Fréttablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 44
„Það er alltaf skemmtilegt að taka upp
Ísþjóðina og algjör forréttindi að fá að
skyggnast inn í líf íslenskra eldhuga. Hug-
myndin að þáttunum kviknaði þegar ég
áttaði mig á því hversu stórkostleg unga
kynslóðin okkar er. Við, þessi litla þjóð,
eigum verðuga sendiboða í öllum heims-
álfum sem eru að gera frábæra hluti,“
segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
fjölmiðlakona um Ísþjóðina sem hefur
göngu sína í fimmta sinn á sunnudag.
Ragnhildur Steinunn hefur heimsótt
fjölda áhugaverðra einstaklinga í þáttum
sínum í gegn um tíðina. Meðal viðmæl-
enda hafa verið þau Hera Hilmarsdóttir
leikkona, Annie Mist, hraustasta kona
heims, Gunnar Nelson bardagakappi
og hljómsveitin Of Monsters and Men.
„Meðal viðmælenda í fimmtu seríunni
eru Jökull Júlíusson, liðsmaður hljóm-
sveitarinnar Kaleo, Ólafía Þórunn Krist-
insdóttir atvinnukylfingur, Heiðar Logi
Elíasson atvinnubrimbrettakappi og tón-
listarkonan Glowie,“ segir Ragnhildur.
Þau Ragnhildur Steinunn og Eiríkur
Ingi Böðvarsson vinna þættina saman en
Ragnhildur segir þau leggja mikið upp úr
því að þættirnir séu bæði áhugaverðir,
fjölbreyttir og vandaðir.
„Við vinnum þetta bara tvö og gerum
allt frá því að fullmóta handrit fyrir
hvern þátt, taka upp og fljúga drónum
og klippa þættina. Það kemur fólki oft
á óvart að við séum ekki margra manna
teymi en mér finnst við ná betur til
viðmælendanna á þennan hátt. Þetta
verður persónulegra og ekki eins yfir-
þyrmandi fyrir fólk,“ útskýrir Ragn-
hildur og bætir við að hún sé ótrúlega
lánsöm með samstarfsmann og segir að
Eiríkur Ingi hefur einstakt lag á lokasam-
setningu sjónvarpsþátta.
Í fyrsta þætti Ísþjóðarinnar ræðir
Ragnhildur Steinunn við Jökul Júlíus-
son, leiðtoga hljómsveitarinnar Kaleo,
en hann hefur verið á hraðri siglingu
upp á stjörnuhimininn.
„Hljómsveitin er bókuð út árið og
umboðsmaður sveitarinnar, Bruce
Kalmick, segir í þættinum að hann hafi
orðið fyrir nokkurs konar vakningu
þegar hann heyrði tónlist sveitarinnar
fyrst. Hann hafi ákveðið að fljúga strax
til Íslands,“ segir Ragnhildur.
Bruce Kalmick hefur verið farsæll í
starfi sínu í gegn um tíðina og er sann-
færður um að hljómsveitin Kaleo eigi
eftir að ná langt. „Ég vissi um leið að
þetta yrði framtíð mín,“ segir Bruce
meðal annars í fyrsta þætti Ísþjóðar-
innar sem sýndur verður á RÚV á sunnu-
dagskvöld. Hann hrósar Jökli í hástert
í þættinum og segir að brátt muni
heimurinn átta sig á því að hann sé einn
færasti flautari heims.
„Rödd hans er marglaga. Hún getur
verið mjög dimm, legið niðri í neðstu
djúpum. Svo er hann einn besti flautari
heims og það verður trúlega fljótt á allra
vitorði. Röddin er ótrúleg og lögin ekki
síður. Það fylgir ekki endilega, að vera
með góða rödd og vera listamaður. Þeir
eru fátíðir,“ segir Bruce og bætir við að
lögin sem Jökull semji séu af gamla skól-
anum og minni á tónlist frá Bob Dylan,
Van Morrison og Rolling Stones.
gudrunjona@frettabladid.is
Ísþjóðin í fimmta sinn
Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni hefur göngu sína í fimmta sinn á sunnudagskvöld.
Í þáttunum skyggnist hún inn í líf ungra Íslendinga sem takast á við krefjandi verkefni.
Ragnhildur Steinunn og Eiríkur Ingi vinna
Ísfólksþættina saman. Mynd/RagnhIlduR
Ástkær móðir mín,
amma okkar og langaamma,
Lilja Gísladóttir
lést fimmtudaginn 16. mars á
hjúkrunarheimilinu Eir. Jarðarförin
fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 27. mars kl. 13.00.
Agnes Óskarsdóttir
börn og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, mamma okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Margrét Ólafsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
Skálateigi 3, Akureyri,
lést mánudaginn 20. mars.
Hreinn Pálsson
Lára Hreinsdóttir Erlingur Jóhannsson
Ólafur Hreinsson Sigurbjörg María Ísleifsdóttir
Guðni Hreinsson Þórey Þöll Vilhjálmsdóttir
Hans Hreinsson Harpa Sif Þórsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Guðsteinn Vignir
Guðjónsson
frá Tunguhálsi,
sem lést á heimili sínu föstudaginn
17. mars, verður jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 1. apríl klukkan 11.
Jarðsett verður í Sauðárkrókskirkjugarði.
Inga Björk Sigurðardóttir
Valborg Inga Guðsteinsdóttir Ólafur Kr. Jóhannsson
Heiðrún Edda Guðsteinsdóttir Haraldur Birgisson
Guðrún Brynja Guðsteinsdóttir Gylfi Ingimarsson
Ásdís Anna Guðsteinsdóttir Magnús Kristjánsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Skúli Einarsson
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu
þann 4. mars. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey. Þökkum starfsfólkinu á
Mánateigi einstaka alúð og umhyggju.
Margrét Sigrún, Stefanía, Anna Linda, Guðrún,
Einar, Skúli og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
Guðleif Erla Blöndal
lést þann 10. mars. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Einar Þór Jónsson
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir, amma
og langamma okkar,
Guðrún Erla Bjarnadóttir
Núpalind 8, Kópavogi,
sem lést laugardaginn 18. mars,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 29. mars klukkan 13. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á líknarfélög.
Ingólfur Ólafsson
Guðrún Ingólfsdóttir Sigurður Ólafsson
Bjarni Hrafn Ingólfsson Inga Þórisdóttir
Þór Ingólfsson Pia Hansson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elvíra Herrera Ólafsson
lést mánudaginn 20. mars
í Fuengirola á Spáni.
Þórir V. Þórisson Auður Dúadóttir
Sveinn Þórisson
Kristján Þórisson Svala Chomchuen
Ólafur Þorkell Þórisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Borghildur Þórðardóttir
frá Stöðvarfirði,
lést laugardaginn 18. mars sl.
Útför fer fram frá Grensáskirkju
föstudaginn 31. mars kl. 15.00.
Þórður Helgason Svanhildur Kaaber
Guðjón Helgason
Þóra Helgadóttir Sigurður S. Sighvatsson
Sólveig Helgadóttir Óskar K. Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Gísli Ísleifur Aðalsteinsson
Austurbrún 2,
er látinn.
Útför hans fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði,
miðvikudaginn 29. mars kl. 15.00.
Kristín Gísladóttir Aðalsteinn Hallgrímsson
Ásdís Aðalsteinsdóttir Bergþór Jóhannsson
Kristín Björg Bergþórsdóttir
Jóhanna Guðrún Bergþórsdóttir
Steinunn María Bergþórsdóttir
Jóhann Gunnar Bergþórsson
Aðalsteinn Gunnar Bergþórsson
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
Gestur E.G. Gestsson
frá Nýlendu, Garði,
lést laugardaginn 11. mars á
hjúkrunarheimilinu Hrafnistu að
Nesvöllum í Reykjanesbæ. Útförin fer
fram frá Útskálakirkju laugardaginn
25. mars kl. 13.00.
Þorleifur Gestsson Díana Sjöfn Eiríksdóttir
Júlíus Gestsson Rannveig Guðnadóttir
Sigurður Gestsson Ingveldur Halla Sigurðardóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Áskels Torfa Bjarnasonar
Anna Guðný Jóhannsdóttir
Ásgeir Arngrímsson
Árni Áskelsson Jóhanna Marín Jónsdóttir
Bjarni Áskelsson Ingibjörg H. Sigurðardóttir
Guðmundur Sveinn Áskelsson Þóra Bjarnadóttir
Guðni Torfi Áskelsson Júlíana Hilmisdóttir
Gestur Áskelsson Sigríður Kjartansdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar og amma,
Friðrikka Elísabet
Óskarsdóttir
frá Kóngsstöðum í Skíðadal,
lést þann 13. mars á Dalbæ, Dalvík.
Útförin verður frá Dalvíkurkirkju
föstudaginn 24. mars kl. 13.30.
Þuríður Jóna Jóhannsdóttir
Valgerður María Jóhannsdóttir
Hlynur, Elísabet og Bjarki Vallýjarbörn
og fjölskyldur.
2 3 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r24 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð I ð
tímamót
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
4
-5
1
6
4
1
D
1
4
-5
0
2
8
1
D
1
4
-4
E
E
C
1
D
1
4
-4
D
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K