Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Qupperneq 18
Vikublað 13.–15. september 20164 Veitingar - Kynningarblað
Gamla vínhúsið sérhæfir sig í steikum
Hádegistilboð: Léttari
steikur á aðeins 1.450 kr.
G
amla vínhúsið, sem er í eigu
hjónanna Unnar Örnu Sig
urðardóttur og Karls Víkings
Stefánssonar, er steikhús sem
enginn ætti að láta framhjá
sér fara. Hjónin segja sína sérhæfingu
liggja í steikunum og nefnir Unnur
að nautasteikin sé einna vinsælust
hjá þeim en hrossasteikin og hrefnu
steikin koma einnig mjög sterkt inn.
„Þeir sem hafa smakkað hrossasteik
ina fara gjarnan í hana aftur, frekar en
nautasteikina,“ segir Unnur. „Það má
því segja að þessar þrjár séu þær vin
sælustu en auðvitað má finna margt
annað gómsætt á matseðlinum hjá
okkur,“ bætir hún við.
Tveir staðir á
höfuðborgarsvæðinu
Gamla vínhúsið er staðsett bæði
í Hafnarfirði, á Vesturgötu 4, og í
Reykjavík, á Laugavegi 73. Það er því
ekki langt fyrir íbúa höfuðborgar
svæðisins að fara til að komast í
góða steik. „Við leggjum mikið upp
úr góðu verði, góðu hráefni og vina
legri þjónustu,“ segir Unnur. „ Okkar
markmið er að viðskipskiptavinir
okkar upplifi kósí andrúmsloft í um
hverfi þar sem maturinn fær að njóta
sín til hins ýtrasta,“ bætir hún við.
Hádegistilboð
„Það er vert að nefna að hægt er að fá
sér léttari steikur í hádeginu eða mín
útusteik (hross) á aðeins 1.450 krón
ur í Hafnarfirðinum sem hefur ver
ið mjög vinsælt; sérstaklega á meðal
Hafnfirðinganna,“ segir Unnur.
Fjölskyldufyrirtæki
Gamla vínhúsið var fyrst stofnað
í Hafnarfirði árið 2006 af Unni og
Karli. Árið 2010 opnuðu hjónin ann
an stað í Reykjavík og eru nú á Lauga
vegi 73 og eru búin að vera þar síðan
2013. Opnunartími veitingahússins
er sem hér segir:
Hafnarfjörður
• Mánudag til fimmtudags frá
kl. 12.00 til 21.30
• Föstudag frá kl. 12.00 til 22.30
• Laugardag frá kl. 18.00 til 22.30
• Sunnudag frá kl. 18.00 til 21.30
Reykjavík
• Mánudag til fimmtudag frá
kl. 12.00 til 22.00
• Föstudag frá kl. 12.00 til 23.00
• Laugardag frá kl. 18.00 til 23.00
• Sunnudag frá kl. 18.00 til 22.00
Hægt er að skoða matseðil, sérstök
tilboð fyrir hópa og fleira á heima
síðunni www.gamlavinhusid.is n