Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Síða 2
Vikublað 24.–26. maí 20162 Fréttir
Kynningarafsláttur
í verslun Lyfsalans
Bað Höllu
afsökunar
„Hann er búinn að biðjast afsök-
unar og ég trúi á fyrirgefninguna,“
sagði forsetaframbjóðandinn
Halla Tómasdóttir í Bítinu á
Bylgjunni á mánudag. Hún segist
þar með hafa meðtekið afsök-
unarbeiðni Guðna Th. Jóhann-
essonar vegna orða hans um að
það hefði ekki komið fram sterk-
ur kvenframbjóðandi til embætt-
is forseta Íslands og að það hafi
spilað inn í ákvörðun hans að
bjóða sig fram. Halla sagði svo í
beinni hjá Nova á föstudaginn að
þessi orð hefðu komið sér á óvart
þar sem hún hafi talið þau bera
gagnkvæma virðingu fyrir hvort
öðru. „Ég átti við fylgi í könnun-
um, Halla, nákvæmlega ekkert
annað. Aftur, hefði átt að orða
það nákvæmlega þannig,“ er haft
eftir Guðna á Eyjunni.
Kynferðisbrot
gegn fötluðum
Eftir hádegi í dag verður í Há-
skólanum í Reykjavík haldið
málþing um fatlaða þolend-
ur kynferðisbrota. Málþingið
stendur yfir frá klukkan 13 til
17 í stofu V101. Lagadeild og
sálfræðisvið HR standa fyrir
viðburðinum í samstarfi við
Ákærendafélagið, Barnahús
og Stígamót. Á þinginu verða
kynntar fjölmargar áhuga-
verðar rannsóknir sem tengj-
ast þessum viðkvæma hópi
brotaþola. Hæstaréttardómar-
inn Benedikt Bogason verður
fundarstjóri.
P
étur Árni Jónsson, annar
eigenda Mylluseturs, útgáfu-
félags Viðskiptablaðsins og
Fiskifrétta, lét af starfi útgef-
anda í febrúar síðastliðnum og hef-
ur staðan verið lögð niður. Þetta stað-
festir Pétur í samtali við DV en hann
hætti einnig í stjórn útgáfufélagsins.
Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Mylluseturs og faðir Péturs Árna, hef-
ur tekið sæti hans í stjórn félagsins.
„Það verður enginn útgefandi
heldur verður þetta eins og var áður,
einungis ritstjóri á hverjum miðli,“
segir Pétur í samtali við DV en vill ekki
svara því hvað taki við hjá honum.
Fram kemur í gögnum sem var
skilað til Fyrirtækjaskrár Ríkisskatt-
stjóra í febrúar að Pétur settist í
stjórn einkahlutafélagsins Agros Há-
degismóar 5, eða á sama tíma og
það varð eign fagfjárfestingasjóðsins
Gamma: Agros. Sjóðurinn er rekinn
af Gamma. Pétur keypti Myllusetur
haustið 2009. Einkahlutafélag í hans
eigu, PÁJ Invest, á í dag 67% hlut í
útgáfufélaginu. Hin 33% eru í eigu
Sveins B. Jónssonar í gegnum SBJ In-
vest ehf. n haraldur@dv.is
Eigandi Mylluseturs Pétur Árni Jónsson
gegndi um tíma stöðu framkvæmdastjóra og
útgefanda hjá útgáfufélagi Viðskiptablaðsins.
Pétur Árni lét af starfi útgefanda í febrúar
Hættur hjá Viðskiptablaðinu
„Auðvelt að
tortryggja mig“
Guðni Guðnason svarar fyrir meint svik
Í
helgarblaði DV var fjallað um lífs-
hlaup og starfsferil Guðna Guðna-
sonar, sem er í senn ævintýralegt
og að margra mati ótrúlegt. Guðni,
sem býr í Japan, þáði ekki boð um
að koma í viðtal áður en greinin birt-
ist, en gerði það í kjölfarið.
Blaðakona DV spjallaði við Guðna
á Skype og innti hann eftir skýringum
á ýmsu á ferli hans sem fólki hefur
þótt í besta falli ótrúlegt.
Í kjölfar jarðskjálftans í Fukus-
hima hóf hann hjálparstarf sem
enn er við lýði. Hann rekur fyrir-
tæki sem gefur út tónlist og fram-
leiðir kvikmyndir, en aðalstarf hans
er rekstur skólans Rocky Mounta-
in Mystery School. Orðróm um að
hann sé að vinna að mynd með
David Hasselhoff segir hann þó al-
rangan. „Skólinn minn er í 48 lönd-
um.“ Guðni sendir blaðakonu hlekki
á heimasíður sem staðfesta ofan-
greint.
Frægðin skiptir ekki máli
Sem unglingur byrjaði Guðni að
fara til Englands til að nema andleg
fræði. Þar segist hann hafa kynnst
David Bowie á götu árið 1974. „Það
er alveg satt. Ég var 16 ára gamall
og hann stoppaði mig og vin minn á
götu. Ég missti sambandið við hann,
kannski 5–6 árum síðar. Við hitt umst
í Englandi þegar ég kom þangað og
líka í Berlín þegar hann bjó þar. Ég
þekki mikið af frægu fólki, en fyr-
ir mér er það bara fólk, og frægðin
skiptir ekki máli.“
„Ég skil vel að það sé auðvelt að
tortryggja mig,“ segir Guðni, „skólinn
sem ég fór í, Hermetic Order of the
Golden Dawn, er ekki einu sinni með
vefsíðu. Í dag eru skólar sem nota
þetta nafn en þeir eru ekki alvöru-
skólarnir. Minn skóli var stofnað-
ur 1888 í London, en í raun byrjaði
hann í Egyptalandi fyrir 3.000 árum
hjá Salómón konungi, og hefur haft
mörg nöfn.“
Dómsmál og landflótti
Guðni flutti frá Íslandi í kjölfar kæru-
máls eftir bardagamót sem hann
hélt án tilskilinna leyfa. Málið fór
fyrir dóm, en Guðni var ekki sak-
felldur. Upp úr þessu segist Guðni
hafa hrökklast úr landi til Bandaríkj-
anna, þar sem hann stofnaði skólann
skömmu síðar.
Guðni segir það misskilning að
hann státi af preststign í fjölmörg-
um trúarbrögðum. Hann segir þetta
rangt, hann hafi kynnt sér trúar-
brögðin, en lært shamanisma og kab-
balah-fræði.
Gráðurnar að mestu
misskilningur
Doktorsgráða í heimspeki og há-
skólagráða í sálfræði og viðskipta-
fræði, sem talað er um á vefsíð-
um sem tengjast Guðna, eru líka
misskilningur. „Ég tók námskeið í
sálfræði í Svíþjóð og viðskiptagráð-
an var frá verslunardeild Laugarnes-
skóla, sem starfrækt var á tímabili.“
Um doktorsgráðu í frumspeki, sem
Guðni er sagður hafa á heimasíðu
skólans, segir hann: „Þetta er gráða
frá alvöru háskóla. En ég vil ekki nota
þetta lengur. Minn eigin skóli varð
fljótt miklu þekktari en skólinn sem
ég lærði við. Þeir krefjast árgjalds til
að viðhalda gráðunni, en ég skrif-
aði þeim bréf fyrir nokkru síðan og
hef slitið á tengslin við skólann. Mér
finnst gráður ekki skipta máli. Mað-
ur á ekki að hlusta á einhvern bara
af því hann hefur gráðu fyrir aftan
nafnið sitt.“
Um meinta Evrópumeistaratitla
í karate segir Guðni: „Ég er með
2. gráðu svarta beltisins í Shotok-
an Karate, annað er bull. Ég keppti
á tímabili og vann til ýmissa verð-
launa, en engan Evróputitil. Á Íslandi
vildu menn ekki samþykkja gráðuna
mína í karate, en ég er viðurkenndur
hér í Japan.“
Guðni segir einnig rangt að hann
hafi verið listamaður ársins í Svíþjóð.
„Ég fékk eins árs listamannalaun í
Svíþjóð árið 1999. Titilinn ljóðskáld
ársins kannast ég hins vegar við.“
Guðni sýnir blaðakonu bikar sem á
stendur: „International Poet of Mer-
it Award, presented to Guðni Guðna-
son, on this 25th day of August,
2002, by the International Society of
Poetry.“ Að sögn sendi hann ljóð í
samkeppni og vann hana. Verðlaun-
in voru veitt í Washington DC. Litlar
upplýsingar er að finna um keppnina
á netinu.
Lífvarðafyrirtæki Guðna í Banda-
ríkjunum er að hans sögn enn-
þá starfandi. Heimasíða þess er á
netinu, en ekki tókst að sannreyna
það sem þar kemur fram.
Guðni segist ekki kannast við
doktorsritgerð sem dr. Ioannis Gait-
anidis ritaði við Leeds-háskóla, um
viðskiptahlið andlegra fræða. „Það er
hópur af fólki í Englandi sem er mjög
neikvæður gagnvart okkur. Við erum
ekki ódýr skóli. En auðvitað verða
andlegir skólar að taka gjöld eins og
aðrir skólar.“ n
Safnað fyrir Fukushima Guðni sést hér
með Oliviu Newton John, en hún hefur lagt
hjálparstarfi hans í Fukushima lið.
Samstarfsfólk Guðni og Olivia Newton John ásamt mökum.
20. maí 2016
20.–23. maí 2016
39. tbl. 106. árgangur
leiðb. verð 684 kr.helgarblað
Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is
24
dagar í
fyrsta leik
Íslands á
EM 2016 í
Frakklandi
allt innifalið
Verð
frá
aðeins
149.000
Uppsetning, áletrUn,
ígrafin mynd & fleira
sími 555 3888
gr anithollin.is
14–15
Maður á að gera
grín að öllum
n Hið pólitíska kerfi er meingallað n Forsetaframbjóðendur eins og persónu
r í Game of Thrones 20–22
8–11
n Rekur alþjóðlegan dulspekiskóla n Skáldaðar prófgráður og upplogin afrek
n Segir
Bowie hafa verið vin sinn n Titlaður framleiðandi myndar með David Hasselh
off
Viðtal
LeyndarmáL og Lygavefir
Líf Guðna
Halldórs
Guðnasonar
„Það er mín
reynsla að
ekki sé hægt að
trúa orði af því
sem hann segir
Nærmynd
Hugleikur segir húmorinn eins og sjálfsvörn „Hrædda
fólkið
kýs þann sem
lofar lausnum
sem fyrst
Draumurinn
sem fjaraði út
n Samfylkingin í tilvistarkreppu
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is