Fréttablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 36
Sameignin þarf að vera snyrtileg og vel við haldið. Margir hafa búið í blokk einhvern tímann á lífsleiðinni. Blokkar- íbúðir eru vinsælar sem fyrstu kaup unga fólksins og einnig á meðal eldra fólks sem vill minnka við sig. Hvort sem þú ert að selja eða kaupa íbúð í blokk er gott að hafa í huga að sameignin hefur líka áhrif á væntanlega kaupendur. Þess vegna er mikilvægt að halda sam- eigninni í góðu lagi. Passa þarf að inngangurinn í húsið sé hreinn og snyrtilegur og laus við allt rusl. Sömuleiðis ætti stigagangurinn að vera vel hirtur, sama hvort um er að ræða nýtt eða eldra húsnæði. Lofta þarf út daglega til að matarlykt eða óþefur setjist ekki í teppi á sameign. Ef það eru lyftur í húsinu eiga þær að vera vel þrifnar og í topp- standi. Ruslageymslur þarf að þrífa reglulega og passa upp á að ruslið flæði ekki um allt. Þá er ekki síður nauðsynlegt að gæta þess að umhverfi blokkarinnar sé í lagi, sópa stéttina reglulega, halda blómabeðum og grasflöt í lagi og tína upp rusl, ef eitthvað er. Sameignin selur líka Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 10. mars til og með 16. mars 2017 var 148. Þar af voru 109 samningar um eignir í fjöl- býli, 29 samningar um sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 6.413 milljónir króna og meðal- upphæð á samning 43,3 milljónir króna, að því er segir á heimasíðu Þjóðskrár Íslands. Á sama tíma var 20 kaupsamn- ingum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 10 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 630 milljónir króna og meðal- upphæð á samning 31,5 milljónir króna. Vakin er athygli á að meðal- upphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Vísitala íbúðaverðs á höfuð borgarsvæðinu var 537,7 stig í febrúar 2017 (janúar 1994-100) og hækkaði um 2,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 5,8%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 18,6%. Vísitala íbúða- verðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fer- metraverðs. Velta á markaði Þegar rætt er um sameignir fjöl - býlishúsa er stigagangur, þvottahús og geymslur það sem vafalaust kemur fyrst upp í huga fólks. Ýmis- legt fleira fellur þó undir sameign og má þar nefna stórar frysti- geymslur sem eru reyndar mjög sjaldgæfar hér á landi og finnast ekki í nýjum fjölbýlishúsum. Fáeinar mjög stórar blokkir á höfuðborgarsvæðinu hafa sam- eiginlega frystigeymslu sem minnir um margt á frystigeymslu skipa. Eina slíka má finna í Hólahverfinu í Breiðholti en í þeirri blokk eru 58 íbúðir. Frystigeymslan er um sjö fermetrar en þar inni hefur hver íbúi aðgang að hólfi sem er um 50x50 cm að stærð. Frystiklefinn var barn síns tíma enda stórar frystikistur ekki algengar í smærri blokkaríbúðum á þessum tíma. Á næstu árum jókst frystikistueign landsmanna og stórir frystiklefar á borð við þann sem er í Hólahverf- inu heyra nú að mestu sögunni til. Frystigeymslur í eldri húsum Leiktæki Rólur - Rennibrautir - kastalar - Sandkassar Íslensk hönnun og íslensk framleiðsla Einkunarorð KRUMMA ehf eru Öryggi - Gæði - Leikur Gylfaflöt 7 S. 587-8700 kruMMa@kruMMa.is www.kruMMa.is 8 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . m a r s 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 4 -4 2 9 4 1 D 1 4 -4 1 5 8 1 D 1 4 -4 0 1 C 1 D 1 4 -3 E E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 2 3 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.