Fréttablaðið - 03.07.2017, Page 30
Okkar yndislega og fallega,
Ester Eva Hall
sem lést 2. júní á Mount Auburn
Hospital í Boston, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
6. júlí kl. 15.
Spencer Hall
Óðinn Alexander og Viktor Þór, synir þeirra
Rósella Mosty Ágúst Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson
Aníta Mist, Tanya Líf og Sara Dís
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurjón Hannesson
fv. skipherra,
Klapparhlíð 5, Mosfellsbæ,
sem andaðist laugardaginn 24. júní sl.
verður jarðsunginn frá Guðríðarkirkju
mánudaginn 3. júlí kl. 15.
Maggý Björg Jónsdóttir
Jóhann Sigurjónsson Ásta Hilmarsdóttir
Ólafur G. Sigurjónsson Lilja Guðbjartsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Bandaríski geimfarinn Charlie Duke heldur í dag skemmti- og fræðsluviðburð fyrir börn og unglinga í sal Háskólans í Reykjavík.
Sendiráð Bandaríkjanna, í samstarfi
við Könnunarsögusafn Íslands á
Húsavík og Háskólann í Reykjavík,
heldur viðburðinn og verða þeir
Vísinda-Villi og Sólmyrkva-Sævar,
sem báðir hafa mikla reynslu í að
fræða og skemmta börnum, kynnar,
túlkar og skemmtikraftar á viðburð-
inum.
„Hann er að koma hingað sérstak-
lega til Íslands í prógramm á vegum
Könnunarsögusafns Íslands á Húsa-
vík. Hann mun taka fyrstu skóflu-
stungu að nýju safnahúsi fyrir þá.
Síðan mun hann heimsækja slóðir
sem þeir voru á við æfingar,“ segir
Helga Magnúsdóttir hjá bandaríska
sendiráðinu.
Charlie Duke kom til Íslands í
þjálfun fyrir geimferðirnar fyrir 50
árum. Hann var svokallaður sam-
skiptastjóri, eða Capsule Comm-
unicator (CAPCOM), í fyrstu tungl-
lendingunni hjá Neil Armstrong
Buzz Aldrin og félögum í Apollo 11.
En aðeins samskiptastjórinn átti
bein samskipti við áhöfn geimflaug-
arinnar. NASA fannst mikilvægt að
það væri geimfari sem gegndi því
hlutverki, því þeir höfðu mestan
skilning á því sem var að gerast um
borð í flauginni og gátu komið skila-
boðum á milli á sem skýrastan hátt.
Charlie Duke var svo varaflug-
maður fyrir Apollo 13 en sögu
þeirrar geimferðar hafa verið gerð
skil í eftirminnilegri kvikmynd með
Tom Hanks. Hann var flugmaður
Apollo 16 geimflaugarinnar og lenti
á tunglinu ásamt John W. Young og
Thomas K. Mattingly II. Apollo 16
var fyrsta vísindaferðin sem var
farin til að kanna, rannsaka og safna
efni á Descartes-svæði tunglsins.
Charlie Duke og John W. Young
lentu á yfirborði tunglsins í Orion-
tunglfarinu á Cayley-sléttunni. Þeir
fóru alls fjórar ferðir fram og til
baka með tunglferjunni og lentu
alls fjórum sinnum á tunglinu. Þeir
söfnuðu um 100 kílóum af steinum
og jarðvegssýnum, ásamt því að
kanna og meta færni farartækisins
Rover-2 til að fara yfir hrjóstrugasta
og erfiðasta yfirborð tunglsins.
Apollo 16 kom fyrsta geimgeisla-
skynjaranum fyrir á yfirborði
tunglsins ásamt fyrstu stjörnu-
skoðunarstöðinni með langdrægri
UV-myndavél. Duke hefur eytt 265
klukkustundum í geimnum og á
margar skemmtilegar sögur af sinni
einstæðu reynslu. Hann hefur ára-
tuga reynslu í að tala við börn og
unglinga um heima og geima, í bók-
staflegri merkingu.
„Viðburðurinn fylltist nánast um
leið og við tilkynntum um hann. Við
komum ekki fleirum að, því miður.
Það tók rúman einn og hálfan sólar-
hring að fylla salinn,“ segir Helga.
„Þeir verða með honum Vísinda-
Villi og Sólmyrkva-Sævar og sjá um
að túlka það sem Duke segir því
Duke talar auðvitað bara ensku.
Þannig eiga allir að geta tekið þátt
í fjörinu,“ bætir hún við.
Markmið viðburðarins er að
efla áhuga barna og unglinga á vís-
indamenntun, eða STEM (Science,
Technology, Engineering and Math).
Á viðburðinum gefst færi á að prófa
sjónauka til að horfa til himins,
skoða og snerta loftsteina, tungl-
steina, skoða líkön af tunglferjum
og jafnvel taka þátt í vísindatilraun
með Vísinda-Villa og Sólmyrkva-
Sævari svo að dagskráin verður í
senn fræðandi og skemmtileg.
benediktboas@365.is
Geimfjör um heima og geima
Í dag heldur geimfarinn Charlie Duke skemmti- og fræðsluviðburð fyrir börn og unglinga. Duke er einn sex núlifandi geimfara sem
hafa gengið á tunglinu og kom hingað til lands í þjálfun fyrir geimferðirnar fyrir 50 árum. Eftir fjörið í HR fer hann á Húsavík.
Charlie Duke
á ráðstefnu í
Þrándheimi ekki
alls fyrir löngu.
NorDiCphotos/
Getty
Charlie Duke og John W.
Young lentu á yfirborði
tunglsins í Orion-tunglfarinu
á Cayley-sléttunni. Þeir fóru
alls fjórar ferðir fram og til
baka með tunglferjunni og
lentu alls fjórum sinnum á
tunglinu.
Fálkaorðan var stofnuð þennan dag árið
1921 af Kristjáni X „til að sæma þá sem
öðrum fremur hafa eflt hag og heiður
Íslands“. Hún er íslensk heiðursviður-
kenning sem veitt er bæði íslenskum og
erlendum einstaklingum og er æðsta
heiðursmerkið sem íslenska ríkið veitir
mönnum. Fálkinn vísar til þess að fálkar
voru taldir glæsileg gjöf til tignarmanna
á fyrri öldum og voru lengi útflutnings-
vara frá Íslandi auk þess sem fálki var
uppistaðan í skjaldarmerki
Íslands á árunum 1903-
1919.
Nýjum orðuhöfum er
veitt viðurkenningin á
nýársdag eða á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní af
forseta Íslands.
Öllum er frjálst að tilnefna
einstaklinga sem þeir telja verð-
uga orðuþega. Sérstök nefnd
fjallar um tilnefningarnar
og gerir tillögur til forseta
um hverjir skuli hljóta orðu.
Nú er Guðni Ágústsson, fyrr-
verandi ráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, formaður
nefndarinnar. Oftast er það ríflegur
tugur hverju sinni sem hlýtur orðuna en
orðustigin eru fimm: Fyrsta
stig orðunnar er riddarakross-
inn og flestir orðuþegar eru
sæmdir honum. Annað stigið er stór-
riddarakross, síðan stórriddarakross
með stjörnu og loks stórkross.
Æðsta stig orðunnar er keðja ásamt
stórkrossstjörnu en hana bera
einungis þjóðhöfðingjar.
Þá sæmir forseti árlega nokkra
erlenda ríkisborgara fálkaorðu. Sérstakar
reglur um orðuveitingar eru í gildi milli
Íslands og nokkurra ríkja í Evrópu um
gagnkvæmar orðuveitingar í tengslum
við opinberar heimsóknir þjóðhöfð-
ingja.
Gefist tilefni til getur orðunefnd
hækkað einstakling um orðustig. Við
andlát orðuhafa ber afkomendum að
skila orðunni. Ein orða nýtur þó undan-
tekningar á þessu, stórkross sem átti að
veita Jóhannesi Kjarval 1965 en hann
afþakkaði.
Sættir náðust þó með því að orðan
var varðveitt í listasafni Íslands en Jó-
hannes vildi aldrei fá hana í hendur.
Þ ETTA g E R ð I ST 3 . J ú l Í 1 9 2 1
Íslenska fálkaorðan stofnuð
Frá síðustu orðuveitingu þar sem fjölmargir fengu fálkaorðuna. hver sem
er getur verið tilnefndur að fá orðuna nælda í brjóstið. Fréttablaðið/haNNa
3 . j ú l í 2 0 1 7 M Á N U D A G U R14 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B l A ð i ð
tímamót
0
3
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
C
-A
2
0
0
1
D
3
C
-A
0
C
4
1
D
3
C
-9
F
8
8
1
D
3
C
-9
E
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K