Fréttablaðið - 23.03.2017, Page 36
Sameignin þarf að vera snyrtileg og vel við haldið.
Margir hafa búið í blokk einhvern
tímann á lífsleiðinni. Blokkar-
íbúðir eru vinsælar sem fyrstu
kaup unga fólksins og einnig á
meðal eldra fólks sem vill minnka
við sig.
Hvort sem þú ert að selja eða
kaupa íbúð í blokk er gott að hafa í
huga að sameignin hefur líka áhrif
á væntanlega kaupendur. Þess
vegna er mikilvægt að halda sam-
eigninni í góðu lagi.
Passa þarf að inngangurinn í
húsið sé hreinn og snyrtilegur og
laus við allt rusl. Sömuleiðis ætti
stigagangurinn að vera vel hirtur,
sama hvort um er að ræða nýtt
eða eldra húsnæði. Lofta þarf út
daglega til að matarlykt eða óþefur
setjist ekki í teppi á sameign.
Ef það eru lyftur í húsinu eiga
þær að vera vel þrifnar og í topp-
standi. Ruslageymslur þarf að
þrífa reglulega og passa upp á að
ruslið flæði ekki um allt. Þá er ekki
síður nauðsynlegt að gæta þess
að umhverfi blokkarinnar sé í
lagi, sópa stéttina reglulega, halda
blómabeðum og grasflöt í lagi og
tína upp rusl, ef eitthvað er.
Sameignin selur líka
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á
höfuðborgarsvæðinu 10. mars til og
með 16. mars 2017 var 148. Þar af
voru 109 samningar um eignir í fjöl-
býli, 29 samningar um sérbýli og 10
samningar um annars konar eignir
en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan
var 6.413 milljónir króna og meðal-
upphæð á samning 43,3 milljónir
króna, að því er segir á heimasíðu
Þjóðskrár Íslands.
Á sama tíma var 20 kaupsamn-
ingum þinglýst á Akureyri. Þar
af voru 10 samningar um eignir í
fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og
1 samningur um annars konar eign
en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan
var 630 milljónir króna og meðal-
upphæð á samning 31,5 milljónir
króna.
Vakin er athygli á að meðal-
upphæð kaupsamnings er ekki
hægt að túlka sem meðalverð eigna
og þar með sem vísbendingu um
verðþróun. Vísitala íbúðaverðs á
höfuð borgarsvæðinu var 537,7 stig
í febrúar 2017 (janúar 1994-100) og
hækkaði um 2,5% frá fyrri mánuði.
Síðastliðna 3 mánuði hækkaði
vísitalan um 5,8%, síðastliðna 6
mánuði hækkaði hún um 9,7% og
síðastliðna 12 mánuði hækkaði
hún um 18,6%. Vísitala íbúða-
verðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir
breytingar á vegnu meðaltali fer-
metraverðs.
Velta á markaði
Þegar rætt er um sameignir fjöl -
býlishúsa er stigagangur, þvottahús
og geymslur það sem vafalaust
kemur fyrst upp í huga fólks. Ýmis-
legt fleira fellur þó undir sameign
og má þar nefna stórar frysti-
geymslur sem eru reyndar mjög
sjaldgæfar hér á landi og finnast
ekki í nýjum fjölbýlishúsum.
Fáeinar mjög stórar blokkir á
höfuðborgarsvæðinu hafa sam-
eiginlega frystigeymslu sem minnir
um margt á frystigeymslu skipa.
Eina slíka má finna í Hólahverfinu
í Breiðholti en í þeirri blokk eru 58
íbúðir. Frystigeymslan er um sjö
fermetrar en þar inni hefur hver
íbúi aðgang að hólfi sem er um
50x50 cm að stærð. Frystiklefinn
var barn síns tíma enda stórar
frystikistur ekki algengar í smærri
blokkaríbúðum á þessum tíma. Á
næstu árum jókst frystikistueign
landsmanna og stórir frystiklefar á
borð við þann sem er í Hólahverf-
inu heyra nú að mestu sögunni til.
Frystigeymslur
í eldri húsum
Leiktæki
Rólur - Rennibrautir - kastalar - Sandkassar
Íslensk hönnun
og
íslensk framleiðsla
Einkunarorð KRUMMA ehf
eru
Öryggi - Gæði - Leikur
Gylfaflöt 7 S. 587-8700 kruMMa@kruMMa.is www.kruMMa.is
8 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . m a r s 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
4
-4
2
9
4
1
D
1
4
-4
1
5
8
1
D
1
4
-4
0
1
C
1
D
1
4
-3
E
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K