Fréttablaðið - 01.07.2017, Qupperneq 30
Hérna getum við
nánast eingöngu
róið með réttu falli og því
höfum við stundum bara
6 til 7 tíma á dag til að róa.
Guðni Páll Viktorsson
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Guðni Páll og þrír félagar hans, Breti og tveir Írar, lögðu af stað 5. júní frá Kin-
sale, skammt frá Cork. Nú fjórum
vikum síðar eru þeir komnir til
Portnablagh en hafa setið þar fastir
í tvo daga vegna veðurs. Raunar
hefur kvarnast úr hópnum þar sem
einn félaga hans þurfti að hætta
vegna meiðsla.
Guðni Páll hefur lengi stundað
kajakróður og reri einn í kringum
Ísland fyrir fjórum árum. Hann
segir þó mun erfiðara að róa í
kringum Írland. „Ferðin hefur
gengið mun hægar en við áætl-
uðum. Aðallega vegna veðurs en
svo eru straumarnir hér allt öðru-
vísi en á Íslandi. Hérna getum við
nánast eingöngu róið með réttu
falli (með strauminn með okkur)
og því höfum við stundum bara 6
til 7 tíma á dag til að róa. Heima
getur maður róið í 10 til 12 tíma án
vandræða,“ útskýrir Guðni Páll.
Nú eru þeir félagar að nálgast
vesturströnd Írlands og þá vonast
þeir eftir sunnanvindi í bakið.
Guðni Páll segir Írland afar fal-
legt land og heillandi fyrir kajak-
fólk. Veðrið hefur á tímum leikið
við þá félaga og ferðin í heild verið
mjög ánægjuleg þrátt fyrir ýmsa
erfiðleika og erfitt sjólag á köflum.
„Fyrir nokkrum dögum fengum
við höfrungasýningu í þrjú korter
á meðan við vorum að róa og það
var frábær upplifun. Svo er lands-
lagið hérna algjörlega magnað.“
Hann segir Íra afar gestrisna.
„Það er sama hvert við komum,
maður upplifir sig velkominn og
allir eru tilbúnir að gera allt fyrir
okkur.“
Berst við írska strauma
Guðni Páll Viktorsson er rúmlega hálfnaður í kajakróðri sínum í kringum
Írland. Ferðin hefur tekið lengri tíma en áætlað var vegna vályndra veðra
og óhentugra strauma en hann vonast til að klára á næstu þremur vikum.
Dýralífið er fjölbreytt við strendur Írlands. Hér fylgjast nokkrir forvitnir selir
með ræðurunum fara hjá en virðast lítið kippa sér upp við truflunina.
Ferðafélagar kajakræðaranna á hafi
úti eru af ýmsum toga.
Höfrungar léku listir sínar fyrir þá
félaga í nærri klukkutíma.
Landslagið á Írlandi er ægifagurt enda þykir kajakfólki afar spennandi að róa
við Írlandsstrendur. Veður geta þó verið válynd og straumarnir erfiðir.
Fyrir utan eina írsku höfnina tók Guðni Páll eftir fljótandi hvítum strigaskóm.
Hann veiddi þá upp úr og ákvað að taka þá með sér í land. Þar hitti hann á
stúlku sem var miður sín að leita að skóm sem hún hafði gleymt í fjörunni
kvöldið áður. Sú var alsæl að hitta á Guðna Pál og endurheimta skóna sína.
Carrick-a-Rede kaðalbrúin á Norður-
Írlandi er mjög vinsæll ferðamanna-
staður. Brúin tengir meginlandið við
hina örsmáu eyju Carrickarede. Brúin
er 20 metrar og er í 30 metra hæð.
Kajakróður er án efa afar
krefjandi líkamlega en hvernig
er andlega hliðin? „Þetta hefur
vissulega tekið mikið á líkamlega
og maður er farinn að finna fyrir
þreytu og stirðleika alls staðar. En
það er ekkert miðað við andlega
hlutann. Ég hef oft þurft að berjast
við sjálfan mig bara til að halda
haus. Ég vissi fyrir þessa ferð að
þetta yrði mjög erfitt, en að vera
burtu frá fimm mánaða dóttur
minni er það erfiðasta sem ég hef
gert hingað til,“ segir Guðni Páll en
tekur fram að hann eigi gott fólk
heima fyrir sem geri honum lífið
léttara með hjálp tækninnar.
Þeir félagar vonast til að geta
lagt aftur af stað fljótlega og búast
við að klára hringinn á tveimur til
þremur vikum ef allt gengur upp.
Guðni Páll nýtir átakið til vekja
athygli á starfi Umhyggju, félagi
langveikra barna. Þeir sem vilja
styrkja sjóðinn með framlögum
geta lagt inn á eftirfarandi reikning:
Reikningur: 0101-15-371646
Kennitala: 691086-1199
FRÁBÆR
KÍNVERSKU
R
VEITINGAST
AÐUR
Í MEIRA EN
30 ÁR
Krakkar að 5 ára aldri borða frítt
5 -12 ára börn 1.200kr.
HLAÐBORÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11:00 - 14:00
Verð kr. 2.100
Veglegt hlaðborð með
fjölbreyttum og bragðgóðum réttum
Tilvalið fyrir fjölskyldur!
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
8 rétta
hlaðborð í
hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.590.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga.
ekki um helgar.
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l kinahofid@kinahofid.is l Sími 554 5022
www.kinahofid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . j ú l Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
1
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
C
-5
3
0
0
1
D
3
C
-5
1
C
4
1
D
3
C
-5
0
8
8
1
D
3
C
-4
F
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
3
0
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K