Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Page 4
Vikublað 13.–15. september 20164 Fréttir
G
estir Bláa lónsins greiddu
4,7 milljarða króna í að-
gangseyri í fyrra eða þrettán
milljónir króna á dag. Tekjur
fyrirtækisins af sölu í lón-
ið jukust þá um einn milljarð króna
miðað við árið á undan eða um 27%.
Veitinga- og vörusala jókst einnig
milli áranna 2014 og 2015 eða um
jafnvirði 500 milljóna króna.
Vörur fyrir 1,2 milljarða
Samkvæmt ársreikningi Bláa lóns-
ins, sem finna má í nýrri ársskýrslu
fyrirtækisins, var vöxtur í öllum
helstu tekjuliðum þess. Veitinga-
salan nam 1,5 milljörðum króna,
samanborið við 1,2 milljarða árið
2014. Vörusalan jókst einnig en Bláa
lónið selur meðal annars vinsælar
húðvörur. Nam hún 1,2 milljörðum
eða um 200 milljónum króna meira
en árið 2014. Rekstrartekjur vegna
Lækningalindarinnar í Svartsengi í
Grindavík jukust einnig eða um jafn-
virði 70 milljóna króna.
Bláa lónið birti afkomutilkynn-
ingu í maí síðastliðnum og kom þá
fram að fyrirtækið hagnaðist um 15,8
milljónir evra í fyrra eða 2,3 milljarða
króna. Afkoman var 800 milljónum
króna betri en árið á undan sem var
einnig metár. Heildartekjur fyrirtæk-
isins námu 7,6 milljörðum en um
919 þúsund gestir heimsóttu lón-
ið eða meira en tvöfalt fleiri en árið
2010. Ódýrasti aðgöngumiðinn fyrir
fullorðna kostar 5.400 krónur en Bláa
lónið rukkar 6.800 krónur á sumrin.
Gestir sem heimsækja fyrirtækið, án
þess að fara ofan í lónið sjálft, greiða
um tíu evrur, um 1.300 krónur, fyrir
heimsóknina. Starfsmönnum Bláa
lónsins fjölgaði úr 256 árið 2014 í 302
ári síðar. Launakostnaður fyrirtæk-
isins jókst að sama skapi eða úr 1,2
milljörðum í 1,7 milljarða króna.
Metár hjá öllum
Fjallað var um metafkomu stóru
baðstaðanna þriggja hér á landi í
síðasta tölublaði DV. Bláa lónið er
eitt þeirra en hinir eru Jarðböðin
við Mývatn og Laugarvatn Fontana.
Jarðböðin voru rekin með 238 millj-
óna króna hagnaði í fyrra þegar gest-
ir baðstaðarins voru alls 149 þús-
und. Laugarvatn Fontana skilaði
þá jákvæðri afkomu í fyrsta sinn
frá opnun árið 2011 og nam hún 27
milljónum.
Íslenskar heilsulindir ehf.,
dótturfélag Bláa lónsins, á 18,8%
hlut í Laugarvatni Fontana og 23,4%
í Jarðböðunum við Mývatn. Grímur
Sæmundsen, stofnandi og forstjóri
Bláa lónsins, situr í stjórnum allra
félaganna þriggja. Fyrirtæki hans
er metið á 20 milljarða króna, líkt
og kom fram í umfjöllun DV í nóv-
ember í fyrra, og er því næstverð-
mætasta fyrirtæki landsins í ferða-
þjónustu á eftir Icelandair. Grímur
á um 17% hlut í Bláa lóninu í gegn-
um félagið Kólf ehf. sem er því met-
inn á um 3,5 milljarða króna. Kólfur
á í fyrirtækinu í gegnum Hvatningu
hf. sem á 39% í fyrirtækinu. HS Orka
er næststærsti hluthafi Bláa lónsins
með 30%. n
Borguðu 4,7 milljarða
króna ofan í Bláa lónið
n Þrettán milljónir í aðgangseyri á dag n Veitinga- og vörusala tók stökk
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Bláa lónið Grímur Sæ-
mundsen, stofnandi og
forstjóri Bláa lónsins,
og aðrir hluthafar
fyrirtækisins fengu
greidda alls 1,4
milljarða króna í
arð vegna rekstr-
arársins í fyrra.
F
orsvarsmenn íslenska fyrirtæk-
isins Atlantic Green Chemicals
(AGC) ætla að gera aðra til-
raun til að fá Héraðsdóm
Reykjaness til að staðfesta að
Reykjanesbær hafi úthlut-
að því lóð í Helguvík árið
2011. Málið verður tekið
fyrir 22. september en
Héraðsdómur Reykjaness
vísaði sambærilegu máli
AGC frá í október í fyrra.
AGC stefndi þá sveitar-
félaginu og dótturfélagi þess,
Reykjaneshöfn, vegna úthlutunar
lóðarinnar Berghólabraut 4 í Helgu-
vík. Fyrirtækið Thorsil ehf. hefur
samið um leigu lóðarinnar undir
kísilmálmverksmiðju en fulltrúar
AGC, sem vilja byggja lífalkóhól- og
glýkólverksmiðju, fullyrða að því
hafi verið lofað lóðinni. Stað-
setningin skipti AGC miklu
máli, bæði út af nálægð-
inni við Helguvíkurhöfn en
einnig vegna þess að fyrir-
tækið ætlar sér að nýta af-
gangsvarmaorku frá kísil-
veri United Silicon á næstu
lóð. AGC hafi sótt um fram-
kvæmdaleyfi til Reykjanesbæjar í jan-
úar 2015 en verið hafnað þar sem
fyrir tækið hefði ekki lóð. n
haraldur@dv.is
Vill að héraðsdómur staðfesti lóðarúthlutun í Helguvík
Lóðarkrafa AGC
aftur fyrir dóm
Sími: 562 5900
www.fotomax.is
Yfirfærum
yfir 30 gerðir
myndbanda,
slides og
fleira
Björgum
minningum
Persónulegar
gjafir við öll
tækifæri
Allt til að
merkja
vinnustaðinn
„Þetta var
hræðilegt“
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég
upplifi eitthvað þessu líkt.
Þetta var hræðilegt. Mjög,
mjög óhuganlegt,“ seg-
ir Joanna Palczewska sem var
um borð í flugvél WestJet-
flugfélagsins sem neyddist til
að lenda á Keflavíkurflugvelli
á laugardag. Mjög mikill við-
búnaður var vegna vélarinn-
ar sem sendi frá sér neyðarkall
laust upp úr klukkan ellefu á
laugardagsmorgun. Bilun kom
upp í öðrum hreyfli vélarinn-
ar sem var á leið frá London til
Edmonton í Kanada.
Eins og DV greindi frá á
laugardag voru 130 björgunar-
sveitarmenn í viðbragðsstöðu
vegna vélarinnar. Betur fór þó
en á horfðist og tókst flugmönn-
um vélarinnar að lenda henni
á Keflavíkurflugvelli klukkan
14.40 á laugardag. Þá hafði vél-
in þurfti að hringsóla innan ís-
lenskrar lögsögu til að brenna
eldsneyti.
Í viðtali við Global News seg-
ir Joanna að starfsmenn um
borð hafi verið að bera fram
drykki þegar skyndilega heyrðist
hvellur frá öðrum hreyfli vélar-
innar. „Starfsmenn litu hver á
annan og maður skynjaði að
eitthvað var ekki eins og það átti
að vera,“ segir hún.
258 manns voru um borð
í vélinni sem er af gerðinni
Boeing 767. Joanna var ein af
rúmlega hundrað farþegum
vélarinnar sem dvöldu í Reykja-
vík aðfaranótt sunnudags. Hún
hrósar flugmönnum og starfs-
fólki vélarinnar í hástert og seg-
ir að viðbrögð þeirra hafi verið
mjög fagmannleg. „En maður
sá í augunum á þeim að það var
ekki allt í lagi.“
Þá hrósar hún íslenskum við-
bragðsaðilum sem voru á vett-
vangi þegar vélin lenti.