Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Qupperneq 9
Vikublað 13.–15. september 2016 Fréttir 9
Hún hefur reynt að fá samband
við lækninn sem framkvæma á
ástunguna en hefur ekki tekist
að ná tali af honum. Hún kveðst
sömuleiðis hafa fengið þau svör,
þegar hún óskaði eftir því að fá að
tala við annan lækni, að þeir væru
allir uppteknir.
Gyða ákvað því að hringja
í Krabbameinsfélagið.
Hjúkrunarfræðingur á
vegum félagsins hafði
samband við spítalann og
kom því í gegn að læknir
hringdi í Gyðu síðdegis
fimmtudaginn 8. september.
Hann tjáði Gyðu að þessi
biðtími, fjórar vikur, eftir því
að komast í ástungu væri
innan eðlilegra marka. Gyða
er alls ekki sammála því.
„Ein hræðilegasta
tilfinning sem ég hef upplifað
er að þurfa að bíða í þennan
tíma og vita ekki neitt. Ég á
tvö börn sem gætu endað
móðurlaus af því að það er
ekki til nægilegt fjármagn til að
setja í spítalana okkar,“ segir Gyða
en hún er sérstaklega áhyggjufull
þar sem skjaldkirtilskrabbamein
hefur bæði komið upp í móður- og
föðurætt.
Við bætist að hún er búin að
missa 33 kíló í sumar án þess að
hafa skýringu þar á.
Gæti dregið mig til dauða
Gyða, sem er nýgift, segir að í
stað þess að njóta lífsins í faðmi
fjölskyldunnar hangi yfir henni
svart ský. „Það hangir yfir mér
draugur sem gæti hugsanlega
verið að draga mig til dauða.
Við vitum það flest að ef um
krabbamein er að ræða þá skiptir
öllu máli að bregðast við sem
fyrst.“
Hún segir að óvissan hafi yfir-
tekið allt annað í lífinu og vonast til
að svona mál eigi ekki eftir að koma
upp aftur þó svo að hana gruni
að álíka mál séu daglegt brauð á
Íslandi í dag.
„Ég er svo reið. Ég veit ekki hvað
ég get gert annað en að bíða en mig
langar bara ekkert til að bíða.“ n
Missti mikla þyngd Gyða Dröfn missti 33
kíló í sumar, án þess að vita ástæðuna.
Eftir
Fyrir
„Þessi
óvissa
er skelfileg
K
ostnaður við forsetaframboð
Guðna Th. Jóhannesson-
ar, sem var kjörinn forseti Ís-
lands í sumar, nam rúmum 25
milljónum króna. Þetta kemur fram
í rekstrarreikningi sem Guðni skilaði
til Ríkisendurskoðunar og er birtur á
heimasíðu stofnunarinnar.
Samkvæmt lögum mega forseta-
frambjóðendur taka á móti fram-
lögum frá einstaklingum og lögaðil-
um svo lengi sem upphæðin er ekki
hærri en 400 þúsund krónur. Fram-
lög lögaðila vegna framboðs Guðna
námu samtals tæpum ellefu millj-
ónum króna en framlög
einstaklinga námu sam-
tals rúmum 13 millj-
ónum. Sjálfur lagði
Guðni rúma milljón í
framboðið. Hér má sjá
rekstrarreikning vegna
framboðs Guðna
Þeir lögaðilar sem
styrktu framboð Guðna um 400
þúsund krónur eru Alvogen, Arctic
Green Energy Geothermal, Atlants-
olía, Hekla, KOM ehf. kynning
og markaður, Leiguherbergi ehf.,
Tryggingamiðstöðin, Ursus, Voga-
bakki ehf., WOW air og Öl-
gerðin Egill Skallagríms-
son.
Alls gáfu 860 einstak-
lingar samtals tíu millj-
ónir króna til framboðs
Guðna. Fjórir aðilar létu
400 þúsund krónur af hendi
rakna; Símon I. Kjærnested,
Guðmundur Kjærnested, Elísabet
Kjærnested, Helgi Magnússon og
Björn Kristjánsson. Tveir létu 300
þúsund krónur af hendi rakna; Einar
Sveinsson og Heimir Pálsson. n
einar@dv.is
Framboð Guðna kostaði 25 milljónir
Ölgerðin, Alvogen og Hekla styrktu framboð forsetans
M
y
n
d
s
iG
tr
y
G
G
u
r
a
r
i
granda
granda
Hefur þú prófað
blómadropa?
Blómadropar tilheyra nýrri
grein meðferða sem öðlast
krafta sína frá lífskröftum
blóma og jurta. Þeir eru
fullkomlega öruggir,
náttúrulegir og framleiddir
við bestu hugsanlegu
aðstæður af alúð, kærleika
og vandvirkni.
Sölustaðir: Heilsuhúsin í Rvk,
Akureyri og Selfossi, Snyrtihofið
Vestmanneyjum, Gló Fákafeni og
Græn heilsa Ægisíðu 121.
Erum á
Facebook
Gleði - Friður - Hamingja
Nýjaland
Sími
517
4290
nyjaland@gmail.com • www.nyjaland.is