Fréttablaðið - 13.06.2017, Side 36
Það eru margir sælkerar sem bíða spenntir eftir opnun Mathallarinnar á Hlemmi þar sem hægt verður að kaupa fjöl-breyttan mat og drykki
úr fersku hráefni. „Það er ekki komin
nákvæm dagsetning á hvenær mark-
aðurinn verður opnaður. En það er
óhætt að segja að þetta verði opnað á
næstu vikum,“ segir Ragnar Egilsson,
markaðsstjóri hjá Hlemmi Mathöll.
Til stóð að opna matarmarkaðinn
í vor en nokkrar tafir urðu. „Það sem
við strönduðum á er að það þurfti
margt að laga í húsnæðinu. Þetta
er hús sem er komið til ára sinna og
borgin er að skila því af sér núna.
Þetta lítur vel út,“ útskýrir Ragnar
sem spáir því að markaðurinn verði
opnaður í júlí.
En núna er allt að smella og ljóst
er að allir sem koma að markaðinum
munu vinna með það að leiðarljósi
að lágmarka matarsóun og hugsa vel
um umhverfið. „Við ættum að vera
eins umhverfisvæn og við mögulega
getum. Markmiðið er að vera alveg
plastlaus og ég tel að það náist alveg.
Grænmetið verður til dæmis flest
umbúðalaust, og þær umbúðir sem
verða notaðar eru með „fair trade“-
vottun,“ segir Ragnar sem hvetur við-
skiptavini til að mæta með margnota
poka á markaðinn. „Það er auðvitað
best en svo verðum við með ein-
hverja pappírspoka líka.“
Minnir á nammibar
Bryndís Sveinsdóttir sér um græn-
metisverslun Mathallarinnar. Sú
verslun hefur hlotið nafnið Rabbar
Barinn. „Allt grænmetið verður selt í
lausu og það verður allt íslenskt hjá
okkur,“ segir hún.
Bryndís segir fyrirkomulagið í
kringum Rabbar Barinn minna svo-
lítið á nammibarinn í Hagkaupum.
„Fólk kemur inn og fær að plokka
algjörlega það sem það vill og svo er
hráefnið selt eftir vigt. Hérna fær fólk
að kaupa nákvæmlega það magn
sem það vantar,“ segir Bryndís sem
er orðin afar spennt fyrir opnuninni.
„Við munum gefa Íslendingum færi
á að kaupa alvöru íslenskar vörur
sem eru algjört sælgæti og auðvitað
miklu hollari en það sem fæst á hefð-
bundnum nammibar.“
Á Rabbar Barnum verður svo hægt
að kaupa gómsætar grænmetissúpur.
„Helga Mogensen er að búa til upp-
skriftir fyrir okkur. Það verða tvær
til þrjár súpur til sölu hjá okkur á
hverjum degi, ýmist til að borða á
staðnum eða til að taka með. Ein
súpan verður úr grænmeti sem er
alveg að falla á tíma og hún verður
ódýrari en hinar,“ útskýrir Bryndís
sem er mikið í mun að draga úr mat-
arsóun. „Þetta er því fullkomið fyrir
þá sem vilja taka þátt í að vernda
umhverfið.“
Útisvæðið lofar góðu
Þegar Ragnar er spurður nánar út í
fyrirkomulagið segir hann: „Hérna
verða 10 rekstraraðilar með bása. Og
hér verða pop-up básar á svæðinu,
þannig að það er ákveðið svigrúm
fyrir tímabundna viðburði. Mat-
höllin verður opin allan ársins hring,
frá morgni til kvölds. Fyrir utan
verður svo útisvæði þannig að von-
andi náum við að opna á meðan það
er einhver sól,“ segir hann og hlær.
„Þetta er auðvitað svæði sem hefur
ekki verið nógu vel nýtt undanfarið.“
Ragnar segir að í Mathöllinni
verði lögð áhersla á samstarf. „Þarna
fá rekstraraðilar tækifæri til að nota
hráefni frá öðrum sem taka þátt
í matarmarkaðinum. Þetta hefur
vantað í matarmenningu á Íslandi.“
gudnyhronn@365.is
Plastnotkun og matarsóun í lágmarki
Ragnar Egilsson og Bryndí s Sveinsdóttir geta ekki beðið eftir að hægt verði að
opna Hlemm Mathöll, útlit er fyrir að það verði í júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Á Hlemmi Mathöll,
sem verður opnuð á
næstu vikum, verður
unnið með það að
leiðarljósi að tak-
marka matarsóun
auk plastnotkunar.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
Nýr al-rafmagnaður e-Golf er mættur á svæðið.
Hvers manns straumur.
Nýr e-Golf dregur allt að 300 km* og er fyrsti rafmagnsbíllinn með upplýsinga-
og afþreyingarkerfi með hreyfistýringu. Komdu í reynsluakstur og finndu kraftinn
í þessum magnaða bíl sem gengur 100% fyrir rafmagni.
*S
kv
. N
ED
C
st
að
lin
um
.
1 3 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I Ð j U D A G U R24 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð
Lífið
1
3
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
0
-A
F
E
8
1
D
1
0
-A
E
A
C
1
D
1
0
-A
D
7
0
1
D
1
0
-A
C
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K