Fréttablaðið - 23.03.2017, Page 12
Neysla eftir helstu vöruflokkum 2016 miðað við 2007
Viðskipti Þegar litið er á heildar-
myndina er ljóst að fataverslun á
Íslandi hefur aukist talsvert síðustu
ár og eru fréttir af dauða fataversl-
unar á Íslandi ótímabærar.
Hins vegar þurfa verslunarmenn
að huga að því hvort þeirra verslun
er samkeppnisfær við erlendar
verslanir, hvort sem er við net-
verslanir, erlenda smásölurisa með
verslanir hér á landi eða verslunar-
ferðir Íslendinga til útlanda. Þetta
kemur fram í nýrri greiningu hag-
fræðideildar Landsbankans á stöðu,
þróun og horfum í íslenskri verslun.
Greiningin verður kynnt á opinni
ráðstefnu á Nordica í dag. Á fund-
inum mun Anna Fellander, ráðgjafi
og hagfræðingur, fjalla um áhrif
stafrænu byltingarinnar á verslun
og þjónustu. Jafnframt munu for-
maður Samtaka verslunar og þjón-
ustu, Margrét Sanders, og ráðherra
ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar,
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
halda tölu.
Fram kemur í greiningunni að
þróun í verslun hér á landi er mis-
jöfn eftir vöruflokkum. Verslun
með um helming vöruflokka er
meiri nú en góðærisárið 2007.
Mest hefur aukningin verið í sölu á
símtækjum, eða um 87 prósent, en
mestur samdráttur er í sölu stærri
tómstundatækja (t.d. hjól- og felli-
hýsa og sportbáta), sem hefur
minnkað um 55 prósent frá árinu
2007.
Raunaukning fataverslunar var
14 prósent milli ára í fyrra. Hún var
þó enn 11 prósent minni en þegar
mest var árið 2008. Líklegt er að
aukin kaup erlendra ferðamanna á
útivistarfatnaði eigi talsverðan þátt
í vaxandi fataverslun hér á landi
síðustu ár á sama tíma og Íslending-
ar virðast kaupa meira af fatnaði í
gegnum bæði erlendar netverslanir
og á ferðalögum erlendis. Skósala
hefur aukist á landinu og sló hún
met árið 2016.
Margrét Sanders, formaður SVÞ,
segir að áhugavert sé að niðurfell-
ing á tollum á fötum og skóm
virðist hafa leitt til aukningar
í fata- og skóverslun.
„Það er gríðarlega gott
fyrir samfélagið Ísland. Í
stað þess að fólk sé að
versla erlendis er það
að versla á Íslandi og
það skilar sköttum og
gjöldum hingað og
eykur atvinnu.“
Hún segir þó að
miklar áskoranir
séu í verslun hér-
lendis. „Verslunin
er að breytast gríðarlega mikið og
kauphegðun er að breytast. Það
sem við erum að standa fyrir er að
íslensk verslun aðlagi sig þessum
nýja tíma fyrr en seinna. Við höfum
verið sein að taka við okkur varð-
andi netverslunina og við megum
ekki vera sein í áframhaldandi
þróun.“
Í greiningunni kemur einnig fram
að verð á karlmannsfötum hefur
hækkað meira en verð á kven- og
barnafatnaði. Þar má sérstaklega
sjá áhrif þess að í kjölfar komu Lin-
dex (sem selur ekki karlmannsföt)
til landsins hefur dregið úr verð-
hækkunum á barna- og kvenfatn-
aði. „Þetta er framboð og eftirspurn
með karlaföt. Kannski eru kven- og
barnaföt viðkvæmari fyrir erlendri
verslun,“ segir Margrét.
Daníel Svavarsson, forstöðumað-
ur Hagfræðideildar Landsbankans,
segir athyglisverðast varðandi
þróun í verslun á Íslandi að kaup-
máttur hafi aukist hraðar en einka-
neysla.
„Þannig að heimilin hafa verið
skynsamari í sínum útgjöldum.
Þau eru að auka neysluna en líka
sparnaðinn.“ Hann tekur undir
með Margréti að kaupmenn þurfi
að bregðast við aukinni verslun
Íslendinga við erlendar búðir.
„Þeir þurfa að huga að sínum inn-
kaupum og ná hagstæðari samn-
ingum við sína birgja til að geta
verið samkeppnishæfir í verði. Fá
aukna framleiðni bæði út úr starfs-
fólki sínu og nýtingu fjármagns og
á húsnæði.“
Hann segir að greina megi skýr
ferðatöskuáhrif og áhrif af netversl-
un. „Vöxturinn í þeim vöruflokkum
sem auðvelt er að koma ofan í
ferðatösku eða ofan í fríhafnarpoka
virðist hafa verið hægari heldur en
kannski í stærri vöruflokkum eins
og húsgögnum sem erfitt er að taka
með sér úr utanlandsferðum.“
Greiningin bendir til þess að
verslun Íslendinga erlendis gæti
komið til með að aukast en 82 pró-
sent landsmanna hyggja á utan-
landsferðir á næstunni, samanborið
við um 79 prósent í fyrra.
Daníel bendir á að þó að fata-
verslun sé ekki búin að ná sér að
fullu á strik frá metinu árið 2008
hafi hún farið stöðugt vaxandi. „Þar
er væntanlega að spila inn í þessi
útivistarklæðnaður, ferðamenn
hafa verið duglegir að fata sig upp,“
segir Daníel. Hann telur að talsvert
minni aukning hafi orðið í fata-
verslun séu kaup ferðamanna tekin
út fyrir sviga. saeunn@frettabladid.is
Fataverslun enn ekki náð fyrri hæðum
Verslun með um helming vöruflokka er meiri nú en góðærisárið 2007. Mest hefur aukningin verið í sölu símtækja. Íslensk fataverslun
hefur meðal annars vaxið vegna útivistarfatnaðarkaupa ferðamanna. Kaupmenn þurfa að bregðast við netverslun og verslunarferðum.
Verð á karlafatnaði hefur hækkað meira en á kvenfatnaði. Fréttablaðið/Ernir
markaðurinn
Símtæki lyf og
lækningavörur
Drykkjarvörur raftæki Matur Vefnaðarvörur
til heimilis
Hreinlætis-
og snyrtivörur
Áfengi Skór
87% 48% 38% 26% 23% 15% 10% 9% 6%
blöð, bækur
og ritföng
Föt borðbúnaður
og heimilis-
áhöld
Verkfæri o.fl.
fyrir hús og
garð
Sjónvörp,
myndbönd,
tölvur o.fl.
Húsgögn
og heimilis-
búnaður
tómstunda-
vörur, leikföng
o.fl.
Kaup ökutækja tómstundir,
stærri tæki o.fl.
-55%-3% -4% -8% -11% -13% -22% -38% -38%
Heimild: Hagstofa Íslands, Hagfræðideild Landsbankans
Vöxturinn í þeim
vöruflokkum sem
auðvelt er að koma ofan í
ferðatösku eða ofan í frí-
hafnarpoka virðist hafa
verið hægari.
Daníel Svavarsson,
forstöðmaður
Hagfræðideildar
Landsbankans
Það sem við erum
að standa fyrir
er að íslensk verslun
aðlagi sig á þessum
nýja tíma fyrr en
seinna.
Margrét Sanders, for-
maður SVÞ
www.apotekarinn.is
- lægra verð
Eyrnadropar við verk og bólgu
Við eyrnaverk og bólgu í tengslum
við miðeyrnabólgu
• Hjálpar einnig við að fjarlægja
eyrnamerg úr hlustinni
• Hentar börnum
• Gefið sem úði, auðvelt í notkun
• 100% náttúruleg innihaldsefni
• 15 ml glas Nýtt
OTIKON_5x10-Apotekarinn copy.pdf 1 07/03/17 13:58
2 3 . m a r s 2 0 1 7 F i m m t U D a G U r12 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
4
-4
7
8
4
1
D
1
4
-4
6
4
8
1
D
1
4
-4
5
0
C
1
D
1
4
-4
3
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K