Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Blaðsíða 17
Vikublað 13.–15. september 2016 Kynningarblað - Veitingar 3 Í rauninni komum við með þetta hingað heim en þrír okkar eru listamenn; leikari og tónlistar- menn, og við fengum þá hug- mynd að hafa hliðarverkefni til að starfa við. Við settum þetta í fram- kvæmd á nýliðnu sumri og þetta hef- ur gengið vonum framar. Íslendingar elska þessar belgísku kartöflur,“ seg- ir Arnar Dan, einn fimm eigenda Reykjavík Chips, Vitastíg 10, Reykja- vík. Belgíu-vísunin snýst um að fram- reiðsluaðferðin er belgísk að upp- runa en kartöflurnar eru bornar fram í kramhúsi. Eigendur að Reykjavík Chips eru þeir Ragnar Pálmar Kristjánsson, Hermann Óli Davíðsson, Arnar Dan, Friðrik Dór og Ólafur Arnalds. Arnar Dan er leikari hjá Borgarleikhúsinu og þeir Friðrik Dór og Ólafur Arnalds eru mjög þekktir tónlistarmenn. Þrátt fyrir annir í sínum aðalstörfum leggja þessir þekktu listamenn mikla vinnu í framleiðsluna á frönsku kartöflun- um sínum, ásamt félögum sínum: „Framleiðsluferlið er margslung- ið og þetta er ekki eins og frönsku kartöflurnar sem þú kaupir á venju- legum hamborgarastöðum. Við leggjum megináherslu á að matreiða úrvals franskar og gerum þær frá grunni. Við fáum sendar heilar kart- öflur í sekkjum frá Spáni og Hollandi og víðar, en það fer eftir árstíma þar sem kartöflur eru teknar upp einu sinni á ári. Við tökum þær inn og höldum þeim í réttu hitastigi í ein- hvern tíma. Síðan skerum við þær og leggjum í bleyti, skolum af þeim sterkjuna og sjóðum þær í hálftíma upp úr saltlegi til að fá seltuna inn í kartöflurnar en ekki utan á þær. Síð- an steikjum við þær, kælum, steikj- um þær aftur og þannig fara þær út. Þetta er nokkuð viðamikið ferli og kostar það að við gerum ekkert ann- að á meðan.“ Arnar segir að fólk kunni vel að meta þessa alúð sem lögð er í vinnsl- una á kartöflunum og einnig það að fá hollari franskar en gengur og gerist. „Við bjóðum upp á tvær sósur sem eru alveg vegan. Síðan notum við úrvals majónes í sósurnar okkar og yfir leitt besta mögulega hráefni sem fyrirfinnst og það er ekkert hálf- kák í þeim efnum. Þú finnur þegar þú borðar þær að þetta er miklu meira en meðlæti,“ segir Arnar. Sósurnar skipta miklu máli þegar svona belgískar, franskar kartöflur eru snæddar. Fyrir utan hina klass- ísku bearnaise eru ýmsar girnilegar sósur í boði: „Langvinsælasta sósan er Sam- úraj sem er Chili-Mayo og graslauks- og hvítlaukssósan okkar eru líka vin- sælar en þær eru léttari sósur með meira af sýrðum rjóma. Allar sós- ur sem við bjóðum upp á gerum við líka frá grunni á staðnum. Í þessum heimi þar sem kartöflur eru þunga- miðjan er endalaust hægt að bæta við og við erum líka opnir fyrir hug- myndum frá starfsfólki okkar. Það er kannski ein af ástæðunum fyrir því að fólki finnst gaman að vinna hérna því hugmyndir þess eru vel metnar.“ Arnar segir að þeir félagar hafi haft að leiðarljósi að halda sér við sitt afmarkaða svið og vera góðir í því sem þeir gera – en láta annað liggja á milli hluta: „Það er gott að þurfa ekki að gera allt heldur gera eitthvað eitt vel og vinna vel innan ákveðins ramma. Ef fólk vill fá sér hamborgara fer það eitthvert annað en það veit hvað það fær hjá okkur. Sérþekkingin er það sem gildir og að hver og einn einbeiti sér að sínu fagi.“ Sem fyrr segir er Reykjavík Chips til húsa að Vitastíg 10. Auk kartöflu- réttanna einstöku er mikið úrval af bjór á staðnum en mörgum þykir gott að skola kartöflum af þessu tagi niður með bjór. Opið er mánudaga til föstudaga frá 11.30 til 22.00 og laugardaga og sunnudaga frá 11.30 til 23.00. Reykjavík Chips býður einnig upp á veisluþjónustu og starfrækir „Chips Bar“ sem er geysilega vinsæll. Þar er um að ræða færanlegan bar þar sem boðið er upp á sama úrval af veiting- um og á staðnum að Vitastíg og vek- ur barinn mikla lukku í veislum. Sjá nánar á rvkchips.is n „Íslendingar elska þessar belgísku kartöflur“ Reykjavík Chips slær í gegn Starfskraftur óskast! Reykjavík Chips óskar eftir fersk- um einstaklingi til að slást í hóp- inn. Ef þú hefur náð 18 ára aldri og ert í leit að dagvinnu skaltu senda umsókn með ferilskrá á netfangið reykjavikchips@gmail.com

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.