Fréttablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 34
Stjórn húsfélags skal sam-kvæmt 74. grein laga um fjöleignarhús semja og leggja fyrir húsfund til samþykktar hús- reglur um hagnýtingu sameignar og séreignar. Reglurnar skulu hafa að geyma sem ítarlegust ákvæði um sambýlishætti, umgengni og afnot sameignar og skiptingu afnota ef því er að skipta. Í húsreglum fjölbýlishúsa skal meðal annars fjalla um neðan- greind atriði: 1. Umgengni um sameign og um afnot hennar og hagnýtingu. 2. Bann við röskun á svefnfriði í húsinu a.m.k. frá miðnætti til kl. 7 að morgni og undanþágur frá því banni. 3. Skiptingu afnota sameiginlegs þvottahúss. 4. Hvernig þrifum sameignar og umhirðu lóðar skuli háttað og hverjar séu skyldur eigenda í því efni. 5. Reglur um hunda- og/eða katta- hald sé það leyft, sbr. 13. tölul. A-liðar 41. gr. 6. Reglur um afnot sameiginlegra bílastæða. 7. Reglur um hagnýtingu séreigna að því marki sem unnt er. 12. gr. Helsti kosturinn við gólfteppi er að þau gefa mun betri hljóðvist en flest önnur gólfefni. Skapti Stefánsson Húsreglur lúta meðal annars að röskun á svefn- friði og umhirðu lóðar. Tillitssemi í hávegum höfð Gólfefnavöruverslunin Álfa-borg hefur verið starfrækt í þrjátíu ár. Þar er boðið upp á flísar, parket, teppi og gólf- dúka ásamt öllu efni til lagningar. „Upphaflega vorum við aðallega í flísum en höfum nú selt teppi í yfir tuttugu ár. Árið 2007 keypti Álfaborg Teppaland ehf. en þá fylgdu margir góðir erlendir birgjar sem styrktu stöðu okkar til muna. Úrvalið jókst og fjölbreytnin hvað varðar liti og gæði sömuleiðis,“ segir Skafti Stefánsson, söluráðgjafi hjá Álfaborg. Í dag býður Álfaborg upp á fjöl- breytt úrval teppa í mismunandi verðflokkum fyrir fyrirtæki, hús- félög, heimili og verktaka. „Við kappkostum að veita framúr- skarandi góða þjónustu sem felst meðal annars í því að við mælum fyrir teppunum og gerum fast tilboð. Við bjóðum jafnframt upp á það að taka gömlu teppin af og farga þeim til Sorpu. Það eina sem viðskiptavinir þurfa að gera er að taka afstöðu til litar og gerðar. Við sjáum um rest,“ segir Skafti. Hann segir Álfaborg auk þess búa að því að vera með góða menn í vinnu sem skila góðu verki. Að sögn Skafta þurfa teppi á stigaganga að vera slitsterk og endingargóð. Hann segir öll teppi sem Álfaborg býður upp á uppfylla þar til gerða staðla, þar með talið brunastaðla. Þau eru auk þess öll auðveld í þrifum og afrafmögnuð. En af hverju kjósa menn teppi á stigaganga? „Helsti kosturinn er að þau gefa mun betri hljóð- vist en flest önnur gólfefni,“ segir Skafti en að hans mati er fólk orðið mun meðvitaðra um kosti góðrar hljóðvistar og þá sérstaklega í fjöl- býlishúsum. Aðspurður segir hann dökkgráa litinn hvað vinsælastan en teppin fáist þó í alls kyns litum og blæbrigðum. Skafti segir endingu teppanna misjafna. „Hún fer eftir gæða- flokkum, teppagerð, notkun og samsetningu íbúa. Þess má til dæmis geta að við höfum lengi verið að selja teppi frá danska framleiðandanum Fletco. Sum voru sett á fyrir hátt í þrjátíu árum og eru enn í notkun.“ Allar nánari upplýsingar er að finna á alfaborg.is. Gólfteppi bæta hljóðvist Álfaborg er sérhæfð gólfefnavöruverslun. Þar fæst allt á gólfið á einum stað. Algengt er að setja gólfteppi á sameignir. Starfsmenn Álfaborgar hafa áratuga reynslu af þeim og vita upp á hár hvað hæfir hverjum stað. Skapti Stefáns- son, söluráðgjafi hjá Álfaborg. www.gamar.is • Sími 535 2510 MOLTA OG KURL MOLTA Kraftmikill jarðvegsbætir Sendum heim. Upplýsingar í síma 535 2500 KURL Upplagt á gangstíga og beð Söludeild Hringhellu 6 • 221 Hafnarfjörður • Sími 535 2500 soludeild@gamar.is • www.gamar.is 21 .3 21 6/ 3/ 17 www.gamar.is • Sími 535 2510 6 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . m A r S 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 4 -2 E D 4 1 D 1 4 -2 D 9 8 1 D 1 4 -2 C 5 C 1 D 1 4 -2 B 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 2 2 3 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.