Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Page 16
Vikublað 24.–26. maí 20164 Viðhald húsa - Kynningarblað Verksýn ehf. Viðhald og endurbætur í öruggum höndum V erksýn ehf. er tækniþjón- usta með sérhæfingu á sviði viðhalds og endur- bóta á mannvirkjum, inn- andyra sem utan. Hjá fyrir- tækinu starfa sérfræðingar sem hafa yfirgripsmikla reynslu á þessu sviði. Verksýn sinnir einnig fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf með nýframkvæmd- um. Um er að ræða almenna fram- kvæmdaráðgjöf, álitsgerðir, bygginga- stjórnun og hönnun mannvirkja. Frá stofnun fyrirtækisins árið 2006 hefur starfsmönnum fjölgað jafnt og þétt og í dag eru átta starfsmenn hjá Verksýn. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru t.d. einstaklingar, fyrirtæki, stofnan- ir, fasteignafélög og húsfélög. Mark- mið Verksýnar er að mæta þörfum viðskiptavina sinna á besta mögu- lega hátt með nýtingu þeirrar þekk- ingar og þess mannauðs sem fyrir- tækið býr yfir. Hjá Verksýn starfa sérfræðingar með áratuga reynslu af störfum við mannvirkjagerð og við viðhald og endurbætur mannvirkja. Verksýn starfar eftir gæðakerfi sem vottað er af Mannvirkjastofnun. Reynir Kristjánsson stofnaði Verk- sýn árið 2006 og hefur stýrt fyrirtæk- inu síðan. Fagþekking Starfsmenn Verksýnar hafa víðtæka reynslu af ráðgjöf um viðhald fast- eigna. Þeir búa yfir mikilli fagþekk- ingu á iðngreinum, sem er ein af helstu undirstöðum vandaðrar og faglegrar ráðgjafar. Verksýn hefur á að skipa fjölda byggingafræðinga og iðnmeistara. Sérstök hæfni þeirra í greiningu á byggingarskemmdum og þekking á byggingatækni tryggir gæði í skipulagningu, útfærslu, rekstri og viðhaldi fasteigna. Ástandsskoðun Verksýnar Ástandsskýrsla er það tæki sem fast- eignaeigendur og forsvarsmenn hús- félaga hafa til að leggja mat á viðhalds- þörf á hverjum tíma. Ástandsskýrslan gefur glögga mynd af viðhaldsþörf næstu árin og er áreiðanlegur grund- völlur ákvarðanatöku. Árleg viðhaldsþörf fasteigna Út frá reynslutölum er áætlað að 1–2% af verðmæti fasteigna þurfi til að mæta eðlilegu viðhaldi þeirra á hverju ári. Með því að grípa tím- anlega inn í óhjákvæmilegt „hrörn- unarferli“ er hægt að minnka fram- kvæmdakostnað verulega. Lagnir Viðhald lagna krefst vandaðs undir- búnings, enda er oft um mjög kostn- aðarsamar framkvæmdir að ræða. Við veitum ráðgjöf varðandi: grunn- og jarðlagnir, hita- og neysluvatns- lagnir. Ókeypis námskeið í undirbúningi viðhaldsframkvæmda Verksýn býður stjórnum húsfélaga til námskeiðs í undirbúningi viðhalds- framkvæmda. Farið er yfir feril viðhalds- framkvæmda á fjöl- býlishúsum. Nám- skeiðin eru haldin að Síðumúla 1, Reykjavík, og eru opin öllum stjórn- armönnum hús- félaga, þeim að kostnaðarlausu. Skráning með tölvupósti á verk- syn@verksyn.is eða í síma 517 6300. Útboð Útboðsgögn eru lykilgögn eigenda þegar kemur að framkvæmdum. Verksýn býður út tugi framkvæmda á hverju ári. Með útboðsgögnum er tryggt að verk- takar bjóði í verkið á sama grundvelli og eigendur eigi auðvelt með að meta tilboðin. Reyndur umsjónaraðili Þegar ráðist er í viðhaldsfram- kvæmdir er nauðsynlegt að hafa reyndan umsjónar- og eftirlitsað- ila með verkinu. Sem eftirlitsað- ili tryggir Verksýn að verktaki sinni þeim skyldum sem á hann eru lagðar samkvæmt ákvæðum útboðsgagna: 1. Að ábyrgir iðnmeistarar séu skráðir á viðeigandi verkliði 2. Fer yfir allar tryggingar verktaka 3. Yfirfer tæknilegar upplýsingar 4. Yfirfer verkáætlanir 5. Eftirlit með framgangi framkvæmda 6. Eftirlit með vinnubrögðum og umgengni 7. Leysir úr óvissuatriðum 8. Stjórnar verkfundum 9. Ritar fundargerðir 10. Fer yfir reikninga frá verktaka 11. Hefur umsjón með úttektum 12. Samskipti við íbúa 13. Varðveitir gögn í 10 ár eftir verklok Kostnaður við umsjón og eftirlit skilar sér til eigenda í hagkvæmni og meiri gæðum framkvæmda. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.verksyn.is. n myndiR sigtRygguR aRi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.