Fréttablaðið - 13.06.2017, Blaðsíða 40
Benedikts Bóasar
Hinrikssonar
Bakþankar
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Það er svo gaman að fara á völlinn í Færeyjum. Þar er boðið upp á færeyskan bjór
og þar er boðið upp á stemningu.
Leikur Færeyja og Sviss á laugardag
var svo mikil uppgötvun fyrir okkur
félagana að við gátum ekki annað en
skammast okkar fyrir hvernig KSÍ og
fótboltasamfélagið er að gera hlutina
hér á landi.
Í Færeyjum er Torsvöllur með
þrjár stúkur upp við völlinn. Fyrir
aftan annað markið var VIP-svæðið
og þar fyrir neðan hvatti 12-an þeirra
Færeyinga liðið áfram. Á Laugardals-
velli er 12-unni haldið frá hefðar-
fólki.
Hægt var að kaupa sex bjóra í
einu á Torsvelli og fékk maður þá
svona pappadót með til að bera allan
varninginn aftur í sætið sitt. Það
mátti ekki sullast.
Í hálfleik var hægt að skjótast á
veitingastaðinn 12.fo eða næla sér
í súpu. Fá sér svo meiri færeyskan
bjór, sem er frábær. Öll afgreiðsla
gekk nokkuð snurðulaust fyrir sig
og enginn var áberandi ölvaður.
Færeyingar byrjuðu líka að fá sér bjór
aðeins fyrr en við. Bjórdrykkja er jú
ekki orðin þrítug á Íslandinu góða.
Þeir sem vildu ekki bjór löbbuðu
bara fram hjá. Sögðu bara nei, takk.
Fyrir leik var hægt að kíkja í
minjagripabúðina til að kaupa trefla,
búninga, húfur og fyndna bjórvett-
linga í færeysku litunum.
Þó ég sé fegin að fanzone-menn-
ingin sé loks komin hingað á Íslandið
góða þá verðum við að stíga út úr
moldarkofanum. Við sýndum og
sönnuðum á EM að við erum einir
bestu og skemmtilegustu aðdáendur
heims. Það er ekki einu sinni bara
mitt mat heldur alþjóðasamfélagsins.
Bjóðum upp á innlendan bjór í
fanzone. Hættum að vera sveita-
menn með rollur. Það er allt í lagi.
Það gerist ekki neitt, nema kannski
einhver örlítill hávaði á vellinum.
Skömmin
er okkar
J I B B Í
J E I
VÍSINDA-VILLI
KL. 17.00
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
1
3
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
0
-8
8
6
8
1
D
1
0
-8
7
2
C
1
D
1
0
-8
5
F
0
1
D
1
0
-8
4
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K