Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Page 24
Vikublað 13.–15. september 201620 Fólk
Ný námskeið
Hringsjá
Náms- og starfsendurhæfing
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is
Er ekki kominn tími til að gera eitthvað
Námskeið í september og Október 2016
• MARKÞJÁLFUN - hefst 5. sept
• SJÁLFSUMHYGGJA lærðu að þykja vænt
um sjálfan þig - hefst 12. sept
• MINNISTÆKNI - hefst 19. sept
• MARKÞJÁLFUN - hefst 3. október
• TÖLVUR 1 - hefst 4. október
• Í FÓKUS að ná fram því besta með ADHD – hefst 4. október
• TÖK Á TILVERUNNI - hefst 4. október
• FJÁRMÁL - hefst 10. október
• HEILSA OG HEILSUEFLING - hefst 24. október
Sigruðust á krabbameini
n Átta leikarar sem greindust með krabbamein en læknuðustu n Sáu lífið í nýju ljósi
Mark Ruffalo
Tegund: Heilaæxli
Árið 2001 dreymdi leikarann að hann
væri með æxli í höfðinu. Hann fékk málið
á heilann, ef svo má segja, og leitaði til
læknis. Draumurinn reyndist sannur. Hann
hélt fréttunum fyrir sjálfan sig í fáeinar vikur
og gaf ekki út yfirlýsingu fyrr en eiginkonan
hafði fætt honum barnið sem hún gekk
með undir belti. Hann fór svo í aðgerð, sem
heppnaðist fullkomlega. „Þetta breytti
viðhorfi mínu til lífsins,“ sagði hann við
Guardian, þegar hann hafði náð sér.
Hugh Jackman
Tegund: Húðkrabbamein
Árið 2013 varð Jackman var við sérkennilegan blett á nefinu. Bletturinn reyndist vera húð-
krabbamein, eða flöguþekjukrabbamein, en það var eiginkona hans, Deborra-Lee Furness,
sem neyddi hann til þess að fara í skoðun hjá lækni. Hann hefur síðan reynt að stuðla að
vitundarvakningu um húðkrabbamein. „Í guðanna bænum notið sólarvörn,“ skrifaði hann
á Instagram.
Edie Falco
Tegund: Brjóstakrabbamein
Hún var greind þegar hún fór
með hlutverk Carmelu í The
Sopranos. Hún hélt ástandinu
leyndu, jafnvel á meðan hún
undirgekkst lyfjameðferð.
„Þegar ég sá fram á að lifa þetta
af fann ég þörf til að endurhugsa
líf mitt. Ég var fertug og einhleyp
en langaði að stofna fjölskyldu.
Þess vegna hóf ég ferli til að
ættleiða barn.“
Christina Applegate
Tegund: Brjóstakrabbamein
Móðir leikkonunnar greindist með
brjóstakrabbamein og sigraðist á því. Þess
vegna fór Christina í árlegar skoðanir þar
að lútandi. Árið 2008 fór hún í segulómun
og greindist í kjölfarið með krabbamein í
brjósti. Hún lét í kjölfarið fjarlægja bæði
brjóstin og hefur síðan vakið máls á því að
konur fari reglulega í skoðanir. Hún stofnaði
samtökin Right Action for Women, sem
bjóða konum í áhættuhópi upp á ókeypis
skoðanir. „Ég fékk óseðjandi þörf fyrir að
koma öðrum í sömu stöðu til hjálpar,“ sagði
hún við WebMD.
Mr. T
Tegund: T-cell veirusýking
Árið 1995 var þessi litríki leikari og fyrrver-
andi bardagamaður að fjarlægja hring úr
eyra. Þá fann hann hnúð. „Trúið þið þessu?“
spurði hann í viðtali við Coping magazine,
„Krabbamein sem heitir það sama og ég.“
Hann greindist í nokkur skipti með æxli áður
en hann læknaðist. „Ég kenni í brjósti um
þá sem gefast upp,“ sagði hann síðar um
krabbameinið. „Við deyjum öll á endanum
en ekki vera aumingi. Maður á að berjast.“
Wanda Sykes
Tegund: Brjóstakrabbamein
Wanda greindist með frumubreytingar í
brjósti eftir reglubundna skoðun 2011. Hún
varð mjög skelkuð enda er saga um krabba-
mein í móðurættinni. Hún fór því í tvöfalt
brjóstnám. „Ég vildi bara hámarka líkurnar á
að lifa,“ sagði hún við tímaritið People. „Ég
tók þessa ákvörðun því ég elska lífið.“
Michael C. Hall
Tegund: Eitilfrumuæxli
Hall var 38 ára gamall, árið 2010, þegar hann greindi frá því að hann væri með það sem
kallast Hodgkin's lymphoma, eða eitilfrumuæxli. Á þeim tímapunkti hafði hann nánast lokið
meðferð á meininu. Hann sneri skjótt aftur og hélt áfram að leika raðmorðingjann Dexter í
samnefndum þáttum. Hann var djúpt snortinn af þeim stuðningi sem hann fékk frá áhang-
endum. „Þetta kennir mér að vera þakklátur fyrir það sem ég hef,“ sagði hann við ABC News.
Tom Green
Tegund: Krabbamein í eista
Í maí árið 2000 birti MTV „The Tom Green Cancer Special“. Um var að ræða stuttmynd um
baráttu leikarans við krabbamein í eista. Þar mátti meðal annars sjá nærgöngult myndefni
af skurðaðgerðinni sem hann undirgekkst. „Það undarlega er hvað þetta gekk allt hratt
fyrir sig. Á þremur mánuðum greindist ég með krabbamein, losnaði við krabbamein og náði
mér af krabbameini,“ sagði hann við US magazine. „Og sannleikurinn er sá að ég hef ekki
krabbamein í dag.“