Fréttablaðið - 13.06.2017, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 13.06.2017, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Af hverju krosslímt tré? • Umhverfisvæn og sjálfbær framleiðsla • Léttari en steypa • Frábær einangrun • Engar kuldabrýr sem bjóða heim raka og myglu • Mjög fljótlegt að reisa • Einstakir burðareiginleikar • Jarðskjálftaþol eins og best getur orðið • Þynnri veggir - meira innra rými • Notalegt og heilsusamlegt innra umhverfi Smiðjuvegi 3 - 200 Kópavogur - Sími 412 1700 idex@idex.is - www.idex.is idex.is - sím 412 1700 framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi - merkt framleiðsla • Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf. • Hágæða álprófílkerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga Álgluggar - þegar gæðin skipta máli www.schueco.is Byggðu umhverfisvænt hús -úr krosslímdu tré Byggðu til framtíðar með lausnum frá IDEX Útsölustaðir: Hörpu / Laugavegi R e y k j av i k R a i n c o at s - H V e r f i s g ö t u 8 2 w w w. r e y k j av i k r a i n c o at s . c o m - s í m i : 5 7 1 1 1 7 7 Íslenski dansflokkurinn hefur verið að gera góða hluti utan landsteinanna upp á síðkastið en flokkurinn sýndi verkið Fórn meðal annars á Spring Festival í Utrecht – en þar hlaut verkið frábæra dóma og fékk fjórar stjörnur hjá þremur stórum hollenskum miðlum (Trouw, NRC og Theaterkrant). Trouw sagði til dæmis „sturluð en frískandi sýn- ing sem hittir alla leið í mark“ og NRC sagði sýninguna „spennandi díónískan fögnuð[...] lífsins“. Dansflokkurinn mun ferðast með Fórn hingað og þangað á árinu en í mánuðinum er farið með sýning- una til Harstad í Noregi í tengslum við Arctic Arts Festival. Þaðan liggur leiðin aftur til Hollands, en þá er það reyndar sýningin Black Marrow eftir Damien Jalet og Ernu Ómarsdóttur sem verður sýnd á Julidans hátíðinni. Fórn er sviðslistahátíð undir list- rænni stjórn Ernu Ómarsdóttur og Valdimars Jóhannssonar og saman- stendur af fjórum frumsömdum verkum unnum af og í samstarfi við Bryce Dessner, Gabríelu Friðriks- dóttur, Matthew Barney, Margréti Bjarnadóttur og Ragnar Kjartans- son. Fórn er samstarfsverkefni Íd og Borgarleikhússins og var frumsýnt í Borgarleikhúsinu 16. mars síðast- liðinn. – sþh Íslenski dansflokkurinn gerir það gott með Fórn Karólína Jóhannsdóttir söngkona, betur þekkt sem Karó, gefur út sitt fyrsta lag og myndband í ár en hún gaf út lögin Sil- houette og Wolfbaby í fyrra. Karó fór með sigur úr býtum í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2015 en hún keppti fyrir hönd Menntaskólans í Reykjavík. Nýjasta lagið hennar nefnist Overnight og verður frum- sýnt á skemmtistaðnum Paloma í kvöld. „Við Auður gerðum lagið í fyrra. Það hefur verið partur af mínu giggi síðan þá en ég ákvað að gefa það út núna. Við sömdum lagið sem sagt saman og það er Logi Pedro sem mixar. Það er kannski smá erfitt að útskýra hvernig lag þetta er, en ætli það megi ekki segja að þetta sé ein- hvers konar raf/RnB-bræðingur,“ segir Karó en hún kom nú síðast fram í laginu Opnum dyrnar sem var opinbert lag dags rauða nefsins nú fyrir helgi, en í laginu söng hún ásamt rapparanum Kött Grá Pje. „Lagið fjallar í grunninn um þessa togstreitu sem getur skapast í ástarsamböndum, þessi on/off, haltu mér/slepptu mér spennu, og í myndbandinu erum við að vinna með þrjár mismunandi gerðir af svo- leiðis spennu.“ Karó mun nýta sumarið í að framleiða meira efni en eflaust bíða margir með töluverðri eftir- væntingu eftir því – Wolfbaby fékk til að mynda töluverða athygli á erlendum tónlistarsíðum stuttu eftir að það kom út en í því fjallaði hún um niðrandi ummæli um hana sem voru birt á Twitter. „Planið í sumar er að vinna að EP- plötu, en ég er ekki alveg komin með neinn tíma á hvenær ég myndi gefa hana út. Ég er að fara að gera annað myndband seinna í sumar og það er sem sagt við annan síngúl sem ég sit á.“ Aðspurð hvort fram undan séu einhverjir tónleikar svarar hún því játandi en segir að það komi í ljós síðar hvenær og hvar það verði. Það má því búast við miklu frá þessari ungu söngkonu í sumar. Myndbandið við Overnight er í leikstjórn Antoníu Lár, það er skotið af Ágústi Elí og klippt af Atla Karli Bachmann. Eins og áður segir verður það frumsýnt í kvöld á skemmti- staðnum Paloma klukkan átta. stefanthor@frettabladid.is Stórt sumar í vændum hjá Karó Karólína Jóhannsdóttir söngkona, betur þekkt sem Karó, stefnir á að taka upp plötu í sumar og spila á helling af tónleikum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Söngkonan Karó sendir frá sér nýtt lag, Overnight, og myndband. Lagið gerði hún í fyrra ásamt Auði og frum- sýnir það ásamt myndbandi í kvöld á skemmtistaðnum Paloma. Í því vinnur hún með þrjú sjónar- horn á togstreitu innan ástarsam- banda. Lagið FjaLLar Í grunninn um þeSSa togStreitu Sem getur SKapaSt Í áStarSamböndum, þeSSi on/oFF, haLtu mér/ SLepptu mér Spennu, og Í myndbandinu erum við að vinna með þrjár miSmun- andi gerðir aF SvoLeiðiS Spennu. Íslenski dansflokkurinn fer sigurför um heiminn. MyND/JÓNATAN GRÉTARSSON 1 3 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I Ð j U D A G U R26 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð 1 3 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 0 -9 C 2 8 1 D 1 0 -9 A E C 1 D 1 0 -9 9 B 0 1 D 1 0 -9 8 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.