mídíóker
lið.“ Jakob
styður FH.
O
kkur rennur blóðið til
skyldunnar því milljónir sýr-
lenskra barna búa við sára
neyð.“ Þetta segir Hrafn
Jökuls son, formaður Skákfélags-
ins Hróksins, sem mun í dag og á
morgun, föstudag og laugardag, tefla
samtals í 30 klukkustundir. Það gerir
hann um leið og hann safnar áheit-
um og framlögum til styrktar sýr-
lenskum börnum.
Framlögin munu renna óskert til
Fatimusjóðsins og UNICEF. Þar kem-
ur fram að skemmtikraftar og lista-
menn troði upp meðan á maraþon-
inu stendur. „Það verður heilmikil og
skemmtileg dagskrá. Þótt tilefnið sé
alvarlegt verður gleðin og vináttan í
fyrirrúmi,“ segir Hrafn og minnir á
kjörorð Hróksins „Við erum ein fjöl-
skylda“. Á meðal þess sem gestir hafa
fyrir stafni, auk þess að tefla við Hrafn
eða aðra skákmenn, verður að upplifa
flóttamannabúðir með augum 12 ára
gamallar sýrlenskrar stúlku. Boðið
verður upp á sýndarveruleikagler-
augu þar sem upplifa má með eigin
augum hvernig umhorfs er í búðum –
samtímis því að stúlkan lýs-
ir því sem fyrir augu ber.
Að viðburðinum
standa Hrókurinn
og Skákakademía
Reykjavíkur, í sam-
vinnu við Fatimusjóð-
inn og UNICEF. Ball-
ið byrjar klukkan níu,
núna í morgunsárið, en
Hrafn teflir frá klukkan 9
til miðnættis báða dagana, samtals
30 klukkustundir. Hann vonast til að
tefla 200 skákir.
Þetta er í annað sinn
sem Hrókurinn safnar fyr-
ir sýrlensk börn en í fyrra
– í Hörpu – safnaðist dá-
góð upphæð. Þegar hafa
nokkur fyrir tæki heitið
á Hrafn og gefið út lof-
orð um að greiða 500 og
stundum 1.000 krónur fyrir
hverja skák sem hann tefl-
ir. „Við ætlum að gera enn
betur og söfnum áheitum og framlög-
um bæði frá fyrir tækjum og einstak-
lingum.“ Hann tekur fram að allir sem
að verkefninu komi gefi vinnu sína,
svo hver króna sem safnast rennur til
sýrlenskra barna. Hrafn skorar á alla
sem vilja leggja málstaðnum lið að
mæta í Ráðhús Reykjavíkur og taka
eina lauflétta hraðskák. Skákkunnátta
sé algjört aukaatriði.
Fatimusjóðurinn Reiknings-
númer: 0512-04-250461 Kennitala:
680808-0580
UNICEF Sendu sms-ið STOPP í
númerið 1900 (1.900 kr.) n
baldur@dv.is
„Milljónir sýrlenskra barna búa við sára neyð“
n Hrafn teflir í 30 klukkustundir n Safnar áheitum fyrir börn n Hægt að sjá flóttamannabúðir með þrívíddargleraugum
Hrafn Stefnir að því
að tefla 200 skákir.
Ný plata í smíðum
n Tónlistarkonan Sóley er nú
í óðaönn að semja efni á sína
þriðju sólóplötu. Hún birti á
fimmtudag myndband á Face-
book-síðu sinni af sjálfri sér
syngja lag af plötunni vænt-
anlegu, aðdáendum hennar
til mikillar ánægju. Sóley, sem
er uppalin í Hafnarfirði og er
einnig meðlim-
ur hljómsveit-
arinnar Sea-
bear, gaf út
plöturnar
We Sink
árið 2011 og
Ask the Deep
fjórum árum
síðar.
Þarf að endurnýja
letrið á steininum?
Graníthöllin tekur að sér að
hreinsa oG endurmála letur á
leGsteinum. einniG tökum við að
okkur að rétta af leGsteina sem
eru farnir að halla.
fyrir
eftir
með öllum legsteinum
allt innifalið
Bæjarhrauni 26,
hafnarfirði
sími 555 3888
granithollin.is
öll okkar verð miðast við
fullBúinn stein með uppsetningu
329.000 kr.
áður: 433.350 kr.
313.000 kr.
áður: 413.350 kr.
385.000 kr.
áður: 503.350 kr.
149.000 kr.
áður: 227.050 kr.
270.000 kr.
áður: 351.550 kr.
304.000 kr.
áður: 402.350 kr.
268.620 kr.
áður: 406.900 kr.
188.100 kr.
áður: 297.300 kr.
188.100 kr.
áður: 297.300 kr.
539.900 kr.
áður: 746.000 kr.
297.420 kr.
áður: 442.900 kr.
*F
rí
up
ps
et
ni
ng
m
ið
as
t v
ið
u
pp
se
tn
in
gu
á
h
öf
uð
bo
rg
ar
sv
æ
ði
nu
.
M
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g
up
ps
el
da
r v
ör
ur
.
nr
. 1
16
-5
nr
. 1
16
-5
nr
. 1
04
nr
. 1
18
nr
. 1
13
nr
. 2
02
1
nr
. G
S1
00
2
nr
. 2
04
2
nr
. 2
04
6
nr
. 2
02
0
nr
. 1
29
-3
Einn spörfugl fylgir
Einn spörfugl fylgir