Fréttablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
2 3 . m a r s 2 0 1 7 F I m m T U D a G U r40 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
15.03.17 - 22.03.17
1 2
5 6
7 8
109
43
Örvænting
B.A. Paris
Löggan
Jo Nesbø
Dalalíf - Laun syndarinnar
Guðrún frá Lundi
Handan fyrirgefningar
Þórdís Elva & Tom Stranger
Binna B Bjarna - Stóra systir
Sally Rippin
Andartak eilífðar
Paul Kalanithi
Stúlkurnar á Enlandsferjunni
Lone Theils
Konan sem hvarf
Anna Ekberg
Eftir að þú fórst
Jojo Moyes
Planet Iceland
Sigurgeir Sigurjónsson
Fatahönnuðurinn Harpa Einarsdóttir fær innblást-ur úr meðal annars þjóð-sögum og náttúrunni í sköpun sinni fyrir merkið Myrka. Spurð út í línuna
sem hún sýnir á RFF segir hún:
„Línan er innblásin af íslenskum
þjóðsögum og áferðinni í lands-
laginu, hún er skemmtilega blanda
af fágaðri klassík með vísun í land og
þjóð og grunge og glamrokk. Línan
hentar vel fyrir álfa, víkinga, lista-
spírur og spjátrunga. Efniviðurinn
er kasmírull, silkiflauel, silki, vegan
og ekta leður, feldur, ull, mynstrað
viskósefni og fleira.“
Harpa hefur verið viðriðin
íslenska fatahönnunarbransann
lengi og margir þekkja verk hennar
sem hún hannaði á sínum tíma
undir vörumerkinu Ziska. Hun tók
tvisvar þátt í RFF með Ziska. „Þetta
er fyrsta heila línan sem ég hanna
undir Myrka, og framleiðsla er ekki
komin í gang að neinu ráði. Línan
sem ég sýni á RFF er FW17, en fyrstu
flíkurnar koma í sölu í vor. Svo næ ég
vonandi að láta þetta vaxa og dafna
organískt á þeim hraða sem ég treysti
mér í, ég ætla að stíga varlega til jarð-
ar og vanda mig vel við framhaldið,“
útskýrir Harpa sem hefur notið þess
að búa til þetta nýja vörumerki sem
Myrka er. „Ferlið hefur allt verið afar
skemmtilegt og óvænt að vissu leyti.“
Harpa kveðst í dag vinna með
svipaðar áherslur og hún hefur
alltaf gert. „Ziska er auðvitað ég og
það skín í gegn í hönnuninni minni.
En það sem er frábrugðið eru nýjar
áherslur og núna hugsa ég aðeins
lengra fram í tímann. En eins og ég
segi þá er Myrka rétt að fæðast og ég
er enn að pússa þetta allt til. Í dag er
ég óhræddari við að leika mér og gera
tilraunir með mismunandi efnivið
og hef einfaldlega mun meira gaman
af ferlinu sjálfu – það mun bersýni-
lega endurspeglast í nýju línunni. Þó
nafnið Myrka sé drungalegt þá skín
ákveðinn léttleiki og leikgleði í gegn
í línunni.“
Það að byrja aftur á núllpunkti var
gott að vissu leyti að sögn Hörpu. „Já,
það var mjög gott að stíga til baka
og finna aftur kjarnann í minni
sköpun. Allt ferlið á bak við Ziska
var afar góður skóli sem mun nýtast
mér áfram. Ég er mjög ánægð að fá
tækifæri til að halda áfram og gera
betur,“ útskýrir Harpa sem leggur
meiri áherslu núna á að samtvinna
fatahönnun sína og myndlist.
„Það er ýmislegt á döfinni,“ segir
Harpa spurð út í framhaldið. „Fyrst
og fremst er það að koma fram-
leiðslunni af stað svo hjólin fari að
snúast, staðsetja mig á markaðinum
og gera viðskiptaáætlun, sækja um
styrki og byrja að hanna næstu línu.
Þetta er afskaplega mikil vinna fyrir
eina manneskju og ég vona að ég
geti fengið með mér samstarfsaðila
í náinni framtíð, helst með gott við-
skiptavit svo ég geti einbeitt mér
meira að hönnun og markaðssetn-
ingu,“ segir Harpa sem er afar spennt
fyrir helginni og RFF.
„Ég vil koma á framfæri þökkum
til allra sem koma að hátíðinni, fyrir
að blása aftur lífi í þennan magnaða
viðburð.“
gudnyhronn@365.is
Mun stíga varlega til
jarðar með nýja merkið
Fatahönnuðurinn Harpa Einarsdóttir er ein þeirra sem sýna hönn-
un sína á Reykjavík Fashion Festival-hátíðinni sem er sett í dag.
Harpa hannar nú undir merkinu Myrka sem er nýtt merki sem hún
hefur verið að vinna að hægt og rólega síðustu tvö ár.
Harpa Einarsdóttir tekur þátt í RFF með merkið sitt MYRKA. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
4
-4
7
8
4
1
D
1
4
-4
6
4
8
1
D
1
4
-4
5
0
C
1
D
1
4
-4
3
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K