Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Blaðsíða 2
Vikublað 13.–15. september 20162 Fréttir Kona bauð milljónir í mál- verk og gat ekki borgað n Litið á atvikið sem mannlegan harmleik n Einsdæmi í sögu Gallerí Foldar É g mætti á uppboðið af því að ég hafði áhuga á tveimur verkum sem þar voru í boði. Ég hafði tekið eftir því að þessi kona bauð í nokkur verk sem voru fyrr í röðinni og það kom mér á óvart. Ég fylgist vel með uppboðum sem þessum og veit yfirleitt hverjir sækjast eftir dýr­ ustu verkunum. Þessa konu hafði ég aldrei séð og hélt að þarna væri kannski á ferðinni einhver kvóta­ drottning utan af landi með ný­ tilkominn áhuga á myndlist,“ seg­ ir fjársterkur listaverkaunnandi sem sótti listmunauppboð Gallerí Foldar í vikunni sem leið. Bauð í verk fyrir 10–20 milljónir Kona sem bauð í fjölmörg verk sem síðan voru slegin henni setti strik í reikninginn á uppboði Gall­ erí Foldar. Þegar kom að greiðslu verkanna kom í ljós að konan hafði engin tök á því að greiða fyrir verk­ in. Heimildir DV herma að konan glími við andleg veikindi og litið sé á málið sem mannlegan harmleik. „Það var alveg sama hvað ég bauð, hún bauð alltaf betur. Að lokum gafst ég upp og yfirgaf staðinn. Ef ég ætti að skjóta þá myndi ég reikna með að hún hafi boðið í verk fyrir 10–20 milljónir króna,“ segir lista­ verkaunnandinn, sem ekki vill láta nafn síns getið. Einsdæmi í sögu Gallerí Foldar „Þessi uppákoma er einsdæmi í tuttugu ára sögu Gallerí Foldar. Þetta var hundraðasta uppboðið okkar auk þess sem við höfum staðið fyrir um 250 vefuppboðum. Það hefur aldrei gerst að kaupandi hafi ekki getað greitt fyrir verk í lok uppboðsins. Það gerist reglulega að kaupendur nái ekki í verkin fyrr en eftir einhverjar vikur enda við­ skiptavinir staðsettir úti um allar jarðir. En að verk sé slegið kaup­ anda sem ekki getur greitt fyrir það hefur aldrei átt sér stað áður,“ segir Jóhann Ágúst Hansen, fram­ kvæmdastjóri Gallerí Foldar. Að hans sögn eru afdrif verkanna nú í höndum eigenda þeirra. „ Eigendur listaverkanna munu nú ákveða hvort reynt verði að selja þau aftur á næsta uppboði sem verður eftir nokkra mánuði,“ segir Jóhann. Að sögn framkvæmdastjórans mun Gallerí Fold ekki gera neinar breytingar á framkvæmd uppboða eftir atvikið. „Hjá stórum erlendum uppboðshúsum eins og Christie's og Bruun Rasmussen þekkist að mögulegir kaupendur séu beðnir um bankaupplýsingar áður en þeir taka þátt. Ég á ekki von á að það færi vel í landann ef slíkt tíðkaðist hérlendis og því er ekkert slíkt á dagskrá,“ segir Jóhann. n Jóhann Ágúst Hansen Framkvæmdastjórinn segir að uppákoman í síðustu viku sé einsdæmi í sögu Gallerí Foldar. Mynd SiGtryGGur Ari Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Þessa konu hafði ég aldrei séð og hélt að þarna væri kannski á ferðinni einhver kvótadrottning utan af landi með nýtilkominn áhuga á myndlist. – gestur á uppboðinu R óbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, spurði í óundirbúnum fyrir­ spurnatíma á Al­ þingi í gær, mánudag, Lilju D. Alfreðsdóttur utanríkisráðherra út í orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­ sonar, þingmanns og formanns Fram­ sóknarflokksins, um að brotist hefði verið inn í tölvu hans á tíma hans sem forsætis­ ráðherra. Spurði Róbert utanríkisráðherra hvernig stjórnvöld hefðu brugðist við fréttum um orð Sig­ mundar, sem hann lét falla á miðstjórnar­ fundi Framsóknarflokks­ ins á Akureyri um síðustu helgi, og lýsti þeirri upplifun sinni að þau tækju yfirlýsingu forsætisráð­ herrans fyrrverandi kæruleysislega. „Ég spyr þessarar spurningar vegna þess að ég hef á tilfinn­ ingunni að stjórnvöld taki þessari yfirlýsingu hæstvirts þingmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar bara dálítið kæruleysislega. Ég geri það ekki. Mér finnst það vera alvar­ legt mál ef upplýst er um það að hægt sé að brjótast inn í tölvu forsætisráðherra landsins. Ég geri þá kröfu til stjórnvalda að slíkar yfirlýsingar séu teknar alvarlega,“ sagði Róbert. Bætti hann því við hvort ný­ skipað þjóðaröryggis­ ráð ætti ekki að fara með athugun málsins. Lilja Alfreðsdóttir svaraði því að þjóðar­ öryggisráð heyri nú undir forsætis­ ráðuneyti Sigurðar Inga Jóhannssonar. Að hennar mati væri mikil ­vægt að atburð­ urinn sem um ræðir verði kannaður. „Ég get því miður ekki svarað þessu á þessum tímapunkti því að það kemur ekki í minn hlut að kalla þjóðaröryggisráð saman, en þetta er góð ábending og ég tel að það þurfi líklega að skoða það eitthvað frekar,“ sagði Lilja. n Heyrir undir þjóðaröryggisráð, segir Lilja Alfreðsdóttir Spurði um innbrot í tölvu Sigmundar Átta þing- fundir eftir Forsætisnefnd Alþingis sam­ þykkti á mánudag starfsáætlun fyrir septembermánuð. Þar segir að þann 29. september verði þing rofið, eða eftir sautján daga. Á þeim tíma verða haldnir átta þingfundir, að meðtöldum þeim sem fram fer í dag, þriðjudag. Eldhúsdagsumræður munu fara fram fram mánudaginn 26. september en til stendur að kjósa til Alþingis þann 29. október. Flokkarnir gefa sér þannig rúmar fjórar vikur til að berjast um at­ kvæði kjósenda. Dýpsta borholan HS Orka hefur varið tæpum tveimur milljörðum til borunar á dýpstu borholu landsins. Hún verður um fimm kílómetra djúp. Vonast er til að hún skili marg­ faldri orku á við venjulega bor­ holu. RÚV greinir frá þessu. Holan sem um ræðir er við Reykjanesvirkjun og er þegar 3.000 metra djúp. Hana á að dýpka. Haft er eftir Ásgeiri Mar­ geirssyni forstjóra að ekki sé úti­ lokað að ná 30–40 megavöttum úr holunni. Hefðbundin háhita­ hola í dag er yfirleitt á bilinu 5 til 10 megavött. „Þetta gæti orðið nokkrum sinnum það.“ Áætlað er að borun ljúki í lok árs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.