Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Blaðsíða 16
Vikublað 13.–15. september 20162 Veitingar - Kynningarblað Taílensk matargerð eins og hún gerist best Ban Thai, Yummi Yummi og Nana Thai T ómas Boonchang fluttist til Íslands frá Taílandi árið 1987. Örfáum árum síðar opnaði hann Ban Thai, á Laugavegi 130, rétt fyrir ofan Hlemm, sem lengi hefur verið talinn einn besti taílenski staður landsins – ef ekki sá besti. En Tómas rekur fleiri staði, bæði hér á höfuð- borgarsvæðinu og einnig í gamla heimalandinu, Taílandi. Dagana 12. til 21. september verður Ban Thai lokað vegna leyfa og þá daga er kjör- ið að heimsækja Yummi Yummi, sem er beint á móti Banthai, að Hverfisgötu 123, eða Nana Thai sem er í Skeifunni 4. Tómas vill gjarnan láta koma fram að þjónustan sé mun hraðari á þessum tveimur stöðum en á Ban Thai. Gestir á Ban Thai geri sumir sér ekki alltaf grein fyrir því að þar sé hæg matreiðsla, enda sitja gestir þar gjarnan lengi í huggulegu umhverfi og njóta matarins. Ban Thai er ekki skyndibitastaður heldur fínn, taí- lenskur veitingastaður. Meirihluti þeirra sem koma á Yummi Yummi sækir matinn sinn og segir Tómas að margir sem vinna í nágrenninu sæki sér hádegismat og fari með hann í vinnuna. Hins vegar er búið að stækka staðinn og núna er hægt að sitja til borðs í litlum en huggulegum sal, til dæmis úti við glugga, með útsýni yfir nágrennið. Vinsælasti rétturinn á Yummi Yummi er steiktar hrísgrjónanúðlur. Nokkrir aðrir mjög ljúffengir réttir eru í boði en nýja matseðilinn má sjá á vefsíðunni yummy.is Yummi Yummi er opinn virka daga frá kl. 11.30 til 21 og um helgar frá 17 til 22. Síminn er 588-2121. Nana Thai er öllu stærri staður, í Skeifunni 4, mjög vinsæll og með orð á sér fyrir mjög góðan taílensk- an mat. Nana Thai er fjölsóttur af vinnandi fólki í Skeifunni og miklu víðar, en líka af öðrum. Karríréttir, fiskréttir, grænmetisréttir, steikt hrís- grjón og núðlur ásamt fjölmörgum öðrum réttum eru í boði. Meðal annars eru matseðlar fyrir tvo til fimm sem geta þá skipt á milli sín nokkrum réttum og upplifað mjög fjölbreytta máltíð. Ef þú elskar Ban Thai þá ættir þú endilega að prófa Nana Thai! Nánari upplýsingar um matseðli Nana Thai er að finna á vefsíðunni banthai.is Nana Thai er opinn virka daga frá kl. 11.30 til 21 og um helgar frá 17 til 21. Síminn er 588-1818. Ban Thai er rómaður taílenskur veitingastaður á Laugavegi 130, rétt fyrir ofan Hlemm, sem nýtur sífellt meiri vinsælda. Orðspor staðarins hefur borist víða og margir heims- frægir einstaklingar hafa snætt á Ban Thai. Matreitt er úr fersku hrá- efni og er allt eldað frá grunni. Allur matur er eldaður eftir pöntun og því er enginn matur tilbúinn fyrirfram. Ekki er notað MSG eða önnur auka- efni í matinn. Tímaritið Reykjavík Grapevine valdi Ban Thai besta taílenska veitingastaðinn á Íslandi árin 2009, 2010, 2011, 2012, 2013, 2014, 2015 og 2016. Þá valdi DV staðinn sem einn af tíu bestu veitingastöðum landsins árið 2011. Staðurinn er opinn virka daga frá kl. 18 til 22 og um helgar frá kl. 18 til 23.30. Ban Thai Laugavegi 130, Reykjavík sími 692-0564 og 55-22-444 www.banthai.is. n Myndir Sigtryggur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.