Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Page 21
Vikublað 24.–26. maí 2016 Menning 13
Einn þekktasti ljósmyndari heims, Steve McCurry, er sakaður um að hagræða sannleikanum
H
inn heimsþekkti ljós-
myndari Steve McCurry
hefur undanfarnar vikur
staðið í ströngu við að verja
sig af ásökunum um hag-
ræðingu sannleikans í ljósmynd-
um sínum eftir að upp komst að
nokkrum ljósmyndum hans hafði
verið breytt í myndvinnsluforriti.
McCurry er einn virtasti ferða-
og fréttaljósmyndari heims og er
einna helst þekktur fyrir áhrifa-
mikla portrett mynd sína af græn-
eygðri afg anskri stúlku sem
horfir stingandi augnaráði í mynda-
vélarlinsuna. Myndin, sem er ein
allra þekktasta fréttaljósmynd sam-
tímans, var tekin í flóttamannabúð-
um í Pakistan árið 1984 en birtist
fyrst á forsíðu tímaritsins National
Geographic í júní ári seinna.
Myndvinnsluskandallinn kvikn-
aði eftir að ankannalegt umferð-
arskilti á ljósmynd Steves McCurry
frá Kúbu vakti athygli ítalsks ljós-
myndara á ljómyndasýningu á Ítal-
íu. Umferðarskiltið virtist hafa ver-
ið fært um nokkra millimetra. Eftir
að undrandi ljósmyndarinn blogg-
aði um umferðarskiltið fóru ljós-
myndaunnendur að skoða önnur
verk McCurry og fundu í kjölfar-
ið fleiri ljósmyndir sem augljóslega
hafði verið átt við í myndvinnslu-
forritum. Í einni mynd af börnum
að leik í tjörn, var barn klippt út og
handleggur annars í jaðri rammans
tekinn burt. Þá hafði hjól í bakgrunni
verið klippt úr ljósmynd af rick-
shaw-hjóli í indverskri hellidembu.
Eftir breytingarnar varð myndaupp-
byggingin einfaldari og stílhreinni.
Í skriflegri yfirlýsingu sagði Mc-
Curry að um mistök væri að ræða
sem hann hefði sjálfur ekki vitað
um, hann hefði ekki alltaf næga yf-
irsjón með prentun og útgáfu ljós-
mynda sinna. Hann sagði að hann
myndi aldrei samþykkja slík-
ar breytingar og sagði að tækni-
manninum, sem hefði gerst sek-
ur um breytingarnar, hefði verið
sagt upp. „Ég er að vinna í því að
breyta vinnuferlunum í stúdíóinu til
að koma í veg fyrir að eitthvað svona
komi fyrir aftur,“ skrifaði hann.
McCurry segist hins vegar ekki
vera andsnúinn því að breyta lita-
andstæðum (contrast) eða tónum
til að laga hluta myndar sem er trufl-
andi, en segir óásættanlegt að færa
til hluta myndarinnar. Hann segir þó
misjafnt hversu strangur hann sé á
þessu eftir því hvers konar verkefni
sé um að ræða, fréttaljósmyndir eða
persónulegar ferðaljósmyndir.
Málið hefur vakið hörð viðbrögð
og deilur innan ljósmyndaheims-
ins um réttmæti þess að
breyta
þeim eftir á með myndvinnslu-
forritum og sanngildi slíkra ljós-
mynda. Orðstír McCurry þykir hafa
borið nokkurn hnekki af málinu og
enn er kallað eftir nánari útskýring-
um. n
„Ég er að vinna
í því að breyta
vinnuferlunum í stúdíóinu
til að koma í veg fyrir
að eitthvað svona komi
fyrir aftur.
Sakaður um
að breyta
myndum Hinn
heimsfrægi ljós-
myndari Steve
McCurry stend-
ur hér ásamt
sinni þekktustu
mynd, Afgönsku
stúlkunni.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Myndvinnsluskandall
skekur ljósmyndaheiminn
Loach hlaut
gullpálmann
Breski leikstjórinn Ken Loach
hlaut Gullpálmann, aðalverð-
launin á kvikmyndahátíðinni í
Cannes, í annað skipti um helgina
fyrir myndina I, Daniel Blake. Sig-
ur hins 79 ára gamla Loach kom
mörgum, og ekki síst honum sjálf-
um, á óvart en veðbankar höfðu
rangt fyrir sér um mörg helstu
verðlaun hátíðarinnar.
I, Daniel Blake, sem er eins og
flest önnur verk Kens Loach fé-
lagslegt raunsæisdrama, fjallar
um húsasmið sem verður óvinnu-
fær eftir hjartaáfall en týnist fljót-
lega í ranghölum og tiktúrum
breska bótakerfisins. Myndin er
hörð pólitísk ádeila á misskipt-
ingu og hugmyndafræði frjáls-
hyggjunnar. Loach sagði það
undarlegt að taka við verðlaunum
í svo ríkmannlegu og skrautlegu
umhverfi fyrir verk sem var inn-
blásið af fólki sem þarf að glíma
við fátækt og erfiðar aðstæður.
Leikarinn Donald Sutherland,
sem sat í dómnefndinni, seg-
ir myndina snerta strengi bæði í
hjarta og sál áhorfandans.
Grand Prix, silfurverðlaun há-
tíðarinnar, hlaut hinn 27 ára gamli
Kanadamaður, Xavier Dolan, fyrir
myndina It‘s Only the End of the
World. Myndin hlaut mjög mis-
jafna dóma og var baulað á fjöl-
miðlasýningu myndarinnar.
Íranska myndin The Salesman
eftir Asghar Farhadi hlaut tvenn
verðlaun, bæði fyrir besta handrit
og Shahab Hosseini var verðlaun-
aður fyrir leik sinn í myndinni.
Finnska myndin The Happiest
Day in the Life of Olli Mäki eftir
Juho Kuosmanen hlaut Un Certa-
in Regard-verðlaunin, sem eru
veitt fyrir frumleika og hugrekki í
kvikmyndagerð.
Dansk-afganska myndin Wolf
and Sheep eftir Sharhrbanoo
Sadat sigraði í Director‘s fortnight-
flokknum, en síðasta kvikmynd
Sólveigar Anspach, The together
project, tók þátt í þeim flokki.
FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS
Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum
Þjóðleg
sumarhús sem falla
einstaklega vel að
íslensku landslagi
Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er
komin mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3-5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is