Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2016, Side 30
Vikublað 13.–15. september 201626 Fólk Leikritið Sending frumsýnt n Sýnt á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu n Fjallar um bjargleysi og útskúfun L eikverkið Sending, eftir Bjarna Jónsson, var frum­ sýnt á Nýja sviðinu í Borgar­ leikhúsinu um helgina. Um er að ræða nútímaverk sem gerist árið 1982. Ungur drengur er sendur í fóstur til barnlausra hjóna­ leysa vestur á fjörðum. „ Konan tekur drengnum opnum örmum en tilfinningar mannsins eru flóknari og ekki líður á löngu þar til líf hjón­ anna umturnast. Veruleiki drengs­ ins og hjónaleysanna virðist á ein­ hvern undarlegan hátt hanga saman,“ segir í kynningu á verk­ inu á vef Borgarleikhússins en leik­ ritið gerir bjargleysi og útskúfun að meginviðfangsefni sínu. Leikstjórn er í höndum Mörtu Nordal en leikarar eru Árni Arnarson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Kristín Þóra Haralds­ dóttir og Þorsteinn Bachmann. Meðfylgjandi myndir eru teknar á frumsýningarkvöldinu, þar sem valinkunnir gestir og aðstandendur sýningarinnar voru í sínu fínasta pússi. n Prúðbúin Hjónin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir, ásamt Ingvari E. Sigurðssyni. Mæðgin Kristín Una Mikaelsdóttir og Mikael Torfason mættu til að fylgjast með Elmu Stef- aníu Ágústsdóttur leikkonu, en hún er hvort tveggja stjúpmóðir Kristínar Unu og spúsa Mikaels. Mæðgur og maki Kjartan Ólafsson ásamt tengdamóður sinni, Guðríði Katrínu Arason (eiginkonu Gunnars Eyjólfssonar leikara), og eiginkonunni Karitas H. Gunnarsdóttur. Mekka íssins Erum í miðbæ Hveragerðis Ís í vél, 4 tegundir | Kúluís Pinnaís | Krap | Bragðarefur Ísfrappó | Sælgæti | Franskar Samlokur | Gos | Snakk Bland í poka | Pylsur | Kaffi Opnunartími mán-fim 10 - 21 / fös 10 - 22 lau 12 - 22 og sun 12 - 21 Breiðamörk 10, Hveragerði Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður. Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS Þjóðleg sumarhús sem falla einstaklega vel að íslensku landslagi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.