Fréttablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 32
Um daginn var heldið pub quiz á milli stigaganga. Við búum svo vel að Stefán Pálsson sagnfræðingur er formaður húsfélagsins. Hann bjó til spurninga- keppnina sem reyndist æsispennandi. Sólveig Gísladóttir solveig@365.is Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð og bestu fáanlegu áhöld hverju sinni. Húsfélagaþjónustan leggur áherslu á þjónustu við sameignir í fjölbýli, að sögn Þóris Gunnarssonar framkvæmda- stjóra. „Meginstarfsemi okkar snýr að reglubundnum þrifum og ræstingu. Auk þess þjónustum við atvinnu- og skrifstofuhúsnæði en sá hluti eykst stöðugt þótt hefð- bundin þrif- og ræstingarþjónusta við húsfélög sé fyrirferðarmest hjá okkur. Þá tökum við að okkur fjölmörg önnur verkefni, stór og smá, þ. á m. teppahreinsun, sorp- geymsluþjónustu, gluggaþvott, flutningsþrif, þrif eftir fram- kvæmdir og svo mætti lengi telja.“ Nákvæm verklýsing Í upphafi skoðar starfsmaður fyrir- tækisins sameignina eða verkefnið og gerir húsfélaginu eða viðkom- andi tilboð í kjölfarið. „Ef tilboð- inu er tekið, er gerður samningur þar sem öll þjónusta sem er keypt er nákvæmlega tilgreind. Nákvæm verklýsing er gerð sem starfsfólk okkar vinnur eftir og merkir við hvern lið sem unninn er hverju sinni. Helstu verkefni okkar fyrir húsfélög eru að ryksuga, þvo gólf, þurrka af ryk og þvo gler í anddyri og ýmislegt fleira. Sameignin er þrifin í samvinnu við íbúa enda þykir okkur mikilvægt að gerðar séu skýrar verklýsingar eftir óskum hvers og eins svo allt sé á hreinu,“ segir Þórir. Vorverkin nálgast Nú þegar vorið nálgast minnir Þórir á hefðbundin vorverk Hús- félagaþjónustunnar, svo sem gluggaþvott og teppahreinsun. „Fyrirtækið á eigin lyftur fyrir gluggaþvottinn og við sjáum um gluggaþvott fyrir mörg af stærri húsum landsins en við þvoum glugga á öllum stærðum húsa.“ Teppahreinsun er einnig fastur hluti af vorverkunum. „Þá er ein- mitt gott að hreinsa úr þeim sand og tjöru sem fara í teppin yfir vetrarmánuðina en hreinsast ekki svo auðveldlega við ryksugun. Við erum með fullkomnustu vélar og hreinsiefni sem er með því allra besta sem býðst, bæði fyrir blaut- hreinsun og þurrhreinsun,“ segir hann. Allt á einum stað Þórir segir marga kosti við að kaupa þrif- og ræstingar- þjónustu hjá fag- mönnum í stað þess að sjá um slíkt sjálf. „Flestir eru uppteknir við vinnu, tómstundir og ferðalög og finnst mikill kostur að geta fengið alla þjónustuna á einum stað. Víða eru leiguíbúðir og leigjendur ekki alltaf jafn viljugir að þrífa sam- eignina svo fátt eitt sé nefnt. Við notum eingöngu vistvæn hreinsi- efni sem við flytjum inn sjálf. Þau koma frá ítalska fyrirtækinu Sutter sem var það fyrsta sem framleiddi hreinsiefni sem uppfylltu Kyoto- bókunina á sínum tíma og er framúrskarandi á sínu sviði.“ Reyndir starfsmenn Húsfélagaþjónustan er mjög vel tækjum búin. „Við vinnum stöðugt að því að bæta okkur og höfum því alltaf augun opin fyrir því besta sem er í boði hverju sinni. Einnig má nefna að stór hluti starfs- manna okkar hefur starfað hjá fyrir- tækinu mjög lengi, jafnvel frá upphafi. Starfsmanna- veltan er lítil og 30 manna reynslumikill kjarni leysir verkefni dagsins. Það skiptir miklu máli fyrir starfsemi af þessu tagi að hafa trausta og heiðarlega starfsmenn sem kunna vel til verka og sama starfsfólkið sjái ávallt um hvert hús, þann- ig verða líka viðskiptavinirnar ánægðir.“ Nánari upplýsingar má finna á www.husfelag.is. Heildarlausnir fyrir húsfélög Húsfélagaþjónustan er sérhæfð í ræstingum fyrir húsfélög og fyrirtæki og þjónustu í þrifum og umhirðu. Fyrirtækið var stofnað 2002 og byggir á reynslumiklum og traustum starfsmönnum. Georg flutti í Eskihlíðina árið 2000 og varð fljótlega við-riðinn húsfélagið, fyrst sem formaður en gjaldkeri hefur hann verið síðastliðin 15 ár. „Megin- ástæðan fyrir því að ég hef látið til leiðast í starfið öll þessi ár er það góða andrúmsloft sem ríkir í húsinu. Á meðan andinn er góður í hópnum, menn eru samstiga um að vilja halda húsinu í góðu ástandi og vinna saman að því marki, þá tel ég þetta ekki eftir mér,“ segir Georg og bætir við að starfið reynist sér alls ekki þungt í skauti. „Við höfum verið í húsfélagaþjónustu hjá Íslandsbanka sem gerir starf mitt mjög auðvelt.“ Vinsælir húsfundir Georg segir jákvæðnina í hús- félaginu mjög drífandi. „Við erum að fá 80 til 90 prósent mætingu á húsfélagsfundi sem gerir starfið létt og skemmtilegt. Þá leggja allir sitt af mörkum,“ segir hann og tekur dæmi um það þegar snjórinn mikli féll í mars. „Þá reyndist fjölmennur hópur vera kominn út á plan að moka þó húsfélagið hefði ekki boðað til þess.“ Tveir stigagangar eru í blokkinni og 19 íbúðir. Ýmislegt er gert til að auka samheldni íbúanna. „Haldinn er sameiginlegur hreinsunardagur á vorin sem lýkur með grillveislu. Það þéttir raðir bæði fullorðinna og barna. Um daginn var haldið pub quiz á milli stigaganga. Við búum svo vel að Stefán Pálsson sagn- fræðingur er formaður húsfélagsins. Hann bjó til spurningakeppnina sem reyndist æsispennandi,“ lýsir Georg og bætir við að oft vilji hús- félagsfundir leysast upp í glens og gaman. Upplýsingaflæðið mikilvægt Þrátt fyrir gleðiríka stemningu er tekið faglega á þeim ákvörðunum sem varða viðhald og uppbygg- ingu blokkarinnar. „Við fundum reglulega og höfum unnið að því í fjölmörg ár að koma blokkinni í það stand sem við erum ánægð með. Fyrir níu árum fengum við ástands- skýrslu á blokkinni og útbjuggum plan út frá henni. Það plan hefur haldið nokkuð vel og hefur verið unnið á þeim hraða sem íbúar ráða við. Þeir íbúar sem hafa komið inn á leiðinni fá einnig að vita hvað er búið að gera, hvað á eftir að gera og hver áætlunin sé á því,“ segir Georg. Hann telur upplýsingaflæði skipta miklu til að halda andanum góðum. „Við höldum frekar fleiri fundi en færri og ræðum málin í þaula. Þá höldum við úti Facebook-síðu fyrir íbúa þar sem gott er að koma upplýsingum hratt og örugglega á framfæri.“ Huga að framtíðinni Næsta verkefni húsfélagsins er að endurnýja bílaplanið. „Upphaflega átti bara að endurmalbika en síðan spruttu upp umræður um fram- tíðina, til dæmis í rafbílavæðingu en það er afskaplega takmarkandi að búa í blokk þegar kaupa á bíl sem þarf að stinga í samband,“ segir Georg. Niðurstaðan var því að hugsa til framtíðar og gera ráð fyrir rafmagni í bílaplaninu sem síðar verði hægt að útbúa hleðslustöðv- ar við. Georg telur að Reykjavíkur- borg ætti að gefa út leiðbeinandi fyrirmæli um það hvernig standa ætti að því í gömlum húsum að endurnýja bílaplön. Húsfélag barnanna Ekki aðeins þeir fullorðnu í blokk- inni hafa áhuga á húsfélagsmálum. „Á vinnudeginum í fyrra hópuðust börnin í blokkinni saman og spurðu af hverju þau mættu ekki vera með á húsfundum. Við reyndum að telja þeim trú um að fundir væru ekki svo skemmtilegir. En þá sögðu þau að foreldrar þeirra rifust um það hvort þeirra fengi að fara á húsfundi og því hlyti eitthvað skemmtilegt að vera að gerast. Þau fengu því þá snilldarhugmynd um að stofna eigið barnahúsfélag,“ segir Georg. Börnin héldu fund og settu sér markmiðaskrá. „Markmið þeirra er að hafa gaman og taka vel á móti nýjum börnum í húsinu, og það hafa þau staðið við.“ Framundan hjá húsfélagi barnanna er byggja kofa í garðinum en til þess fengu þau styrk hjá Barnamenningarhátíð. Þá munu þau taka þátt í hátíðinni með því að vera með opinn dag og hátíð í garði blokkarinnar að Eskihlíð 10 þann 29. apríl næstkomandi. Pub quiz á milli stigaganga Georg Páll Skúlason hefur verið gjaldkeri húsfélagsins í Eskihlíð 10 í 15 ár. Hann telur ekki starfið eftir sér enda andinn í húsfélaginu afar góður. Georg fyrir utan Eskihlíð 10 og 10a. Mæting á húsfundi er 80 til 90% enda ríkir gleði og gaman. MyNd/ViLHELM 4 KyNNiNGARBLAÐ 2 3 . m a r S 2 0 1 7 F i M MT U dAG U R 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 4 -2 9 E 4 1 D 1 4 -2 8 A 8 1 D 1 4 -2 7 6 C 1 D 1 4 -2 6 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 2 2 3 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.