Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Síða 16
Vikublað 24.–26. maí 20164 Viðhald húsa - Kynningarblað
Verksýn ehf.
Viðhald og endurbætur
í öruggum höndum
V
erksýn ehf. er tækniþjón-
usta með sérhæfingu á
sviði viðhalds og endur-
bóta á mannvirkjum, inn-
andyra sem utan. Hjá fyrir-
tækinu starfa sérfræðingar sem hafa
yfirgripsmikla reynslu á þessu sviði.
Verksýn sinnir einnig fjölbreyttum
verkefnum sem snúa að eftirliti og
annarri ráðgjöf með nýframkvæmd-
um. Um er að ræða almenna fram-
kvæmdaráðgjöf, álitsgerðir, bygginga-
stjórnun og hönnun mannvirkja. Frá
stofnun fyrirtækisins árið 2006 hefur
starfsmönnum fjölgað jafnt og þétt og
í dag eru átta starfsmenn hjá Verksýn.
Viðskiptavinir fyrirtækisins eru
t.d. einstaklingar, fyrirtæki, stofnan-
ir, fasteignafélög og húsfélög. Mark-
mið Verksýnar er að mæta þörfum
viðskiptavina sinna á besta mögu-
lega hátt með nýtingu þeirrar þekk-
ingar og þess mannauðs sem fyrir-
tækið býr yfir.
Hjá Verksýn starfa sérfræðingar
með áratuga reynslu af störfum við
mannvirkjagerð og við viðhald og
endurbætur mannvirkja.
Verksýn starfar eftir gæðakerfi
sem vottað er af Mannvirkjastofnun.
Reynir Kristjánsson stofnaði Verk-
sýn árið 2006 og hefur stýrt fyrirtæk-
inu síðan.
Fagþekking
Starfsmenn Verksýnar hafa víðtæka
reynslu af ráðgjöf um viðhald fast-
eigna. Þeir búa yfir mikilli fagþekk-
ingu á iðngreinum, sem er ein af
helstu undirstöðum vandaðrar og
faglegrar ráðgjafar. Verksýn hefur á
að skipa fjölda byggingafræðinga og
iðnmeistara. Sérstök hæfni þeirra í
greiningu á byggingarskemmdum og
þekking á byggingatækni tryggir gæði
í skipulagningu, útfærslu, rekstri og
viðhaldi fasteigna.
Ástandsskoðun Verksýnar
Ástandsskýrsla er það tæki sem fast-
eignaeigendur og forsvarsmenn hús-
félaga hafa til að leggja mat á viðhalds-
þörf á hverjum tíma. Ástandsskýrslan
gefur glögga mynd af viðhaldsþörf
næstu árin og er áreiðanlegur grund-
völlur ákvarðanatöku.
Árleg viðhaldsþörf fasteigna
Út frá reynslutölum er áætlað að
1–2% af verðmæti fasteigna þurfi
til að mæta eðlilegu viðhaldi þeirra
á hverju ári. Með því að grípa tím-
anlega inn í óhjákvæmilegt „hrörn-
unarferli“ er hægt að minnka fram-
kvæmdakostnað verulega.
Lagnir
Viðhald lagna krefst vandaðs undir-
búnings, enda er oft um mjög kostn-
aðarsamar framkvæmdir að ræða.
Við veitum ráðgjöf varðandi: grunn-
og jarðlagnir, hita- og neysluvatns-
lagnir.
Ókeypis námskeið í undirbúningi
viðhaldsframkvæmda
Verksýn býður stjórnum húsfélaga til
námskeiðs í undirbúningi viðhalds-
framkvæmda. Farið
er yfir feril viðhalds-
framkvæmda á fjöl-
býlishúsum. Nám-
skeiðin eru haldin
að Síðumúla 1,
Reykjavík, og eru
opin öllum stjórn-
armönnum hús-
félaga, þeim að
kostnaðarlausu.
Skráning með
tölvupósti á verk-
syn@verksyn.is eða
í síma 517 6300.
Útboð
Útboðsgögn eru
lykilgögn eigenda
þegar kemur að
framkvæmdum.
Verksýn býður út
tugi framkvæmda
á hverju ári. Með
útboðsgögnum
er tryggt að verk-
takar bjóði í verkið
á sama grundvelli og eigendur eigi
auðvelt með að meta tilboðin.
Reyndur umsjónaraðili
Þegar ráðist er í viðhaldsfram-
kvæmdir er nauðsynlegt að hafa
reyndan umsjónar- og eftirlitsað-
ila með verkinu. Sem eftirlitsað-
ili tryggir Verksýn að verktaki sinni
þeim skyldum sem á hann eru lagðar
samkvæmt ákvæðum útboðsgagna:
1. Að ábyrgir iðnmeistarar séu
skráðir á viðeigandi verkliði
2. Fer yfir allar tryggingar verktaka
3. Yfirfer tæknilegar upplýsingar
4. Yfirfer verkáætlanir
5. Eftirlit með framgangi
framkvæmda
6. Eftirlit með vinnubrögðum og
umgengni
7. Leysir úr óvissuatriðum
8. Stjórnar verkfundum
9. Ritar fundargerðir
10. Fer yfir reikninga
frá verktaka
11. Hefur umsjón með úttektum
12. Samskipti við íbúa
13. Varðveitir gögn í 10 ár eftir
verklok
Kostnaður við umsjón og eftirlit
skilar sér til eigenda í hagkvæmni og
meiri gæðum framkvæmda.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni www.verksyn.is. n
myndiR sigtRygguR aRi