Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Qupperneq 16
Vikublað 13.–15. september 20162 Veitingar - Kynningarblað
Taílensk matargerð
eins og hún gerist best
Ban Thai, Yummi Yummi og Nana Thai
T
ómas Boonchang fluttist
til Íslands frá Taílandi árið
1987. Örfáum árum síðar
opnaði hann Ban Thai, á
Laugavegi 130, rétt fyrir
ofan Hlemm, sem lengi hefur verið
talinn einn besti taílenski staður
landsins – ef ekki sá besti. En Tómas
rekur fleiri staði, bæði hér á höfuð-
borgarsvæðinu og einnig í gamla
heimalandinu, Taílandi. Dagana 12.
til 21. september verður Ban Thai
lokað vegna leyfa og þá daga er kjör-
ið að heimsækja Yummi Yummi,
sem er beint á móti Banthai, að
Hverfisgötu 123, eða Nana Thai sem
er í Skeifunni 4.
Tómas vill gjarnan láta koma
fram að þjónustan sé mun hraðari
á þessum tveimur stöðum en á Ban
Thai. Gestir á Ban Thai geri sumir
sér ekki alltaf grein fyrir því að þar sé
hæg matreiðsla, enda sitja gestir þar
gjarnan lengi í huggulegu umhverfi
og njóta matarins. Ban Thai er ekki
skyndibitastaður heldur fínn, taí-
lenskur veitingastaður.
Meirihluti þeirra sem koma á
Yummi Yummi sækir matinn sinn
og segir Tómas að margir sem vinna
í nágrenninu sæki sér hádegismat og
fari með hann í vinnuna. Hins vegar
er búið að stækka staðinn og núna
er hægt að sitja til borðs í litlum en
huggulegum sal, til dæmis úti við
glugga, með útsýni yfir nágrennið.
Vinsælasti rétturinn á Yummi
Yummi er steiktar hrísgrjónanúðlur.
Nokkrir aðrir mjög ljúffengir réttir
eru í boði en nýja matseðilinn má sjá
á vefsíðunni yummy.is
Yummi Yummi er opinn virka
daga frá kl. 11.30 til 21 og um helgar
frá 17 til 22. Síminn er 588-2121.
Nana Thai er öllu stærri staður,
í Skeifunni 4, mjög vinsæll og með
orð á sér fyrir mjög góðan taílensk-
an mat. Nana Thai er fjölsóttur af
vinnandi fólki í Skeifunni og miklu
víðar, en líka af öðrum. Karríréttir,
fiskréttir, grænmetisréttir, steikt hrís-
grjón og núðlur ásamt fjölmörgum
öðrum réttum eru í boði. Meðal
annars eru matseðlar fyrir tvo til
fimm sem geta þá skipt á milli sín
nokkrum réttum og upplifað mjög
fjölbreytta máltíð.
Ef þú elskar Ban Thai þá ættir þú
endilega að prófa Nana Thai!
Nánari upplýsingar um matseðli
Nana Thai er að finna á vefsíðunni
banthai.is
Nana Thai er opinn virka daga
frá kl. 11.30 til 21 og um helgar frá 17
til 21. Síminn er 588-1818.
Ban Thai er rómaður taílenskur
veitingastaður á Laugavegi 130, rétt
fyrir ofan Hlemm, sem nýtur sífellt
meiri vinsælda. Orðspor staðarins
hefur borist víða og margir heims-
frægir einstaklingar hafa snætt á
Ban Thai. Matreitt er úr fersku hrá-
efni og er allt eldað frá grunni. Allur
matur er eldaður eftir pöntun og því
er enginn matur tilbúinn fyrirfram.
Ekki er notað MSG eða önnur auka-
efni í matinn.
Tímaritið Reykjavík Grapevine
valdi Ban Thai besta taílenska
veitingastaðinn á Íslandi árin 2009,
2010, 2011, 2012, 2013, 2014, 2015 og
2016. Þá valdi DV staðinn sem einn
af tíu bestu veitingastöðum landsins
árið 2011.
Staðurinn er opinn virka daga frá
kl. 18 til 22 og um helgar frá kl. 18 til
23.30.
Ban Thai
Laugavegi 130, Reykjavík
sími 692-0564 og 55-22-444
www.banthai.is. n
Myndir Sigtryggur ari