Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Side 11
Vikublað 13.–15. september 2016 Fréttir 11
verktakafyrirtækinu Björgun, og
Promens voru þá verðmætustu eign-
ir félagsins. Þá átti Atorka einnig
alla hluti í Jarðborunum sem það
seldi svo til Geysis Green Energy
síðar sama ár. Kaupverðið nam alls
14,3 milljörðum og innleysti Atorka
alls 11 milljarða króna hagnað af
sölunni. Félagið var þá að stærstum
hluta í eigu Þorsteins Vilhelms-
sonar og Magnúsar Jónssonar, þá-
verandi forstjóra Atorku Group, og
annarra lykilstjórnenda fyrirtækis-
ins. Greiddu hluthafar Atorku sér alls
um 4,4 milljarða króna í arð vegna
frammistöðu þess á árunum 2005 til
2007.
Misstu allt
Efnahagshrunið lék Atorku grátt og
fjárhagsstaðan gjörbreyttist í kjölfar
falls íslenska bankakerfisins. Þann 13.
október 2008 óskaði félagið eftir því
að bréf þess yrðu tekin úr viðskipt-
um í Kauphöll Íslands. Tap Atorku á
fyrri helmingi þess árs hafði þá numið
8,7 milljörðum króna og virði skráðra
eigna félagsins lækkað í verði. Rúmum
fjórum mánuðum áður en tilkynning
um afkomuna var birt tók aðalfundur
félagsins ákvörðun um 2,1 milljarðs
króna arðgreiðslu til hluthafa.
Magnús Jónsson lét af störfum
sem forstjóri Atorku í september
2009. Fyrirtækið hafði þá fengið
áframhaldandi heimild til greiðslu-
stöðvunar á meðan unnið yrði áfram
að fjárhagslegri endurskipulagningu
þess. Þremur mánuðum síðar þurftu
eigendurnir að gangast undir nauða-
samning við kröfuhafa sína sem tóku
félagið á endanum yfir í ársbyrjun
2010. Lýstar kröfur námu þá 56 millj-
örðum króna. Samningurinn fól í sér
að hlutafé félagsins var fært niður að
fullu, og misstu þáverandi eigendur
Atorku þá allt sitt í fyrirtækinu, og
kröfunum var breytt í nýtt hluta-
fé. Stóru viðskiptabankarnir þrír og
skilanefnd Glitnis eignuðust þá 70%
hlut í Atorku. Í kjölfarið eignaðist
fjárfestingarfélagið Horn, dótturfélag
Landsbankans, allt hlutafé Atorku í
Promens þegar kröfuhafarnir fengu
á móti eign bankans í Atorku. Eign-
ir félagsins voru þá allar erlendis en
kröfuhafarnir að mestu íslenskir.
Fyrrverandi eigendur Atorku
voru mjög ósáttir við hvernig staðið
var að yfirtökunni. Vildu þeir meina
að ekkert tillit hefði verið tekið til
framtíðarvirðis eignasafns félagsins.
Fréttastofa Stöðvar 2 greindi í kjölfar-
ið frá því að skilanefnd Landsbank-
ans hefði þurft að afskrifa rúmlega
sex milljarða króna vegna lánveitinga
til félaga í eigu fyrrverandi eigenda og
stjórnenda Atorku sem höfðu þá öll
verið tekin til gjaldþrotaskipta.
Íslandsbanki stærstur
Samkvæmt fréttum frá desember
2009 voru eignir Atorku þá metnar á
104 milljarða króna. Skuldirnar námu
hins vegar 138 milljörðum og eigið fé
félagsins því neikvætt um 34 millj-
arða. Í nýjasta ársreikningi Atorku,
sem er fyrir árið 2014, eru eignir þess
metnar á rúma 1,2 milljarða króna en
skuldirnar nema 142 milljónum. Árið
áður átti félagið eignir upp á rúma
fimm milljarða en eins og Einar Páll
segir þá hafa stjórnendur þess síð-
ustu ár unnið að losun eigna. Til að
mynda var í júlí 2012 greint frá því
að fimm íslenskir lífeyris sjóðir hefðu
keypt erlendar eignir af Atorku fyrir
2,9 milljarða króna.
Íslandsbanki var stærsti eigandi
Atorku í árslok 2014 með 27% hlut.
LBI átti þá 13%, Glitnir hf. 9,6% og
Arion banki 6,7%. Fjöldi hluthafa í
félaginu var þá 57. n
Ris og fall
Atorku
1990 Íslenski hlutabréfasjóðurinn,
sem síðar varð Atorka Group, stofnað-
ur í mars 1990.
2002 Hluthafar samþykkja að ein-
blína á fjárfestingar erlendis en fyrstu
tólf árin var aðallega keypt í íslenskum
fyrirtækjum. Þorsteinn Vilhelmsson
fer inn í hluthafahópinn og verður
síðar stjórnarformaður Atorku Group.
2004–2006 Atorka kaupir
sig inn í fyrirtæki á borð við Sæplast
(Promens), Jarðboranir og Geysi Green
Energy. Magnús Jónsson er ráðinn for-
stjóri 2005 og ári síðar kaupir félagið
sig inn í flutningafyrirtækið InterBulk
sem sérhæfir sig í gámaeiningum fyrir
efnaiðnað.
2007 Markaðsvirði Atorku Group
nemur 37 milljörðum króna.
2008–2009 Bréf félagsins
tekin úr viðskiptum í Kauphöll Íslands.
Óskað er eftir greiðslustöðvun en
kröfuhafar taka félagið yfir með
nauðasamningi sem er undirritaður
í desember 2009. Hluthafar Atorku
missa allt sitt í fyrirtækinu.
2016 Hluthafafundur Atorku tekur
ákvörðun um að slíta félaginu. Þriggja
manna stjórn þess kjörin í skilanefnd.
Var stærsti hluthafinn Þorsteinn
Vilhelmsson, fyrrverandi stjórnarfor maður
Atorku Group, átti um tíma um 40% í
fyrirtækinu. Mynd 365
Fjárfestingarrisi
Atorka Group var
umsvifamikið fjár-
festingarfélag sem
átti í íslenskum sem
erlendum stórfyrir-
tækjum. Höfuðstöðvar
þess voru um tíma við
Hlíðasmára í Kópavogi.
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn
FÁKASEL - FYRIR ALLA
Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050
matur, drykkur
og skemmtun
Í
skýrslu sem Vigdís Hauksdóttir
og Guðlaugur Þór Þórðarson
kynntu fyrir Alþingi í gær er því
haldið fram að íslenska ríkið
hafi tekið 296 milljarða áhættu
án hugsanlegs ávinnings þegar ís-
lensku bankarnir voru afhentir er-
lendum kröfuhöfum. Í stað þess að
eignast alla bankana hafi íslenska
ríkið aðeins eignast Landsbankann.
Steingrímur J. Sigfússon, þáver-
andi fjármálaráðherra, er borinn
þungum sökum í skýrslunni. Því er
haldið fram að hann hafi tekið fram
fyrir hendurnar á Fjármálaeftirlitinu
og hafið samningagerð upp á eigin
spýtur við hina erlendu kröfuhafa.
Að mati skýrsluhöfunda hafi ákvæði
neyðarlaganna verið höfð að
engu og kröfuhöfum færð-
ir íslensku bankarnir
með tugmilljóna með-
gjöf frá skattgreiðend-
um.
Fullyrt er að í skjöl-
um sem höfundar hafi
kynnt sér komi fram
undarlegur ótti samn-
ingamanna og vanmáttar-
kennd gagnvart kröfuhöfum og
lögfræðingaher þeirra. Þá er sagt
að skýrslan sýni að samningagerðin
hafi alfarið gengið út á að friðþægja
kröfuhafana með því að afhenda
þeim eignarhald á bönkun-
um, varpa allri ábyrgð á
íslenska skattgreiðend-
ur og falla frá tugmillj-
arða króna arðgreiðsl-
um, endurgreiðslum
og vaxtagreiðslum.
Skýrsluhöfundar
telja að afleiðingar þess
að kröfuhafar hafi eign-
ast tvo af þremur bönkum
hafi birst í aðgangshörku gagn-
vart skuldurum – einstaklingum
jafnt sem fyrirtækjum. n
Bera Steingrím þungum sökum
Talað um undarlegan ótta samningamanna og vanmáttarkennd