Fréttablaðið - 13.06.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 13.06.2017, Blaðsíða 2
VIÐSKIPTI Breski kaupsýslumaður- inn Philip Day er sagður hafa áhuga á að kaupa fatakeðjurnar Coast, Oasis og Warehouse af Kaupþingi. Keðjurnar voru settar á sölu í nóv- ember í fyrra og var uppsett verð þá 100 milljónir punda, sem jafngildir um 12,5 milljörðum króna, en talið er að Day geti nú keypt verslanirnar fyrir helmingi lægri fjárhæð. Day er forstjóri smásölukeðj- unnar Edinburgh Woollen Mill, en í frétt The Sunday Times segir að hann hafi aukið umsvif sín á smá- sölumarkaði að undanförnu með kaupum á nokkrum verslunum. Félagið Aurora Fashions rekur keðjurnar þrjár, Coast, Oasis og Warehouse, en það hefur verið í eigu Kaupþings frá árinu 2009. Áður voru þær í eigu félagsins Mosaic Fash ions, sem varð gjaldþrota í kjölfar hrunsins, en Baugur Group var stærsti eigandi þess félags. Aðrir hluthafar voru meðal annars Kaup- þing og fjárfestingarfélagið Stapi. Líkt og margar verslanakeðjur hafa verslanir Aurora Fashions átt erfitt uppdráttar undanfarin ár. Fatasala hefur dregist verulega saman í Bretlandi og þá er einka- neysla jafnframt minni en áður. – kij Vill kaupa verslanir af Kaupþingi Verslanir Oasis hafa verið í eigu Kaupþings frá árinu 2009 en eru nú í söluferli. Fréttablaðið/EPa Veður Fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og þurrt að kalla, en líkur á síð- degisskúrum suðvestan til, einkum í innsveitum. Sjá SíÐu 18 Hituðu upp fyrir þjóðhátíðardaginn ReyKjaVíK Líklega má skýra það að Vesturbæingar verði meira varir við rottugang núna en áður með því að þegar vel viðrar séu rottur meira á ferli. Bjarni Brynjólfsson, upplýs- ingastjóri Reykjavíkurborgar, bend- ir á að ekki sé óeðlilegt að menn sjái rottur á þessum tíma þegar veðrið er hvað best Hanna Ólafsdóttir, blaðamaður sem býr í Vesturbænum, birti á Facebook-síðunni Vesturbær myndband af rottu við Holtsgötu á laugardaginn. Færslan fékk mikil viðbrögð innan hópsins. Hanna segist þó aðeins hafa séð rottu á ferli í Vesturbænum í þetta eina skipti. Í Face book-hópnum má sjá nokkrar færslur frá öðrum notendum um rottugang á svæðinu síðustu vikur, sumar rotturnar hafa verið á lífi en aðrar dauðar. Starfsmaður meindýravarna hjá Reykjavíkurborg segir ekki meiri rottugang í Vesturbænum en venjulega þrátt fyrir frásagnir af því. Fólk verði ef til vill meira vart við þær núna, en tilkynningum hefur ekki fjölgað hjá meindýravörnum Reykjavíkurborgar. Að mati starfsmannsins gæti verið að fólk tæki meira eftir rottum vegna umfjöllunar um rottugang. Fólk sé farið að líta sér nær og skoða heimahverfið meira. Bjarni telur það ekki rétt að rottugangur hafi aukist. „Þegar það verður vart við rottur þá hefur fólk yfirleitt samband við meindýraeyða borgarinnar þannig að þeir eru með ansi góða skráningu á því sem er að gerast.“ Þegar tilkynnt sé um rottugang mæti meindýraeyðar og setji upp gildrur. „En síðan er eitrað í skolp- brunnana á sumrin til þess að halda rottum í skefjum. Engin hætta er á því að gæludýr komist í slíkt eitur,“ segir Bjarni. Hann bendir á að rottur séu meira á ferli í góðu veðri. „Það er kannski mikið af opnum húsgrunnum vegna fjölda framkvæmda sem eru í gangi í Reykjavík. Þegar er verið að sinna viðhaldi hér og þar og skolpið er kannski opnað þá geta þær jafnvel flúið og farið á stjá. Þannig að það er ekki óeðlilegt að menn sjái rottur á þessum tíma þegar veðrið er hvað best. Mikilvægt er að fólk láti mein- dýravarnir vita þegar það verður vart við rottur. Hægt er að finna síma hjá meindýravörnum á síðu borgarinnar,“ segir Bjarni Brynj- ólfsson. saeunn@frettabladid.is Rotturnar sleikja líka sólina í borginni Íbúar í Vesturbænum hafa á Facebook vakið athygli á rottugangi. Starfsmaður meindýravarna Reykjavíkurborgar segir að ekki sé meiri rottugangur á svæðinu en venjulega. Rottur eiga það til að birtast á götum borgarinnar þegar hlýnar. rottur eru meira áberandi í borginni þegar hlýnar í veðri. Fréttablaðið/GVa Það er ekki óeðlilegt að menn sjái rottur á þessum tíma þegar veðrið er hvað best. Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar VIÐSKIPTI Hádegisverður með fjár- festinum Warren Buffett var í nýlið- inni viku sleginn hæstbjóðanda fyrir 2,7 milljónir dala, sem jafn- gildir um 265 milljónum króna. Um árlegt uppboð er að ræða, þar sem áhugasömum gefst kostur á að vinna hádegisverð með spámann- inum frá Omaha, en ágóðinn rennur allur til góðgerðarsamtaka. Hæstbjóðandi vildi ekki láta nafns síns getið. Hann má taka með sér allt að sjö gesti en máltíðin verður snædd á steikhúsinu Smith & Wollensky í New York. Uppboðið stóð í fimm daga en hæsta tilboð nam 2,3 milljónum dala, allt þar til á síðustu mínútum að hærra tilboð barst. Alls hefur Buffet safnað yfir 25 milljónum dala til góð- gerðarmála með þessum hætti. – kij Mörg hundruð milljóna króna hádegisverður PI PA R\ TB W A • S ÍA Gleraugnaverslunin þín MJÓDDIN S:587 2123 FJÖRÐUR S: 555 4789 Bættu árangurinn! Íþróttagleraugu með og án styrkleika. Þjóðhátíðardagur Íslendinga er næstkomandi laugardag með tilheyrandi húllumhæi. Dagskrá verður nokkuð áþekk því sem hún hefur verið í gegnum tíðina. Lögreglufólk sem kemur til með að standa vörð á Austurvelli æfði fyrir stóra daginn á Laugardalsvelli í gær. Fréttablaðið/aNtON briNK 1 3 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I Ð j u D a G u R2 f R é T T I R ∙ f R é T T a B L a Ð I Ð 1 3 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 0 -8 D 5 8 1 D 1 0 -8 C 1 C 1 D 1 0 -8 A E 0 1 D 1 0 -8 9 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.