Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Síða 14
Vikublað 13.–15. september 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
14 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Höskuldur sat sem
fastast
Miðstjórnarfundur Framsóknar-
flokksins á Akureyri um nýliðna
helgi varð ekki til að höggva á
þann hnút sem myndast hefur í
flokknum. Höskuldur Þórhallsson
sagði við fjölmiðla að formaður
flokksins, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, hafi haldið reiðilestur
yfir Sigurði Inga Jóhannssyni for-
sætisráðherra eftir að sá síðar-
nefndi sagði í ræðu á fundin-
um að hann ætlaði ekki að halda
áfram sem varaformaður undir
núverandi stjórn. Enginn virð-
ist hafa orðið vitni að þessum
reiðilestri Sigmundar Davíðs
nema Höskuldur. Hins vegar voru
vitni að því að Höskuldur stóð
ekki upp og klappaði að lokinni
ræðu formannsins heldur sat
sem fastast.
Ekki á réttum aldri
Margrét Tryggvadóttir lenti í þriðja
sæti á lista Samfylkingarinnar í
flokksvali í Suð-
vesturkjördæmi.
Svo einkennilega
vill til að hún fær
þó ekki það sæti
á listanum vegna
þess að hún er
ekki réttum aldri.
Samkvæmt reglum flokksins verð-
ur að vera einn frambjóðandi
undir 35 ára aldri í einu af þremur
efstu sætunum. Margrét er 44 ára
gömul. Stuðningsmönnum Mar-
grétar er mörgum heitt í hamsi
vegna þessa og segja regluna fá-
ránlega. Sumir þeirra fullyrða að
reglan sé stjórnarskrárbrot.
Ég vildi vinna gull
fyrir ástina mína
Jón Margeir Sverrisson lenti í fjórða sæti í skriðsundi á Ólympíumótinu. – ruv.is
Konum er beinlínis
rutt burt
Egill Helgason um úrslitin í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins. – eyjan.is
Mér þykir ekki spennandi að ræða
stjórnmál út frá kynferði fólks
Sigríður Andersen um sömu úrslit. – eyjan.is
Sjálfstæðisflokkur í vanda
Myndin Kólnandi veður Veturinn er á næsta leiti og hver lægðin rekur aðra. Senn þurfa bifreiðaeigendur að huga að dekkjaskiptum. MynD SIGTryGGur ArI
A
uðvitað er það reiðarslag
fyrir Sjálfstæðisflokkinn að
fyrrverandi formaður hans,
Þorsteinn Pálsson, og fyrr-
verandi varaformaður, Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir, þoli þar
ekki lengur við og ákveði að ganga til
liðs við nýtt stjórnmálaafl, Viðreisn.
Sjálfstæðismenn gátu lengi vel
stært sig af því að tilheyra fjölda-
hreyfingu. Nú er öldin önnur. For-
maður flokksins, Bjarni Benedikts-
son, ber þar mikla ábyrgð. Hann gerði
ekkert til að ná sáttum við Evrópu-
sinnaða flokksmenn sem hver á fætur
öðrum yfirgáfu Sjálfstæðisflokkinn,
enda fundu þeir mætavel að skoðan-
ir þeirra voru illa þokkaðar af foryst-
unni. Það er furðulegt að formaður
flokks, sem lengi gat státað af því að
vera fjöldahreyfing, skuli hafa tekið
þá meðvituðu ákvörðun að þrengja
flokkinn svo mjög að stórum hópi
flokksmanna, þar á meðal fyrrverandi
áhrifafólki, væri ekki lengur vært.
Framboðslistar flokksins eru enn
eitt vandræðamálið. Ber þar fyrst að
nefna „lögfræðingalistann“ í Reykja-
vík. Nú skal ekki gert lítið úr lögfræði-
menntun, hún er vissulega brúkleg,
en það er vægast sagt til marks um
gríðarlega einsleitni þegar lögfræði-
menntað fólk skipar sjö af átta efstu
sætum listans. Framboðslistar eiga að
spegla samfélagið, þar á ekki ein stétt
að hreiðra sældarlega um sig.
Kynjahlutfallið á listum í
tveimur kjördæmum hefur
síðan orðið að stórfrétt
og veldur usla innan
flokksins. Málið er
vissulega allt hið
vandræðalegasta
fyrir flokkinn, en
það er ekki jafn
einfalt og látið er
í veðri vaka í um-
ræðunni. Í Suður-
kjördæmi var vitað
að staða Ragnheiðar
Elínar Árnadóttur væri
erfið. Hún hefur verið um-
deildur ráðherra og harðlega gagn-
rýnd fyrir verkleysi. Þátttakendur í
prófkjöri Sjálfstæðismanna á Suður-
landi voru einfaldlega óánægðir
með störf ráðherrans og komu þeirri
skoðun sinni til skila. Það kemur
því máli ekkert við að ráðherrann er
kona. Á Suðurlandi kann Unnur Brá
Konráðsdóttir að hafa goldið fyrir það
að tala máli mannúðar í útlendinga-
málum meðan Ásmundur Friðriks-
son, sem hefur harða stefnu í þeim
málum, gerði lukku og lenti ofar-
lega á lista. Það ætti að vera verulegt
áhyggjuefni meðal Sjálfstæðismanna!
Einungis þrjár konur voru með-
al frambjóðenda á Suðurlandi, en
því var öðruvísi farið í Suðvesturkjör-
dæmi þar sem þær voru nánast jafn-
margar og karlarnir. Útkoman þar á
bæ var hörmuleg fyrir konur. Bjarni
Benediktsson reyndi víst að bjarga því
sem bjargað varð með því að reyna að
fá Þorgerði Katrínu þar í framboð.
Hún hefði mjög líklega náð þar góð-
um árangri, sem og Ragnheiður Rík-
harðsdóttir hefði hún boðið sig fram
til endurkjörs. Hvorug þeirra var
á listanum en það réttlætir
samt ekki útkomuna.
Það hefði ekki átt
að vera svo fjarska
erfitt að merkja við
konur í prófkjör-
inu, en einhvern
veginn vafðist það
fyrir þeim sem
kusu í þessu kjör-
dæmi.
Sjálfstæðisflokk-
urinn er í vanda og
flokksmenn hafi fært
pólitískum andstæðingum
vopn í hendur. Viðreisn hefur gert að
verkum að auðvelt að stimpla Sjálf-
stæðisflokkinn sem harðlínu-hægri
flokk sem gæti sérhagsmuna. Slæm
staða kvenna í tveimur prófkjörum
mun verða til þess að flokkurinn verð-
ur kallaðar gamaldags karlaflokk-
ur. Hugsanlega verður reynt að setja
plástur á sárin og breyta listunum og
gera konum hærra undir höfði. Það
er hins vegar ansi vandræðalegt að
breyta reglum eftir á og lagfæra lýð-
ræðisleg prófkjör af því að þátttak-
endur í þeim völdu ekki rétta gerð
af fólki. Spyrja má: Til hvers að hafa
prófkjör ef vilji þeirra sem tóku þátt í
þeim er að engu hafður?
Það er sama hvað gert verður.
Sjálfstæðisflokkurinn er í miklum
vanda. n
„Á Suðurlandi
kann Unnur
Brá Konráðsdóttir að
hafa goldið fyrir það að
tala máli mannúðar í
útlendingamálum.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Traust fasteignaviðskipti
og persónuleg þjónusta
- þinn lykill að nýju heimili
414 6600 | nyttheimili.is
FRÍTT
SÖLUMAT
Reynir Eringsson
820 2145
Skúli Sigurðarsson
898 7209
Guðjón Guðmundsson
899 2694
Fasteignasala
Leigumiðlun