Fréttablaðið - 13.06.2017, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 13.06.2017, Blaðsíða 36
Það eru margir sælkerar sem bíða spenntir eftir opnun Mathallarinnar á Hlemmi þar sem hægt verður að kaupa fjöl-breyttan mat og drykki úr fersku hráefni. „Það er ekki komin nákvæm dagsetning á hvenær mark- aðurinn verður opnaður. En það er óhætt að segja að þetta verði opnað á næstu vikum,“ segir Ragnar Egilsson, markaðsstjóri hjá Hlemmi Mathöll. Til stóð að opna matarmarkaðinn í vor en nokkrar tafir urðu. „Það sem við strönduðum á er að það þurfti margt að laga í húsnæðinu. Þetta er hús sem er komið til ára sinna og borgin er að skila því af sér núna. Þetta lítur vel út,“ útskýrir Ragnar sem spáir því að markaðurinn verði opnaður í júlí. En núna er allt að smella og ljóst er að allir sem koma að markaðinum munu vinna með það að leiðarljósi að lágmarka matarsóun og hugsa vel um umhverfið. „Við ættum að vera eins umhverfisvæn og við mögulega getum. Markmiðið er að vera alveg plastlaus og ég tel að það náist alveg. Grænmetið verður til dæmis flest umbúðalaust, og þær umbúðir sem verða notaðar eru með „fair trade“- vottun,“ segir Ragnar sem hvetur við- skiptavini til að mæta með margnota poka á markaðinn. „Það er auðvitað best en svo verðum við með ein- hverja pappírspoka líka.“ Minnir á nammibar Bryndís Sveinsdóttir sér um græn- metisverslun Mathallarinnar. Sú verslun hefur hlotið nafnið Rabbar Barinn. „Allt grænmetið verður selt í lausu og það verður allt íslenskt hjá okkur,“ segir hún. Bryndís segir fyrirkomulagið í kringum Rabbar Barinn minna svo- lítið á nammibarinn í Hagkaupum. „Fólk kemur inn og fær að plokka algjörlega það sem það vill og svo er hráefnið selt eftir vigt. Hérna fær fólk að kaupa nákvæmlega það magn sem það vantar,“ segir Bryndís sem er orðin afar spennt fyrir opnuninni. „Við munum gefa Íslendingum færi á að kaupa alvöru íslenskar vörur sem eru algjört sælgæti og auðvitað miklu hollari en það sem fæst á hefð- bundnum nammibar.“ Á Rabbar Barnum verður svo hægt að kaupa gómsætar grænmetissúpur. „Helga Mogensen er að búa til upp- skriftir fyrir okkur. Það verða tvær til þrjár súpur til sölu hjá okkur á hverjum degi, ýmist til að borða á staðnum eða til að taka með. Ein súpan verður úr grænmeti sem er alveg að falla á tíma og hún verður ódýrari en hinar,“ útskýrir Bryndís sem er mikið í mun að draga úr mat- arsóun. „Þetta er því fullkomið fyrir þá sem vilja taka þátt í að vernda umhverfið.“ Útisvæðið lofar góðu Þegar Ragnar er spurður nánar út í fyrirkomulagið segir hann: „Hérna verða 10 rekstraraðilar með bása. Og hér verða pop-up básar á svæðinu, þannig að það er ákveðið svigrúm fyrir tímabundna viðburði. Mat- höllin verður opin allan ársins hring, frá morgni til kvölds. Fyrir utan verður svo útisvæði þannig að von- andi náum við að opna á meðan það er einhver sól,“ segir hann og hlær. „Þetta er auðvitað svæði sem hefur ekki verið nógu vel nýtt undanfarið.“ Ragnar segir að í Mathöllinni verði lögð áhersla á samstarf. „Þarna fá rekstraraðilar tækifæri til að nota hráefni frá öðrum sem taka þátt í matarmarkaðinum. Þetta hefur vantað í matarmenningu á Íslandi.“ gudnyhronn@365.is Plastnotkun og matarsóun í lágmarki Ragnar Egilsson og Bryndí s Sveinsdóttir geta ekki beðið eftir að hægt verði að opna Hlemm Mathöll, útlit er fyrir að það verði í júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Á Hlemmi Mathöll, sem verður opnuð á næstu vikum, verður unnið með það að leiðarljósi að tak- marka matarsóun auk plastnotkunar. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is Við látum framtíðina rætast. Nýr al-rafmagnaður e-Golf er mættur á svæðið. Hvers manns straumur. Nýr e-Golf dregur allt að 300 km* og er fyrsti rafmagnsbíllinn með upplýsinga- og afþreyingarkerfi með hreyfistýringu. Komdu í reynsluakstur og finndu kraftinn í þessum magnaða bíl sem gengur 100% fyrir rafmagni. *S kv . N ED C st að lin um . 1 3 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I Ð j U D A G U R24 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð Lífið 1 3 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 0 -A F E 8 1 D 1 0 -A E A C 1 D 1 0 -A D 7 0 1 D 1 0 -A C 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.