Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Page 6
Vikublað 24.–26. maí 20166 Fréttir
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur,
jákvæður, harðduglegur, samviskusamur, heiðarlegur,
ábyrgur, úrlausnamiðaður, hafa áhuga á sölumennsku
og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á Steinn@dv.is
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir
góðan og harðduglegan starfsmann.
S
igmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins og fyrrver-
andi forsætisráðherra, lítur
svo á að stjórnarandstaðan
hafi gert tilboð ríkisstjórnarflokk-
anna um að flýta alþingiskosning-
um að engu með því að leggja fram
vantrauststillögu í kjölfarið. Sig-
mundur telur ekkert liggja á kosn-
ingum og að klára verði hin stóru
og mikilvægu mál ríkisstjórnarinn-
ar fyrst, sem hann sér ekki fyrir sér
að muni nást.
Þetta kom fram í viðtali við Sig-
mund Davíð bæði í sjónvarps-
þættinum Eyjunni sem og í útvarps-
þættinum Sprengisandi á sunnudag.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar,
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætis-
ráðherra og Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra, hafa fullyrt að
gengið verði til kosninga í haust auk
þess sem búið er að breyta og skipu-
leggja starfsáætlun Alþingis til sam-
ræmis við það.
Ummæli Sigmundar Davíðs eru
meðal þeirra fjölmörgu sem fall-
ið hafa á undanförnum vikum sem
orðið hafa til þess að vekja efa-
semdir um hvort ríkisstjórnin muni
standa við gefin loforð um kosn-
ingar. Þrátt fyrir að engin dagsetn-
ing hafi enn verið gefin út á boð-
aðar kosningar er ljóst að flokkar
eru farnir að undirbúa sig fyr-
ir þær. Boðað hefur verið til próf-
kjara, þingmenn eru farnir að lýsa
því yfir að þeir muni ekki gefa kost á
sér annað kjörtímabil á meðan ein-
hverjir hafa boðað framboð sitt. Allt
miðað við að kosið verði í haust.
Miðað við breytta starfsáætlun Al-
þingis verður þingi frestað 2. júní,
sumarþing hefst síðan um miðjan
ágúst og er frestað 2. september.
Allt virðist því benda til kosninga
í október en efinn virðist oftar en
ekki bundinn við fyrirvarann; hvort
takist að ljúka þessum fjölmörgu
stóru málum.
Ýmis loðin svör og ummæli
hafa fallið hjá bæði ráðherrum og
stjórnarþingmönnum varðandi
þessar fyrirætlanir um kosningar í
haust á undanförnum vikum. Flest
þó áður en ný starfsáætlun lá fyr-
ir 17. maí síðastliðinn. Í viðtalinu í
Sprengisandi upplýsti Sigmundur
Davíð, sem nýkominn er úr fríi, að
hann hefði heyrt því fleygt víðar en
innan Framsóknarflokksins að ekki
væri hentugt að kjósa í haust með
tilliti til „stóru málanna“. Á þingi í
gær, mánudag, sagði Bjarni Bene-
diktsson hins vegar að ekk-
ert hefði breyst og stefnt
væri að kosningum í haust.
Ljóst er að ekki er einhug-
ur um ágæti snemmbú-
inna kosninga hjá stjórn-
arflokkunum. DV tók
saman tímalínu valinna
atburða og ummæla
stjórnarliða um kosn-
ingarnar í haust. n
Grafið undan
áformum um
kosninGar
Tímalína atburða og ummæla
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
5. apríl
Sigmundur Davíð segir af sér
n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir
af sér sem forsætisráðherra. Heldur áfram
sem þingmaður og formaður Framsóknar-
flokksins.
5. apríl
Vildi klára kjörtímabilið
n Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi greindi einnig frá því að hann
hefði átt í viðræðum við Bjarna Benedikts-
son um að þeir hefðu fullan hug á því að
halda stjórnarsamstarfinu áfram enda
sagðist hann fremur vilja að ríkisstjórnin
starfaði út kjörtímabilið en að boðað yrði til
kosninga.
6. apríl
Stefnt á kosningar
n Bjarni Benediktsson
Samkomulag næst milli ríkisstjórnarflokk-
anna um áframhaldandi samstarf. Tilkynnt
er að kosið verði í haust. „En við ætlum
að stíga viðbótarskref til þess að mæta
kröfum um að virkja lýðræðið í landinu og
til að koma til móts við þá stöðu sem hefur
myndast þá hyggjumst við stefna að því að
halda kosningar í haust og stytta þar með
kjörtímabilið um eitt löggjafarþing,“ sagði
Bjarni Benediktsson. Dagsetningin muni
ráðast af „framvindu mála“.
8. apríl
Vantraust fellt
n Tillaga stjórnarandstöðunnar um
vantraust gegn stjórnarflokkunum var felld
með meirihluta atkvæða.
14. apríl
Ekki vænisjúk
n Vigdís Hauksdóttir (vb.is)
Þingkona Framsóknarflokksins og formað-
ur fjárlaganefndar var spurð hvort kosið
yrði í haust. „Ég hef það fyrir meginreglu að
trúa fólki þegar eitthvað er sagt. Ég er ekki
svona vænisjúk eins og þau. Það er nú samt
þannig að þegar búið er
að uppfylla eitt
skilyrði
stjórnar-
andstöð-
unnar eða
einhverjar
kröfur
hennar
þá er bara
dregin ný
víglína.
Þannig
hefur það
verið í þau þrjú
ár sem ég hef
verið með þetta
fólk í stjórnar-
andstöðu.“
15. apríl
Fullyrt um kosningar
n Sigurður Ingi Jóhannsson (Kjarninn.is)
Kjarninn sendi fyrirspurn til forsætisráð-
herra til að fá endanlega á hreint hvort
boðað yrði til kosninga til Alþingis í haust. Í
svari aðstoðarmanns Sigurðar Inga sagði:
„Eins og fram hefur komið mun verða boðað
til kosninga í haust. Dagsetning hefur ekki
verið ákveðin.“
n Stjórnarliðar á móti kosningum fá liðsstyrk
frá Sigmundi Davíð n Ýmis loðin ummæli um loforðið