Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 13.–15. september 20164 Veitingar - Kynningarblað Gamla vínhúsið sérhæfir sig í steikum Hádegistilboð: Léttari steikur á aðeins 1.450 kr. G amla vínhúsið, sem er í eigu hjónanna Unnar Örnu Sig­ urðardóttur og Karls Víkings Stefánssonar, er steikhús sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Hjónin segja sína sérhæfingu liggja í steikunum og nefnir Unnur að nautasteikin sé einna vinsælust hjá þeim en hrossasteikin og hrefnu­ steikin koma einnig mjög sterkt inn. „Þeir sem hafa smakkað hrossasteik­ ina fara gjarnan í hana aftur, frekar en nautasteikina,“ segir Unnur. „Það má því segja að þessar þrjár séu þær vin­ sælustu en auðvitað má finna margt annað gómsætt á matseðlinum hjá okkur,“ bætir hún við. Tveir staðir á höfuðborgarsvæðinu Gamla vínhúsið er staðsett bæði í Hafnarfirði, á Vesturgötu 4, og í Reykjavík, á Laugavegi 73. Það er því ekki langt fyrir íbúa höfuðborgar­ svæðisins að fara til að komast í góða steik. „Við leggjum mikið upp úr góðu verði, góðu hráefni og vina­ legri þjónustu,“ segir Unnur. „ Okkar markmið er að viðskipskiptavinir okkar upplifi kósí andrúmsloft í um­ hverfi þar sem maturinn fær að njóta sín til hins ýtrasta,“ bætir hún við. Hádegistilboð „Það er vert að nefna að hægt er að fá sér léttari steikur í hádeginu eða mín­ útusteik (hross) á aðeins 1.450 krón­ ur í Hafnarfirðinum sem hefur ver­ ið mjög vinsælt; sérstaklega á meðal Hafnfirðinganna,“ segir Unnur. Fjölskyldufyrirtæki Gamla vínhúsið var fyrst stofnað í Hafnarfirði árið 2006 af Unni og Karli. Árið 2010 opnuðu hjónin ann­ an stað í Reykjavík og eru nú á Lauga­ vegi 73 og eru búin að vera þar síðan 2013. Opnunartími veitingahússins er sem hér segir: Hafnarfjörður • Mánudag til fimmtudags frá kl. 12.00 til 21.30 • Föstudag frá kl. 12.00 til 22.30 • Laugardag frá kl. 18.00 til 22.30 • Sunnudag frá kl. 18.00 til 21.30 Reykjavík • Mánudag til fimmtudag frá kl. 12.00 til 22.00 • Föstudag frá kl. 12.00 til 23.00 • Laugardag frá kl. 18.00 til 23.00 • Sunnudag frá kl. 18.00 til 22.00 Hægt er að skoða matseðil, sérstök tilboð fyrir hópa og fleira á heima­ síðunni www.gamlavinhusid.is n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.